Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 10
10 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR
NOREGUR Norsk-pakistanskur
maður hefur verið handtekinn í
Pakistan grunaður um morð á sjö
ára gamalli stúlku í Islamabad í
október. Maðurinn hefur viður-
kennt að hafa nauðgað stúlkunni
og kæft hana, að sögn norska
Dagbladet. Hann situr nú í
fangelsi í Islamabad.
Norsk stjórnvöld hafa sent
starfsmann úr utanríkisþjónust-
unni og lögmann til Pakistans til
að rannsaka málið en Noregsdeild
Amnesty International telur fulla
ástæðu til að hafa varann á því
hætta sé á því að maðurinn verði
dæmdur til dauða og hengdur.
Óttast er að hann hafi játað eftir
pyntingar. - ghs
Norðmaður í Pakistan:
Í haldi grun að-
ur um morð
RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín,
forseti Rússlands, hvatti rússnesk
stjórnvöld til að leggja enn harðar
að sér við undirbúning þess að
hann taki við sem forsætisráð-
herra eftir forsetakosningar sem
fram fara í mars.
Sagðist Pútín myndu þiggja
starf forsætisráðherra yrði
samflokksmaður hans, Dmítrí
Medvedev, kjörinn forseti.
Haft er eftir Pútín að „fram
undan sé tími þar sem stjórnvöld
verði að vinna sjálfstætt og
ákveðið“. - ovd
Forseti, svo forsætisráðherra:
Pútín ætlar sér
ráðherrastólinn
BANDARÍKIN, AP Tígrisdýri, sem
drap ungan mann og særði tvo
aðra alvarlega, var mögulega
sleppt úr búri sínu í dýragarðinum
í San Francisco á mánudag. Lög-
reglan í borginni hefur nú girt
búrið af og hafið rannsókn á því
hvernig tígrisdýrið komst út.
Kannað verður hvort gleymst hafi
að loka dyrum að búrinu eða hvort
dýrinu var viljandi sleppt út.
Starfsmenn dýragarðsins segja
óhugsandi að dýrið hafi komist út í
gegnum opnar dyr á búrinu heldur
hljóti það að hafa stokkið eða klifr-
að út. Veggurinn umhverfis búr
tígrisdýranna er 5,5 metra hár. Að
auki er 6 metra breitt síki fyrir
innan veggina. Ólíklegt er talið að
dýrið hafi getað stokkið yfir bæði
síkið og vegginn, því tígrisdýr í
dýragörðum eru venjulega í mun
lélegra formi en villt dýr.
Tígrisdýrið Tatiana réðist á
starfsmann dýragarðsins rétt
fyrir jólin í fyrra og særði hann
alvarlega á handlegg. Þá kom ekki
til greina að aflífa hana.
Drengurinn sem lést var 17 ára
gamall. Foreldrar hans hafa kallað
eftir upplýsingum frá dýragarðin-
um um hvernig atvikið átti sér
stað. Mennirnir tveir sem særðust
eru 19 og 23 ára gamlir bræður.
Búist er við því að þeir muni ná
sér að fullu. - þeb
Dýrið sem drap einn og særði tvo í San Francisco-dýragarðinum:
Var mögulega sleppt úr búri
TATIANA Lögreglan rannsakar nú hvern-
ig dýrið komst úr búri sínu.
NORDICPHOTOS/AFP
JÓL Einar Sveinsson, jólasveinn í El Salvador,
var útnefndur sérlegur sendiherra barnanna
fyrir þessi jól af Bloom-barnaspítalanum í
San Salvador, höfuðborg landsins.
Einar hefur um árabil helgað síðustu
mánuði ársins þessum starfa, safnað hvítu
skeggi og klætt sig svo í jólasveinabúninginn.
Hann hefur notið mikilla vinsælda og er
orðinn næsta goðsagnakenndur í augum
borgarbúa, sem kalla Einar „hinn raunveru-
lega jólasvein“ og heilsa honum hvert sem
hann fer.
„Það var alveg sérstaklega mikið að gera
um þessa jólavertíð og allt árið hefur bara
flogið út um gluggann,“ segir Einar sem
framleiðir útvarps- og sjónvarpsþætti fyrir
jólavertíðina, svo þeir séu búnir til sýningar í
lok ársins.
Sjónvarpsþátturinn hefur mælst með allt
að 60 prósenta áhorf og nefnist Sveinki og
álfarnir í hitabeltinu. Hann fjallar um
ævintýri íslensks jólasveins sem fer suður til
að sinna gleymdu börnunum í Mið-Ameríku.
Þegar blaðamaður Fréttablaðsins heimsótti
Einar fyrir jólin 2005 ferðaðist hann á
stundum milli staða í herþyrlu, enda stjórn-
völd öll af vilja gerð til að aðstoða hinn
raunverulega jólasvein.
Einar hefur búið í Mið-Ameríku síðan 1968
og hefur síðustu árin verið árlegur gestur á
forsíðum blaðanna.
Fyrir þessi jól var hann framan á blöðun-
um Diario de Hoy og La Prensa Gráfica.
„Mér líður ágætlega vel en þarf að hvíla
mig eftir þetta,“ segir hann. Skrokkurinn
gamli krefjist rólegheita að jólum liðnum.
