Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 58
28. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR20 ● fréttablaðið ● vinnuvélar
Kristján Guðmundsson skutlar
bílum í alla landshluta.
Grindvíkingurinn Kristján Guð-
mundsson er eigandi KG flutn-
inga og sérhæfir sig í bílaflutn-
ingum landshorna á milli. Hann
byrjaði árið 1999 með einn Ford
Pick-Up en í dag, átta árum
síðar, er hann með þrjá bíla í
notkun sem taka þrjá til sex bíla
á vagninn í einu.
„Ég datt inn í þetta á þannig
tíma að það varð allt kolvitlaust
í bílasölu skömmu síðar þannig
að þetta hefur gengið rosalega
vel,“ segir Kristján sem á fimm
bíla í dag. „Tveir af bílunum eru
sérstaklega ætlaðir til vetrar-
aksturs en þrír eru virkir núna.
Þá er ég með þrenns konar
vagna, einn fyrir þrjá bíla,
annan fyrir fjóra til fimm bíla
og þann þriðja sem tekur allt að
sex bíla í einu.“
Kristján segir þetta afskap-
lega þægilega flutninga þar sem
bílarnir séu keyrðir upp á vagn-
ana. „Við erum fljótir að ferma
og afferma bílana og fáum ekki
í bakið af því,“ segir hann og
hlær.
Spurður um hvert hann sé helst
að keyra bílana segir Kristján:
„Við erum aðallega að keyra bíla
út á land fyrir bílaumboðin og þá
förum við bara hringinn eins og
hann leggur sig.“ - sig
Flytur allt að sex bíla í einu
Kristján Guðmundsson, eigandi KG flutninga, sérhæfir sig í bílaflutningum og stendur hér við vagn sem tekur allt að sex bíla í
einu. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
16
Yuchai
Með tilboðinu fylgja tvær skófl ur og hraðtengi
Síðustu vélarnar af þessum ódýru
og vinsælu smágröfum frá Yuchai
á sérstökum tilboðsverði
Ótrúlegt
TILBOÐ
Fyrstur kemur,
fyrstur fær
Venieri fyrir veturinn, Venieri fyrir vorverkin
Með góðum nýársafslætti
til 10. janúar
Snjótönn / fjölplógur Snjótönn / fjölplógur
Snjótönn / fjölplógur
Vargur í vinnu, víkingur í viðvikum
stórar Hardox skófl ur • vökvadrifnir snjóblásarar • snjótennur