Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 12
12 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Um fimmtán starfs-
menn stjórnarráðsins skipta um
vinnustað um áramót þegar til-
færsla verkefna milli ráðuneyta
tekur gildi. Talsvert fleiri fá nýja
yfirboðara þegar heilu stofnanirn-
ar flytjast frá einu ráðuneyti til
annars.
Umfangsmestur er flutningur
Tryggingastofnunar frá heilbrigð-
isráðuneyti til félagsmálaráðuneyt-
isins sem um leið fær nýtt heiti;
félags- og tryggingamálaráðuneyti.
Sjúkratryggingar verða áfram á
könnu heilbrigðisráðuneytis.
Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneyti verða sameinuð um ára-
mót en Einar K. Guðfinnsson hefur
farið með bæði ráðuneytin frá
myndun ríkisstjórnarinnar í vor. Þá
verður Hagstofan hefðbundin ríkis-
stofnun undir forræði forsætis-
ráðuneytisins en ekki ráðuneyti
eins og verið hefur.
Þeir málaflokkar sem mest kveð-
ur að og færast milli ráðuneyta eru
sveitarstjórnarmál sem flytjast úr
félagsmálaráðuneyti í samgöngu-
ráðuneyti og ferðamál sem færast
úr samgönguráðuneyti í iðnaðar-
ráðuneytið. Þá flyst umsýsla Kefla-
víkurflugvallar frá utanríkis-
ráðuneyti til samgönguráðuneytis,
stjórnsýsla landbúnaðarháskólanna
færist frá landbúnaðarráðuneyti til
menntamálaráðuneytis, málefni
fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu
flytjast frá dóms- og kirkjumála-
ráðuneyti til viðskiptaráðuneytis
og sá þáttur matvælamála sem var
í umhverfisráðuneytinu fer til
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytisins. Þá færast landgræðsla
og skógrækt – utan nytjaskóga –
frá landbúnaðarráðuneyti til
umhverfisráðuneytis.
Með tilfærslu verkefna flytjast
starfsmenn á milli ráðuneyta, flest-
ir með flutningi sveitarstjórnar-
mála til samgönguráðuneytis og
tryggingamála til félags- og trygg-
ingamálaráðuneytis.
Flutningur viðskiptaráðuneytis-
ins úr Arnarhvoli í núverandi húsa-
kynni landbúnaðaráðuneytisins við
Sölvhólsgötu er fyrirhugaður um
mánaðamótin janúar-febrúar. Í
fyrstu verður þar þröng á þingi því
ekki er ráðgert að landbúnaðurinn
flytjist í sjávarútvegsráðuneytið í
Sjávarútvegshúsinu við Skúlagötu
fyrr en með haustinu.
bjorn@frettabladid.is
HREINSAÐ TIL Gíraffi leggur á sig
erfiðið sem hann þarf til að teygja
sig alla þessa löngu leið niður að
jörðinni til að ná sér í epli sem féll af
tré í dýragarðinum í Sidney, höfuð-
borg Ástralíu. NORDICPHOTOS/AFP
Fólk og málaflokkar flytjast
milli ráðuneyta um áramót
Umfangsmikil breyting verður á stjórnarráðinu um áramót þegar ráðuneyti verða sameinuð, málaflokkar
fluttir á milli ráðuneyta og stofnanir færðar til. Hátt í fimmtán starfsmenn flytjast á milli ráðuneyta.
SJÁVARÚTVEGSHÚSIÐ Þótt starfsemi landbúnaðarráðuneytisins flytjist ekki í Sjávar-
útvegshúsið við Skúlagötu fyrr en í haust tekur sameining sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneyta gildi 1. janúar.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Umtals-
verðar breytingar verða á verksviði
ráðuneytis Jóhönnu um áramót þegar
tryggingamál færast undir þess forræði.
Um leið flytjast sveitarstjórnarmál til
samgönguráðuneytisins.
■ Lífeyristryggingar og félagslegar
bætur færast frá heilbrigðisráðu-
neyti til félags- og trygginga-
málaráðuneytis.
■ Sveitarstjórnarmál færast frá
félagsmálaráðuneyti til sam-
gönguráðuneytis.
■ Ferðamál færast frá samgöngu-
ráðuneyti til iðnaðarráðuneytis.
■ Menntastofnanir landbúnaðar-
ins færast frá landbúnaðarráðu-
neyti til menntamálaráðuneytis.
■ Landgræðsla og skógrækt (utan
nytjaskóga) færast frá landbún-
aðar ráðuneyti til umhverfisráðu-
neytis.
■ Vatnamælingar færast frá
iðnaðarráðuneyti til umhverfis-
ráðuneytis.
■ Málefni matvæla færast frá
umhverfisráðuneyti til sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðu-
neytis.
