Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 74
 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR SÍÐUSTU VIKUR KRISTS Rokkóperan Jesus Christ Superstar verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu í kvöld. Rokkóperan sígilda Jesus Christ Superstar eftir þá Andrew Lloyd Webber og Tim Rice verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu í kvöld. Þetta er í þriðja skipti sem Leik- félag Reykjavíkur setur verkið Jesus Christ Superstar upp. Það var fyrst sýnt árið 1973 í leik- stjórn Péturs Einarssonar, en þess má til gamans geta að Pétur fer með hlutverk prests í þessari nýjustu uppfærslu. Verkinu var ætlað að laða ungt fólk að leik- húsinu og gekk það átak vonum framar þar sem tuttugu þúsund manns sáu þessa fyrstu íslensku uppfærslu. Stykkið var svo sett upp að nýju 22 árum seinna, árið 1995, í leikstjórn Páls Baldvins Baldvinssonar, og laðaði þá að þrjátíu þúsund áhorfendur. Áhugi landsmanna á þessari rokkóperu virðist lítið hafa dalað á þeim tólf árum sem liðin eru síðan hún var seinast sett upp, enda hafa miðar rokið út og er nú svo komið að uppselt er á tíu fyrstu sýningarnar. Björn Hlynur Haraldsson, leikstjóri verksins, er að vonum ánægður með mót- tökurnar. „Þessi miðasala er nátt- úrulega vonum framar. En ég er eðlilega spenntastur fyrir því hvernig áhorfendum líst á þessa uppfærslu og hlakka því mikið til þess að fara að sýna.“ Jesus Christ Superstar birtist fyrst sem upptaka á plötu árið 1970 og var fyrst sett upp í leik- húsi á Broadway í New York ári síðar. Verkið segir frá síðustu vikunum í lífi Jesú Krists og endar með krossfestingu hans. Sagan fylgir að mestu leyti píslarsögunni eins og hún kemur fyrir í Nýja testamentinu, en upprunalega uppfærslan er hæfi- lega krydduð með anda hippa- tímabilsins. Björn ákvað þó að fara örlítið aðra leið í uppfærsl- unni þessu sinni. „Mig langaði til að losna við hippa fýluna sem hefur fylgt þessu verki og því er uppsetningin frekar tímalaus. Karl Ágúst Úlfsson gerði nýja þýðingu á textanum og er hún skýr, einföld, skiljanleg og laus við hippalegt slangur. Ég vildi frekar leggja áherslu á söguna í verkinu fremur en einhvern tíð- aranda, enda er boðskapur verks- ins sígildur.“ Athygli vekur að í tveimur burðarhlutverkum verksins eru þeir Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi, sem leik- ur Jesú og Jens Ólafsson sem leikur Júdas, en hvorugur þeirra hefur tekið þátt í uppsetningu í atvinnuleikhúsi áður. Þeir hafa aftur á móti báðir vakið athygli sem söngvarar tveggja af fram- sæknustu rokkhljómsveitum landsins, Krummi með Mínus og Jens með Brain Police. „Ég vildi einfaldlega leggja áherslu á að þetta er rokkópera en ekki popp- tónlist og vildi því fá bestu rokk- söngvara landsins til að fara með þessi hlutverk. Þeir eru enda frá- bærir sem Jesús og Júdas,“ segir Björn. Val þeirra í burðarhlut- verk verksins gefur sterklega til kynna að þessi uppfærsla verði í meira lagi rokkuð og að hér sé því kominn menningarviðburður sem lætur engan ósnortinn, ekki einu sinni lifuðustu rokkhunda. vigdis@frettabladid.is Guðsonurinn rokkar Tvær krukkur með hljóðritum af mestu söngvurum heims voru settar í geymslu á jólum 1907 í kjallara Parísaróperunnar með ströngum skilyrðum um að þær yrðu geymdar þar í hundrað ár. Það var stjórnandi fyrirtækis sem síðar var kallað EMI sem kom krukkunum fyrir og voru hljóðrit- in varðveitt í geymsluhólfum úr nýuppfundnu efni: asbesti. Meðal þeirra söngvara sem áttu söng á hljóðritunum voru bæði Nelly Melba hin ástralska og Napolí- söngvarinn dáði Enrico Caruso. Krukkurnar voru fjarlægðar úr kjallara óperunnar 1989 en þá hafði tilvist þeirra verið innan- búðarmönnum kunn um áratuga- skeið, en varðveislutíminn var virtur. Nú hefur sérfræðingum í eyðingu hættulegra efna verið falið að ná hljóðritunum úr hinum hættulegu hirslum og þá er spurning hvort hljóðritin séu heil og dugi til afritunar. Bæði Nellie Melba og Caruso voru frægustu söngvarar heimsins á sinni tíð og eru velflestar hljóðritanir með þeim löngu þekktar svo hver ný hljóðritun sem finnst með söng þeirra þykir gulls ígildi. Melba og Caruso HARMONIKUBALL í kvöld frá kl. 22:00 í Húnabúð, Skeifunni 11 Reykjavík. Kveðjum gott harmonikuár með dúndrandi dansi. Harmonikufélag Reykjavíkur. 7. og 8. des uppselt 30. des Þjóðleikhúsið Gleðilegt ár! Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur Sprellfjörug barnasýning með söngvum og brúðum 30/12 kl. 13.30 & 15.00 örfá sæti laus Konan áður eftir Roland Schimmelpfennig Háski og heitar tilfinningar 29/12 örfá sæti laus Ívanov Eftir Anton Tsjekhov Aðlögun og leikstjórn: Baltasar Kormákur 28/12 uppselt. 4/1 örfá sæti laus 5/1 örfá sæti laus Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson Ævintýrasöngleikur fyrir alla fjölskylduna 29/12 kl. 14 & 17 uppselt 30/12 kl. 14 & 17 uppselt Krassandi saga úr íslenskum samtíma Aukasýn. 30/12 Óhapp! eftir Bjarna Jónsson ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.