Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 28
28. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● vinnuvélar
Vélar og þjónusta selja vélar og tæki
til verktaka- og landbúnaðarstarfa.
Þótt fyrirtækið sé ungt byggir það á
þrjátíu ára gömlum merg. Mikil sala
hefur verið á vélum hjá fyrirtækinu í ár
og Gísli Ólafsson sölustjóri segir bjart
framundan hjá verktökum.
„Það hefur verið mjög góð sala á þessu
ári og við bindum miklar vonir við það
næsta,“ segir Gísli Ólafsson, sölustjóri
hjá Vélum og þjónustu.
„Í þungavinnuvélunum höfum við
verið að selja vélar frá Hydrema sem
eru dönsk gæðaframleiðsla. Síðan erum
við með Yuchai sem eru kínverskar
vélar. Kínverjar hafa verið að ryðja sér
til rúms á alþjóðlegum mörkuðum og eru
orðnir mjög færir í smíði á ýmsum teg-
undum þungavinnuvéla. Yuchai-vélarnar
hafa notið mikilla vinsælda í Bandaríkj-
unum og eins á meginlandi Evrópu. Þær
hafa til að mynda verið söluhæstar í Sví-
þjóð þrjú ár í röð, en sænski markaður-
inn er mjög kröfuharður. Það er því mikill
gæðastimpill fyrir framleiðsluna.“
Gísli segir mikinn uppgang hafa verið
undanfarin ár og einnig sjái fram á bjarta
tíma.
„Það lítur út fyrir að það verði um 50
prósenta söluaukning í vinnuvélum hjá
okkur á því ári sem senn lýkur frá árinu
2006. Það felst fyrst og fremst í góðri sölu
á Hydrema-vélunum. Við náðum nýjum
samningi við Hydrema fyrir tveim-
ur árum og höfum því getað boðið hjóla-
gröfur og beltagröfur á mjög samkeppn-
ishæfu verði. Traktorsgröfurnar eru tals-
vert dýrari en hafa á móti margt umfram
aðrar vélar. Þær eru mun kraftmeiri en
sams konar vélar frá öðrum framleið-
endum. Síðan er hún öll með rafmagns-
sellói og vendigír sem eykur á liðleika
vélarinnar.“
Gísli segir Vélar og þjónustu helst vera
að þjónusta minni verktaka og einyrkja.
„Við höfum þó verið að selja vélar í tölu-
verðum mæli til Ræktunarsambands Flóa
og Skeiða sem er mjög öflugt fyrirtæki.
Þeir hafa verið að kaupa af okkur litlar
búkollur og hjólagröfur. Annars erum við
mest að selja til minni verktaka og ein-
yrkja og það er úti um allt land. Við höfum
verið í samstarfi við Höld á Akureyri.“
Hann segir einyrkja helst kaupa minni
vélar. „Það er algengt að einyrkjar fái sér
litlar beltavélar. Nýliðar eru að hasla sér
völl í smáum verkum. Þá seljum við tals-
vert af Hydrema og Venieri traktorsgröf-
um, en þær nýtast í ýmiss konar verk.“
Gísli sem er vélfræðingur að mennt á
langan feril að baki í vinnu við vélar og í
verktakastörfum.
„Þetta er annað árið sem ég starfa hjá
Vélum og þjónustu en var áður í verktaka-
iðnaðinum. Ég hef verið að vinna kringum
vinnuvélar frá því ég var 16 ára gamall og
maður hefur því séð gríðarlega þróun á
þessu sviði í gegnum árin.
Sú tölvutækni sem er komin í flestar
vélar í dag er langstærsta stökkið sem
ég hef orðið vitni að. Þetta eru auðvitað
í grunninn eins tæki þó alltaf sé verið að
þróa og bæta.“
Hann segir Vélar og þjónustu vera ungt
fyrirtæki sem eigi sér þó langa sögu.
„Fyrirtækið byggir á gömlum merg. Það
voru bræðurnir Bjarni Sighvatsson og
Karl Sighvatsson sem stofnuðu forvera
þess fyrir meira en þrjátíu árum síðan.
Fyrirtækið var þá mikið að selja landbún-
aðarvélar og þungavinnutæki og fyrir-
tækið hefur verið í því alla tíð, og mikið
verið selt gegnum tíðina af þungavinnu-
vélum, traktorum og ýmsum heyvinnslu-
vélum. Húsnæði fyrirtækisins á Járnhálsi
var byggt fljótlega eftir að fyrirtækið fór
af stað.“
- öhö
Mikil aukning í sölu vinnuvéla
á árinu sem senn er á enda
Gísli Ólafsson sölustjóri Véla og þjónustu vonast eftir áframhaldandi aukningu í sölu vinnuvéla. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hydrema-traktorsgrafa að störfum í Mývatnssveit.
2
VIÐ FJÁRMÖGNUM
ÞAÐ SEM UPP Á VANTAR!
Ertu að spá í atvinnutæki?
Nýttu þér upplýsingar og reiknivélar á
www.gf.is eða hafðu samband við ráðgjafa
okkar í síma 440 4400.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
2
3
5