■ Einkaleyfisstofa færist frá
iðnaðarráðuneyti til viðskipta-
ráðuneytis.
■ Málefni Keflavíkurflugvallar
færast frá utanríkisráðuneyti til
samgönguráðuneytis.
■ Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
færist frá viðskiptaráðuneyti til
iðnaðarráðuneytis.
■ Málefni fasteigna, fyrirtækja- og
skipasala færast frá dóms- og
kirkjumálaráðuneyti til við-
skiptaráðuneytis.
■ Hagstofan breytist úr ráðuneyti í
ríkisstofnun.
HELSTU
BREYTINGAR Á
STJÓRNARRÁÐINU
ÍÞRÓTTIR Landsmót hestamanna
2010 verður á Vindheimamelum í
Skagafirði ef samningar nást við
heimamenn. Á heimasíðu
Skagafjarðar kemur fram að
fjórar umsóknir hafi borist um að
halda mótið árið 2010. Umsókn-
irnar hafi verið frá umsjónar-
mönnum Vindheimamela í
Skagafirði, Melgerðismela í
Eyjafirði, Gaddstaðaflata við
Hellu og Víðidals í Reykjavík.
Stjórn Landsmóts hestamanna
hafi ákveðið að ganga til samn-
inga við Skagfirðinga og ætli að
ljúka þeim í síðasta lagi 1. júní
2008. - gar
Landsmót hestamanna 2010:
Samið við
Skagfirðinga
VINDHEIMAMELAR 2002 Forseti Íslands
og Anna Bretaprinsessa á Landsmóti
hestamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BANDARÍKIN Leikarinn og bardaga-
listakappinn Chuck Norris hefur
kært útgefanda bókar sem inni-
heldur fjögur hundruð goðsagna-
kenndar staðreyndir um hann.
Hann segir útgefendurna notfæra
sér nafn sitt á ólöglegan hátt og
krefst skaðabóta.
Bókin, sem heitir „Sannleikur-
inn um Chuck Norris: 400 stað-
reyndir um heimsins hörðustu
manneskju“, er byggð á lista yfir
ímyndaðar staðreyndir um Norris,
sem hefur verið í dreifingu á
netinu síðastliðin tvö ár. Þar er
grínast með ímynd Norris sem
hörkutól.
Meðal staðreynda sem finna má
í bókinni eru: „Tár Chuck Norris
lækna krabbamein. Verst að hann
hefur aldrei grátið,“ og „Chuck
Norris sefur ekki. Hann bíður.“
Samkvæmt fréttavef Reuters
segir Norris að titill bókarinnar
gefi til kynna að staðreyndirnar
séu sannar, en ekki grín. Hann
hafi viljað vernda nafn sitt og því
lagt fram kæru á hendur útgef-
endunum.
Norris er einna frægastur fyrir
leik sinn í sjónvarpsþáttunum
Walker, Texas Ranger sem fram-
leiddir voru frá 1993 til 2001. Þar
lék hann hörkutólið Walker sem
barðist gegn glæpum í Texas-ríki
Bandaríkjanna. - sþs
Leikarinn Chuck Norris er ósáttur við bók með ímynduðum staðreyndum um sig:
Segir tár sín ekki lækna krabbamein
CHUCK NORRIS Hörkutóls-leikarinn á
kosningafundi með Mike Huckabee
sem sækist eftir forsetaframboði fyrir
Repúblikanaflokkinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
■ Chuck Norris hefur talið upp í
óendanleikann. Tvisvar.
■ Chuck Norris les ekki bækur.
Hann starir á þær þar til hann
fær þær upplýsingar sem hann
vill.
■ Það er engin haka undir skeggi
Chuck Norris, bara annar hnefi.
■ Chuck Norris getur drekkt fiski.
■ Chuck Norris getur reimað
skóna sína með fótunum.
■ Það er engin þróunarkenning,
eingöngu listi yfir dýrategundir
sem Chuck Norris leyfir að lifa.
„STAÐREYNDIR“
UMHVERFISMÁL Vefurinn Náttúran.
is hefur skorað á björgunarsveit-
ir landsins að taka aftur við rusli
þeirra flugelda sem þær selja
fyrir áramótin.
Fram kemur á vefnum að
áskorunin felist í því að hjálpar-
sveitir taki frumkvæði og auglýsi
að þær taki við ruslinu og sjái til
þess að því sé komið til endur-
vinnslu. Þá segir þar að samvinna
milli hjálparsveita og endur-
vinnslustöðva gæti orðið með
besta móti og sveitirnar myndu
verða ábyrg samtök sem hugi að
umhverfisvernd. - þeb
Skora á björgunarsveitir:
Björgunarsveit-
ir taki rakettur
ANNÁLL 2007
Í DAG KL. 12:30
Farið yfir helstu viðburði viðskiptalífsins á árinu 2007
skemmtilegri