Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2008, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 11.01.2008, Qupperneq 46
Á rið 2007 var ekkert venjulegt ár. Þetta var ekki ár meðaljónsins heldur lúxusjónsins sem naut sín í botn í allri velmeguninni. Árið hófst með þvílíkum látum. Það var þó ekki bara hávaðinn frá tívolíbombunum sem olli ringul- reiðinni heldur þaut úrvalsvísitalan upp eins og raketta af stærstu gerð meðan þjóðin gapti af undrun og aðdáun. Hlutabréfagamblarar skál- uðu í dýrasta kampavíninu og hlógu að þeim sem geymdu sparifé sitt í öruggri ávöxtun. Þeir sem áttu aðeins minni peninga gátu þó ekki verið minni menn og tóku bara lán til að geta verið jafn arfasmart og hinir moldríku. Þeir sáu fyrir sér að áður en árið yrði búið myndu þeir komast í klíkuna. Velmegunin draup af hverri lif- andi veru og það var alveg sama um hvað var rætt, dýru hlutirnir áttu alltaf vinninginn. Kven- peningurinn sprangaði um með Miu Miu eða Chloé-töskur, með Gucci-sólgleraugu í hárinu, í leggings, leðurstígvélum og í víðum stuttum kjólum í anda sjöunda áratugarins. Svo voru það skræpóttu fötin sem tröllriðu öllu, skærbleikar leggings og marglit hettupeysa, sem eru að kom- ast í flokk með Buffalo-skóm og öðrum tísku- slysum. Þjóðin nennti þó ekki að hanga lengi í einu á Íslandi og því urðu ferðalög til fjarlægra landa aðalmálið. Kína og Indland já takk, helst í fylgd með forsetanum eða ein- hverjum stórlaxinum úr við- skiptalífinu. Þegar leið að sumri fór að bera á óvenju mikilli tjaldvagnasölu enda var enginn maður með mönnum nema eiga eitt slíkt kvikindi, hvort sem græjan var staðgreidd eða sett á 100% lán. Þeir allra hörðustu létu sig hafa það að vinna aukavinnu á Skalla til að geta borgað af herlegheitunum. Þeir sem áttu örlítið meiri aur keyptu sér nokkra hektara með þyrlu- palli og flugbraut. Allri velmeguninni fylgdi þó eitt hræðilegt vandamál, sístækkandi vömb og skvapkenndir bossar. Til þess að minnka ummál- ið flykktist þjóðin í „Boot Camp“ en vandamálið var bara að sökum stöðugra útlandaferða og partíhalds varð mætingin svolítið stopul og því minnkaði vömbin ekki neitt og bossarnir héldu áfram að fylla allt of vel út í niðurmjóu gallabux- urnar. Þegar kom að heimilum sammæltist þjóðin um það að hvítar höldulausar eldhúsinn- réttingar væru það eina sem vit væri í og ekki var svarta granítið langt undan. Stofur landsmanna voru fylltar af leðri, helst hvítu eða svörtu og nauðsynlegt var að eiga flatskjá sem þakti heil- an vegg. Og svo var það kaffihúsakaffivélin sem var sett beint inn í innréttinguna svo hún klipi ekki af borðplássinu, ilmandi sojalatte heima, er hægt að biðja um eitthvað meira? Þegar líða tók á árið fór þó að halla undan fæti og í örvæntingu sinni byrjuðu menn á því að reyna að losna við Reinsinn áður en bankinn tæki hann upp í hluta- bréfaskuld meðan aðrir drukku til að gleyma og þá var gott að eiga sína eigin bjórdælu í kjallaranum. Þ jóðin var í hálfgerðu losti þegar hún tók á móti nýja árinu en lúxusjóninn vissi ekki alveg hvernig hann gæti aftur orðið meðaljón og því var ekkert í stöðunni en að gleyma yfirvof- andi blankheitum með fullt fangið af flugeldum og byrja að skjóta þessu upp með bros á vör. Timburmenn nýja ársins gerðu þó vart við sig og sumir ákváðu að vera undir sæng í nokkra daga til að hugsa sinn gang. Þeir sem ekki höfðu lesið Leyndarmálið tóku bókina úr plastinu og drukku í sig fróðleikinn áður en þeir pöntuðu sér tíma hjá spákonu til að athuga hvort þetta kreppu- tímabil yrði ekki örugglega stutt. Meðan menn lágu undir feldi komust þeir að því að andlegu jafnvægi yrði aldrei náð innan um svart/hvít leð- urhúsgögn og því var rokið á netið og fjárfest í