Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 60
28. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR
Bjarni Halldór Kristjánsson framkvæmdastjóri ásamt tveimur starfsmönnum Toyota
vörulausna.
Toyota vörulausnir hafa nú
tekið við sölu á vöruhúsa-
tækjum frá Toyota og BT hér
á landi. Stefnt er að mikilli
markaðssókn á næsta ári.
„Toyota í Japan hefur nýverið gert
umfangsmiklar breytingar á þeim
hluta fyrirtækisins sem snýr að
iðnaðartækjum. Lyftarar og vöru-
húsatæki frá Toyota hafa hingað til
verið seld undir merkjum Toyota
Industrial Equipment. Með kaup-
um Toyota á BT, stærsta fram-
leiðanda vöruhúsatækja í heimi,
ákvað Toyota að setja vörumerk-
in tvö, Toyota Industrial Equip-
ment og BT, undir einn hatt,“ segir
Bjarni Halldór Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Toyota vörulausna.
„Þannig var stofnað nýtt fyrir-
tæki, Toyota Material Handling,
um þessi tvö vörumerki og hefur
Toyota unnið að því síðan að sam-
ræma vöru og þjónustuframboð
sem og að semja við umboðsmenn
og endurseljendur. Við höfum kall-
að okkur Toyota vörulausnir hér á
landi.“
Bjarni segir mikla sókn fram
undan en aðaláhersla fyrirtækis-
ins er á lyftara og önnur tæki til
vinnu í vöruhúsum og í verksmiðj-
um. „Aðalviðskiptavinir okkar eru
fiskvinnslur, vöruhús og verk-
smiðjur eins og álver til dæmis.
Fyrirtækið okkar, Toyota vöru-
lausnir, var stofnað sérstaklega til
að byggja upp öfluga sölu og þjón-
ustu í kringum Toyota vörulausnir
hér á landi.“
Toyota í lyftarasókn
Arnarverk kaupir
nýjan Dynapac-valtara
Arnarverk hefur unnið við
gatnagerð og undirstöður húsa
frá 1993. Fyrir skömmu fékk
Arnarverk ehf. afhentan nýjan
Dynapac-valtara af gerðinni
CA302 D. Valtarinn er 13 tonn,
með þjöppumæli og snúnings-
sæti.
„Við notum þennan nýja valt-
ara í alla jarðvinnu þar sem
þarf að þjappa. Við vorum með
annan fyrir svo nú erum með
tvo. Fyrirtækið hefur starf-
að við gatnagerð frá 1993 auk
þess sem við höfum verið að
vinna við frágang undir ný-
byggingar. Þetta hefur stækk-
að á undanförnum árum og
fleiri verkefni kalla á aukinn
vélakost,“ segir Ólafur Odds-
son, eigandi Arnarverks.
Það eru Kraftvélar sem selja
valtarann en á vefsíðu þeirra
kemur fram að allar upplýsing-
ar um þjöppumælinn og tölvu-
búnaðinn séu afhentar á ís-
lensku og að það auðveldi not-
endum að læra vel á búnaðinn.
Ólafur Oddsson hjá Arnarverki.
Suðurhraun 3 • 210 Garðarbær • Sími: 522-4600
60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004
MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu.
HANN ER GRIMMUR!
MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER
- VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár
- Útvegum notaða skotbómulyftara
- Úrval notaðra lyftara á lager
Fjórhjóladrifinn
Fjórhjólastýrður
Lyftigeta: 3.400 KG
Lyftihæð: 6.050 MM
Gafflar: 1.200 MM
Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ
LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar
án aukins snúningshraða vélar.
SKOTBÓMULYFTARI
PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf.
Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður
Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is