Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 67
FÖSTUDAGUR 28. desember 2007 23
ÁSGEIR MARGEIRSSON
SKRIFAR UM VIÐSKIPTAÁRIÐ 2007
Árið 2007 var ár mótunar og
mikillar uppbyggingar hjá hinu
nýstofnaða fjárfestingarfélagi
Geysi Green Energy. Ég tel
afrakstur þessa fyrsta starfsárs
Geysis vera afar góðan, sem skýrt
kemur fram í eignasafni félags-
ins. Við lögðum upp með bjart-
sýni í hug, stefnufestu og sann-
færingu um að góð liðsheild
innlendra félaga á sviði orkumála
myndi styrkja útrás á sviði jarð-
varma.
Í mínum huga stendur upp úr
frá árinu 2007 sá sterki meðbyr
sem félagið fékk í uppbyggingar-
starfi sínu strax frá upphafi. Á
innlendum vettvangi fjárfesti
félagið í Hitaveitu Suðurnesja,
Jarðborunum, Enex, Exorku og
Keili miðstöð vísinda og fræða. Á
erlendri grund fjárfesti félagið
farsællega í Western Geopower í
Kanada, PNOC-EDC á Filipps-
eyjum og Enex Kína. Heildareign-
ir félagsins nema nú um 45 millj-
örðum kr. og eiga eftir að vaxa
verulega.
Vöxtur félagsins og það braut-
ryðjandastarf sem Geysir hóf með
verulegum fjárfestingum í endur-
nýjanlegri orku naut mikillar
athygli bæði innan lands og utan.
Fjölmargir hafa sýnt félaginu
áhuga sem fjárfestingarkosti og
sem samstarfsaðila. Að auki liggja
fyrir áhugaverðir fjárfestingar-
kostir sem félagið hefur verið að
meta á síðustu vikum.
Fyrstu skref einkavæðingar
Árið var íslenskum orkuiðnaði
mikil tímamót með þeim fyrstu
skrefum í einkavæðingu orkuiðn-
aðarins, sem voru tekin með sölu á
eignarhlut ríkissjóðs í Hitaveitu
Suðurnesja. Eðlilega varð sam-
keppni um eignarhlutinn í HS.
Hitaveita Suðurnesja er vel rekið
fyrirtæki, hefur á að skipa öflugu
starfsfólki með mikla þekkingu og
þar liggja margvísleg sóknarfæri.
Tilboð Geysis bar því vitni að
mikilvægt var að eignast mark-
tækan eignarhlut í innlendu orku-
fyrirtæki vegna útrásar félagsins.
Það kom mörgum undarlega fyrir
sjónir að ríkisstjórnin vildi selja
hlut sinn til einkaaðila, en helsti
samkeppnisaðili Geysis reyndist
vera fyrirtæki í opinberri eigu.
Seinna á árinu sannaðist hve illa
stjórnmál og viðskipti geta átt
samleið þegar forráðamenn Geys-
is, í góðri trú, samþykktu að sam-
eina félagið og Reykjavik Energy
Invest í orkuútrás Íslendinga og
sameina þar með kraftana í hörðu
samkeppnisumhverfi hreinna
orkugjafa úti í hinum stóra heimi.
Sú orrahríð stóð ekki mest á Geysi,
en skaðaði þá annars ágætu hug-
mynd að sameinaðir kraftar
Íslendinga auki líkur á árangri á
erlendri grund. Hugmyndin að
lágmarka áhættu almannafyrir-
tækis í útrás verkefna var skyn-
samleg, en svo fór sem fór. Að
ljúka því máli bíður nýs árs.
Ný löggjöf
Mikilvægt er að ljúka þeirri vinnu
sem iðnaðarráðherra hefur boðað,
að undirbúa nýja löggjöf um auð-
lindir á Íslandi. Nú þegar er kveð-
ið á um bókhaldslegan aðskilnað
einkaleyfisskyldrar starfssemi og
samkeppnisrekstrar. Nú á að skilja
alveg á milli. Verði það til að auka
sátt manna um starfsemina styð
ég framtakið heilshugar. Ég vara
hins vegar við of ríkum hömlum á
þennan atvinnurekstur. Það má
ekki kæfa framtak og frumkvæði
í orkuiðnaði.
Ég horfi með tilhlökkun til
næsta árs, enda áhugaverðir tímar
framundan og næg fjárfestingar-
verkefni í farveginum. Félagið
býr yfir afli fjármagns og hug-
mynda sem spennandi verður að
fylgja eftir. Ég er sannfærður um
að árið verði hluthöfum félagsins
til framdráttar. Stefnan er skýr:
Geysir Green Energy ætlar sér
enn stærri hluti á nýju ári og
stefnir í að verða umsvifamikið og
í fremstu röð fyrirtækja í jarð-
hitaiðnaði á heimsvísu innan
skamms tíma.
Bali og grænir orkugjafar
2007 hefur verið ár aukinna
al þjóðlegra umhverfisáherslna og
umræðu um hlýnun andrúmslofts-
ins. Við þá umræðu er mikilvægt að
hafa í huga að þjóðir heims hafa
einkum horft til þriggja þátta til að
sporna við losun gróðurhúsaloft-
tegunda út í andrúmsloftið frá
orkunotkun. Í fyrsta lagi orku-
sparnaðar, í öðru lagi tæknifram-
fara sem auka nýtingu núverandi
orkugjafa með áherslum á umhverf-
isvænleika og í þriðja lagi stórauk-
innar nýtingar endurnýjanlegra
orkugjafa í heiminum. Þessar
áherslur sjáum við í metnaðarfullum
markmiðum ríkja heims í nýtingu
grænna orkugjafa. Sú áhersla fell-
ur vel að uppbyggingu Geysis og
ætlum við okkur að nýta þau tæki-
færi sem þar bjóðast.
Við finnum það á þeim mikla
áhuga sem erlendir aðilar hafa
sýnt félaginu og erum staðráðin í
að nýta þau tækifæri sem bjóðast.
Sóknarfæri okkar Íslendinga
liggja í þeirri staðreynd að jarð-
hiti er vannýttur í heiminum. Við
berum vissa ábyrgð á að deila
verðmætri þekkingu með þeim
sem eiga slíkar auðlindir. Reynsl-
an kennir að miðlun tækniþekk-
ingar sé best tryggð með fjárfest-
ingum.
Við þessa miklu uppbyggingu
Geysis hefur verið afar mikilvægt
fyrir okkur, starfsmenn Geysis
Green Energy, að finna traust,
hvatningu og stuðning í okkar
verkum. Fyrir það vil ég þakka
um leið og ég óska öllum gæfu og
gengis á nýju ári.
Ár uppbyggingar og sóknar
ÁSGEIR MARGEIRSSON Forstjóri Geysis Green Energy.
B&L
Auglýsingasími
– Mest lesið