Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 40
BLS. 4 | sirkus | 28. DESEMBER 2007
„PASSA Í LEVIS-GALLABUX-
URNAR FRÁ 1998“ Það eru
margir sem ætla að taka
sig taki á nýju ári og
byrja í megrun. Enda
dreymir alla um að verða
eins og á gullaldarárun-
um 90 og eitthvað, fyrir
barneignir og breyttan
vöxt. Áramótaheit sem
ætti að vera bannað
með lögum;
gallabuxurnar ættu
fyrir löngu að vera
komnar á haugana
enda ár og dagar
síðan þær voru upp
á sitt besta.
áramótaheit
„MINNI DRYKKJA“ Eftir marineringu
jólahátíðarinnar eru þeir margir sem
ákveða að minnka áfengisneysluna. Ætli
einhver að koma sér lifandi í gegnum
janúarmánuð án brjóstbirtu skal sá hinn
sami biðja um kraftaverk.
„LIFA HEILBRIGÐARA LÍFI“
Þegar nýtt ár gengur í garð
tæmast vítamín- og
bætiefnarekkar apótekanna.
Flestir standa sig vel í að
innbyrða öll fjörefnin fyrstu
dagana í janúar en fljótlega
fer að síga á ógæfuhliðina,
Það er nánast full vinna að
taka inn tíu mismunandi
vítamín yfir daginn og
margir gefast upp á að
vakna hálftíma fyrr og
kjósa svefninn fram yfir
bætiefnin.
„EYÐA MINNA OG SPARA
MEIRA“ Af hverju ekki að
njóta lífsins svona rétt áður
en kreppan skellur á?
Leiðinlegt áramótaheit sem
leiðir af sér hafragraut í öll
mál, færri fegrunaraðgerðir
og leiðindi. Það vill enginn
vera með útbelgdan maga af
höfrum, augabrúnir eins og
Bjarni Fel og geta aldrei gert
sér glaðan dag.
„KÆRASTI/KÆRASTA Á ÁRINU“ Maðurinn á erfitt með að vera einn en
ætti ekki að strengja þess heit að finna sér maka á nýju ári enda fátt
jafn súrt og að vera með einhverjum bara til þess að forðast
einveruna. Með rétta hugarfarinu getur verið hresst að vera einn og
njóta þess að vera engum háður. Örlögin banka upp á þegar maður
er upptekinn við að gera eitthvað allt annað!
RÆKTA SAMBANDIÐ VIÐ ÆTTINGJANA Fallegt
áramótaheit sem er ógerlegt að taka með trompi í
dagsins önn nema þú hafir 48 tíma í sólarhring.
„AÐ VINNA Í
LOTTÓINU“
Það er
uppspretta
mikilla
vonbrigða og
betra að setja
Lottópeningana
í bauk eða
geyma þá undir
koddanum.
„AÐ VERA
FULLKOMINN Á
NÝJA ÁRINU“
Gleymdu því,
það gengur
aldrei upp.
„ÖRUGGT KYNLÍF“ Margir
heita því eftir óskemmtileg-
ar heimsóknir síðasta árs
upp á Húð og kyn að lifa
öruggu kynlífi. Þetta
áramótaheit á fyllilega rétt
á sér en erfitt er að standa
við það. Eins og máltækið
segir þá fiska þeir sem róa
og ekki er hægt að treysta
100% á smokkinn. Nær
væri að hafa áramótaheitið
„Ekkert kynlíf“ til að forðast
kynsjúkdóma.
„EKKI FLEIRI STÖÐUMÆLASEKTIR“ Heit sem er
ómögulegt að standa við enda virðast stöðu-
mælaverðir skrifa sektarmiðann um leið og
sekúnda er komin fram yfir.
SEM ÆTTI AÐ VARAST10
Skífulistinn er samantekt af mest seldu titlum í Skífunni og verslunum BT út um allt land.
Mýrin
Næturvaktin
Astrópía
Simpsons The Movie
Shrek The Third
Simpsons Sería 10
Die Hard 4
300
Spiderman 3 (2disc)
Simpsons Sería 9
Hairspray
Night at the Museum
Pirates of the Caribbean 3
Happy Feet
007 Casino Royale
Eragon
Da Vinci Code
Open Season
John Tucker Must Die
Köld Slóð
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
ÁRSLISTINN DVDÁRSLISTINN TÓNLIST
Garðar Thor Cortes Cortes 2007
Mugison Mugiboogie
Sprengjuhöllin Tímarnir okkar
Mika Life in a Cartoon Motion
Hjálmar Ferðasót
Ýmsir 100 Íslensk 80´s lög
Ýmsir Pottþétt 45
Eivör Human Child/Mannabarn
Villi Vill Myndin af þér
Ýmsir Pottþétt 44
Páll Óskar Allt fyrir ástina
Ýmsir Pottþétt 43
Megas Frágangur
Pavarotti Forever 2cd
Katie Melua Pictures
Gus Gus Forever
Björk Volta
Ýmsir 100 íslensk jólalög
Ýmsir Íslandslög 7
Jógvan Jógvan
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
Árslisti Skífunnar og BT
2007
1 2 3 4 5 6 7