Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 28. desember 2007 11
ÚTFLUTNINGSMÁL Útflutningur
hrossa jókst heldur á milli ára 2006
og 2007. Í ár voru flutt út samtals
1.497 hross en 1.360 í fyrra. Fjölgun-
in nemur því 137 hrossum, sam-
kvæmt upplýsingum frá Bænda-
samtökunum.
Flest þeirra hrossa sem flutt voru
út á þessu ári fóru til Svíþjóðar.
Næststærsti hópurinn fór til Dan-
merkur og sá þriðji stærsti til
Þýskalands.
Þá má geta þess að tvö hross fóru
til Rússlands, eitt til Grænlands, eitt
til Frakklands og eitt til Belgíu.
Séu tölur þriggja síðustu ára
bornar saman við útflutningstölurn-
ar í ár sést að stöðugur samdráttur
hefur verið í útflutningnum þar til
nú að hann réttir heldur við. Árið
2004 voru flutt út samtals 1.578
hross en 2005 voru þau 1.501 talsins.
- jss
Útflutningur á hrossum hefur heldur aukist á milli ára:
Fleiri hross flutt út í ár en á síðasta ári
HROSS TIL ÚTLANDA Heldur fleiri hross voru seld til útlanda í ár heldur en í fyrra.
SVÍÞJÓÐ Mona Sahlin, formaður
sænska Jafnaðarmannaflokksins,
mælist vinsælasti stjórnmála-
maðurinn í Svíþjóð, samkvæmt
skoðanakönnun sem sænska
dagblaðið Aftonbladet hefur látið
gera. Mona Sahlin hefur stuðning
48 prósenta kjósenda.
Stuðningur Fredriks Reinfeldts
forsætisráðherra hrynur.
Reinfeldt hefur verið forsætis-
ráðherra í rúmt ár og er nú í öðru
sæti á lista yfir vinsælustu stjórn-
málamennina. Fimmti hver
kjósandi segist hafa litla sem
enga trú á honum og hann hefur
sérstaklega lítinn stuðning meðal
kvenna. - ghs
Stjórnmál í Svíþjóð:
Mona Sahlin
er vinsælust
MONA SAHLIN Formaður sænskra
jafnaðarmanna.
ALMANNATRYGGINGAR Lífeyrisþeg-
ar fá greiðsluáætlun ársins 2008
frá Tryggingastofnun ríkisins í
byrjun janúar. Fyrsta greiðsla á
nýju ári verður lögð inn á
reikninga fólks á nýársdag.
Í greiðsluáætluninni er yfirlit
um væntanlegar greiðslur frá
Tryggingastofnun og þær
forsendur sem stofnunin hefur
til útreikninga á lífeyrisgreiðsl-
um. Í greiðsluáætluninni er ekki
tekið tillit til breytinga sem
ríkisstjórnin hefur kynnt að
fyrirhugaðar séu á lífeyris-
greiðslum á árinu 2008. Það
verður gert þegar ný lög verða
samþykkt. - gar
Lífeyrir frá Tryggingastofnun:
Fyrsta greiðslan
á nýársdag
UMHVERFISMÁL Skipulagsstofnun
segir Vegagerðina ekki hafa farið
að lögum um umhverfismat þegar
hún breytti vegstæði nýs vegar
um Gautsdal í Reykhólahreppi
frá því sem kynnt var. Þetta
kemur fram á strandir.is.
Að því er segir á strandir.is
sneri Reykhólahreppur sér til
Skipulagsstofnunar vegna
vinnubragða Vegagerðarinnar.
Sérstaklega finnist heimamönn-
um aðfinnsluvert hvernig
vegurinn hafi verið færður út á
fossbrún í Gautsdal frá því sem
var upphaflega kynnt. Með því
skapist óþarfa slysahætta.
Fossinn eigi til að fjúka upp af
fossbrúninni og þá geti skapast
hálka og svellbunkar. - gar
Ólögleg vegagerð í Gautsdal:
Hnikuðu vegi
fram á fossbrún
REYKHÓLAR Heimamenn í Reykhóla-
hreppi eru ósáttir við legu nýs vegar.
Hækka útsvar fyrir styrk
Bæjarhreppur á Ströndum hefur eins
og fleiri sveitarfélög hækkað útsvars-
prósentuna í hámarkið 13,03 prósent
til að missa ekki af aukaframlagi
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Framlagið
er aðeins greitt sveitarfélögum sem
fullnýta heimild til útsvarsálagningar.
HRÚTAFJÖRÐUR
ÚTFLUTNINGUR HROSSA -
HELSTU ÚTFLUTNINGSLÖND
2007 2006 2005
Austurríki 36 33 53
Bretland 11 26 17
Sviss 65 52 77
Þýskaland 246 221 269
Danmörk 395 346 320
Finnland 83 126 162
Noregur 117 85 134
Svíþjóð 427 376 335
Bandaríkin 82 59 78