bambuspanil frá Kína til að gera húsið hlýlegra. Á meðan meðaljóninn beið eftir sendingunni hugsaði hann um hvernig hann gæti náð sér á strik án þess að þurfa að vinna eitthvað sjálfur, eða minnka við sig á einhvern hátt. Árið 2008 verður mikið heilsuár þótt Boot Camp detti algerlega úr tísku. Þeir sem voru á mestri fartinni 2007 ættu að búa sér til matjurtagarð til að ná innri friði. Það verður nefnilega „inn“ að vera meðvitaður um umhverfið og eigin heilsu og það er hægt að slá tvær flugur í einu höggi. Það mun ekkert jafnast á við að geta labbað berfætt- ur út í garð eftir eigin hveitigrasi í pressuna áður en hugleiðsla morgunsins hefst. Þeir best stæðu munu halda til Indlands í leit að innri friði á jógasetri en hinir munu láta sér nægja að labba Fimmvörðuhálsinn í útivistarfötunum frá því í fyrra. Þegar heilsan verður komin í lag, maginn fullur af vítamínum, grænum mat og bætiefn- um, verður ekkert annað í stöðunni en að gramsa í geymslunni eftir skvísufötunum sem voru orðin allt of lítil en munu smellpassa í sumar. Til að poppa gömlu skvísufötin upp verða allar ger- semarnar úr Tiffany‘s, Bulgari og Cartier dregn- ar fram og öllu blandað saman. Þegar kreppir að mun glamúrinn blómstra og því verður 2008 eitt mesta glysár áratugarins ef árið 2000 er mínusað frá. Þegar þjóðin verður komin í svona gott form mun hún ekki hika við að skokka á milli staða og nota umhverfisvæna smábílinn í neyð. Það mun líka algerlega detta úr tísku að fá far með einkaþotum því hugsandi fólk tekur ekki þátt í svona vitleysu. Flíkin: Allt sem hægt er að setja axlapúða í og nóg af glingri. Innanstokksmunurinn: Panill, gamlir fataskápar og speglahús- gögn. Aðalverslunin: Bónus kemur sterkur inn í blankheitunum. Mesti lúxusinn: Að eiga húsnæði og þeir allra efnuðustu munu láta „event“-fyrirtæki skipuleggja fermingar. Bíll ársins: Vel pimpaður og stífbónaður Range Rover. Flík ársins: Skræpóttu fötin úr Nakta apanum, eins og þau leggja sig. Fara hiklaust í sama flokk og Buffalo-skórnir frá síðasta áratug og satínskikkjurn- ar með herðapúðunum frá áratugnum þar á undan. Taska ársins: Stærsta týpan af Miu Miu. Hárgreiðslan: Það var enginn töff nema að státa af klippingu í anda Viktoríu Beckham og strákarnir notuðu allt of mikið af hárgeli. Innanstokksmun- urinn: Hvít höldulaus eldhúsinnrétting og kristalsljósakróna. Ferðalagið: Kína og Tenerife. Aðalverslunin: Saltfélagið og Kisan. Mesti lúxusinn: Einkaþotan, sem varð svo að táknmynd umhverfissóðaskapar þegar leið á árið. Flugferð með einkaþotu aðra leiðina til London mengar jafn mikið og jeppi á heilu ári. Líkamsræktin: Boot Camp. Drykkurinn: Kampavín og Mojito. Græjan: Kaffihúsakaffivél fyrir heimilið og bjórdæla fyrir heimilisföðurinn. LúxusjóninnÞegar nýtt ár gengur í garð er ekki úr vegi að skoða fyrir hverju þjóðin féll árið 2007 og hvað mun verða aðalmálið 2008. Sirkus leitaði til fjölda fólks úr öllum kimum þjóðfé- lagsins og bað það um að nefna það sem hæst bar á liðnu ári og hvert þjóðin myndi stefna 2008. Lúxuskerran Range Rover fékk flest stig sem bíll ársins 2007 og voru flestir sammála um að ansi margir þyrftu að gíra sig niður og skipta föðurskipinu út fyrir ódýrara og umhverfisvænna farartæki 2008. verður að meðaljóni Bíllinn: Fíat 500 eða umhverfisvænn og sparneytinn smákaggi. Klippingin: Permanent í heimahúsi. Ferðalagið: Fimmvörðuhálsinn og þeir allra múruðustu munu fara til Afríku og ættleiða barn í leiðinni. Græjan: Tveggja hestafla blandari og endurbætt útgáfa af iPhone. Líkamsræktin: Hugsandi einkaþjálfari og hlátur rope-jóga. Drykkurinn: Kókosvatn og vítamínbætt diet- kók. BLS. 10 | sirkus | 11. JANÚAR 2008
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.