„Og ég hlýði honum með ánægju,“ segir
Einar, sem biður að lokum fyrir kæra kveðju
til samlanda sinna. klemens@frettabladid.is
Íslenskur jólasveinn sendi-
herra barna í El Salvador
Einar Sveinsson, jólasveinn í El Salvador, hefur verið útnefndur sendiherra barnanna af stærsta barnaspít-
ala landsins. Hann var á forsíðum tveggja stærstu blaðanna um þessi jól og er þar árlegur gestur. Einar er
úrvinda eftir jólavertíðina en hann nýtur starfsins út í ystu æsar.
EINAR MEÐ FORSTJÓRA BLOOM-SPÍTALANS Fjölmiðlar sýndu því mikla athygli er Einar var viðurkenndur af for-
stjóra spítalans, Ulises Iraheta, sem sendiherra barna. Einar safnar árlega styrkjum frá fyrirtækjum og efnafólki til
að endurnýja tækjabúnað spítalans og segir að bestu og erfiðustu dagarnir fyrir hver jól séu þeir dagar sem hann
heimsækir langveiku börnin á spítalanum.
SELFOSS Þrír voru handteknir eftir
líkamsárás á Hvíta húsinu,
skemmtistað á Selfossi, í fyrri-
nótt. Réðust þeir á fjórða mann
sem meðal annars nefbrotnaði í
átökunum. Var sá fluttur á sjúkra-
hús Suðurlands til aðhlynningar.
Samkvæmt varðstjóra lögregl-
unnar á Selfossi var einn aðili
handtekinn á staðnum og þurfti
hann að gista fangageymslur.
Hinir tveir árásarmannanna
hlupu á brott en voru þekktir og
handteknir í gærmorgun.
Öllum mönnunum var sleppt
seinnipartinn í gær eftir yfir-
heyrslur og telst málið upplýst.
- ovd
Þrír handteknir eftir slagsmál:
Líkamsárás á
balli á Selfossi
Tveir út af á Snæfellsnesi
Tveir bílar fóru út af með skömmu
millibili á Snæfellsnesvegi norðan-
verðum. Samkvæmt upplýsingum
varðstjóra var mikil hálka á þessum
slóðum og er það talið orsök útaf-
keyrslna í báðum tilfellum. Engin slys
urðu á fólki.
LÖGREGLUFRÉTTIR
GEORGÍA Sjö menn eru í framboði í
forsetakosningunum í Georgíu
sem fara fram laugardaginn 5. jan-
úar. Helsta málið í kosningabarátt-
unni er utanríkismál og varnar-
mál, hvernig haga beri sambandinu
við Evrópusambandið, ESB, Rússa
og Atlantshafsbandalagið NATO,
að sögn fréttavefjar The Georgian
Times.
Allir frambjóðendurnir nema
einn vilja að Georgía taki afstöðu í
öryggis- og varnarmálum og flest-
ir vilja að Georgía stefni að auknu
samstarfi við NATO og ESB, mis-
mikið þó. Mikheil Saakashvili for-
seti vill útrýma fátækt í Georgíu.
Hann hefur skýra utanríkisstefnu,
leggur áherslu á samstarf við
NATO og ESB og samstarf við
nágrannalönd í Kákasus. Levan
Gachechiladze vill líka ganga í
NATO og ESB.
Irina Sarishvili sker sig mest úr
hópi frambjóðenda. Hún talar
fyrir hlutleysisstefnu Georgíu til
að tryggja öryggi þjóðarinnar.
Hún vill að þjóðin dragi sig út úr
öllum hernaðarbandalögum og taki
ekki afstöðu með eða á móti Rúss-
um og Bandaríkjamönnum. Davit
Gamkrelidze vill leita til NATO.
Frambjóðandi sósíalista, Shalva
Natelashvili, vill færa Georgíu í
átt að NATO og ESB en halda samt
góðu samstarfi við Rússa. Gia
Maisashvili vill verða forseti fram-
tíðarinnar og vill bæta sambandið
við Rússa. Að því loknu sé hægt að
ganga í ESB. Vinsamlegt samband
við Bandaríkin sé í þriðja sæti.
Sjöundi frambjóðandinn, við-
skiptajöfurinn Badri Patarkats-
ishvili, vill stöðugleika í utanríkis-
málum. Hann er nú til rannsóknar
vegna ásakana um að hafa ætlað
að bylta núverandi ríkisstjórn
Georgíu en fær samt að bjóða fram
í kosningunum.
- ghs
Utanríkismál eru heitasta umræðuefnið í kosningabaráttunni í Georgíu:
Sjö frambjóðendur til forseta
EINN TIL
RANNSÓKNAR
Kosið verður
milli forseta-
frambjóðenda í
Georgíu í byrjun
janúar. Einn
frambjóðend-
anna, viðskipta-
jöfurinn Badri
Patarkatsishvili,
er til rannsóknar
vegna ásakana
um að hafa
lagt á ráðin um
byltingu.
Á FORSÍÐUNNI Hér segir frá því þegar íslenski
ósvikni jólasveinninn heimsótti Bloom-spítalann.
Einar hefur prýtt forsíður salvadorskra blaða fyrir jólin í
ára raðir og var framan á þessum tveimur í ár.
ÓSVIKIN JÓLAGLEÐI Barn í Simbabve
hleypur heim í faðm fjölskyldunnar
með jólatré. Þrátt fyrir að hafa prýtt
vistaverurnar með tré er ólíklegt að
það hafi notið hvítra jóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP