Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 30
28. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● vinnuvélar
Fyrirtækið Jötunn vélar á Selfossi hefur keypt 30
prósenta hlut í Brörup Maskinhandel í Danmörku.
Jötunn vélar á Selfossi, sem selja vinnuvélar og tæki til
landbúnaðarvinnu, hafa gengið frá samningi um kaup
á 30 prósenta eignarhlut í fyrirtækinu Brörup Maskin-
handel á Suður-Jótlandi í Danmörku.
Kaup Jötuns véla á hlutnum í fyrirtækinu tengjast kyn-
slóðaskiptum en eigandi 50 prósenta hlutafjár dró sig út
úr félaginu vegna aldurs og meðeigendur hans, sem jafn-
framt eru lykilstarfsmenn fyrirtækisins, óskuðu eftir að
auka sinn hlut en jafnframt að fá með sér sterkan utanað-
komandi fjárfesti. Þetta er annað fyrirtækið erlendis sem
Jötunn vélar kaupa hlut í.
„Þetta er liður í að styrkja fyrirtækið og marka fram-
tíðarvöxt eins og við sjáum hann. Við fórum fyrr á þessu
ári af stað með annað fyrirtæki og þetta er því ágætt fram-
hald á erlendri grund,“ segir Finnbogi Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Jötuns véla.
Brörup Maskinhandel er eitt af elstu vélasölufyrirtækj-
unum í Danmörku. Það var stofnað árið 1929 og hefur
verið rekið með góðum hagnaði um árabil. Áætluð velta
Brörup Maskinhandel árið 2008 er um þrír milljarðar
íslenskra króna.
Fyrirtækið er með starfsstöðvar í þremur bæjum á
suðurhluta Jótlands, í Brörup, Toftlund og Starup en
á öllum stöðum er starfrækt verkstæði, varahlutasala
og sala nýrra véla. Fyrirtækið er söluaðili fyrir fjölda
þekktra framleiðanda, meðal annars Massey Ferguson og
Fendt dráttarvélar, Kuhn, Kverneland og McHale hey- og
jarðvinnutæki.
Finnbogi segir að með kaupum á hlut í Brörup náist
líklega einhver hagræðing í innkaupum.
„Þeir voru að leita að sterkum aðila til að koma að
rekstrinum og höfðu samband við okkur. Það er von okkar
að báðir aðilar hafi gagn af þessum kaupum. Við getum
lært margt af Dönum og þeir sömuleiðis af okkur.“
Fyrir eiga Jötunn vélar helmings hlut í vélasölufyrir-
tækinu Total Maskiner í Ringsted á Sjálandi sem stofnað
var um síðustu áramót en rekstur Total Maskiner hefur
að sögn Jötuns véla gengið framar væntingum.
- öhö
Jötunn vélar á Selfossi kaupa 30 prósent í
danska fyrirtækinu Brörup Maskinhandel
Óábyrg vinnubröð Kláusar á fyrsta deginum í vinnunni vekja litla gleði hjá samstarfs-
mönnum hans eins og sjá má.
Ýmsar hættur geta skapast þegar
unnið er á vinnuvélum. Því er vert
að hafa alltaf vakandi athygli á
vinnunni og tryggja þannig bæði
öryggi sitt og annarra.
Í Þýskalandi var gerð stutt-
mynd um þær hættur sem geta
fylgt starfi á lyfturum. Myndin
heitir á frummálinu Stapler fahrer
Klaus – Der erste Arbeitstag og
segir frá fyrsta vinnudegi Kláus-
ar á lyftara. Það má segja að allt
sem getur farið úrskeiðis fari úr-
skeiðis á fyrsta degi og ferill hans
endar jafnfljótt og hann byrjar og
það með miklu blóðbaði.
Þótt myndin sé frekar blóðug er
húmorinn alltaf skammt undan en
þrátt fyrir það er hún líka ágæt til
að minna á hvað ber að varast á
vinnusvæði. Þar er á spaugilegan
hátt vakin athygli á hvernig smá
gleymska eða ábyrgðarleysi getur
valdið stórum slysum og jafnvel
manntjóni. Það er þó vert að benda
á að myndin er ekki við hæfi barna
eða viðkvæmra einstaklinga. Hún
hlaut fjölda viðurkenninga þegar
hún var gerð og er hér sennilega á
ferðinni eitt frumlegasta forvarna-
myndband sem um getur.
Myndina má finna á mynd-
bandaveitunni YouTube.com ef
leitað er að „Der erste Arbeits tag“.
- öhö
Fyrsti vinnudagurinn
getur verið skrautlegur
Kláus virðist hinn sælasti í vinnunni þótt
allt gangi á afturfótunum.
4
Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Jötuns véla, segir kaupin lið í því að styrkja fyrirtækið og marka framtíðarvöxt. MYND/EGILL BJARNASON
Bíldshöfða 12 - 110 Reykjavík - Sími 577 1515 - www.skorri.is
Mesta úrval landsins af
rafgeymum
• Mælum rafgeyma.
• Skiptum um rafgeyma.
• Traust og fagleg þjónusta.
TUDOR
tryggir gæðin!