Fréttablaðið - 10.02.2008, Blaðsíða 20
20 10. febrúar 2008 SUNNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI:
Hörður
Blöndal
hafnarstjóri
er 62 ára.
Jóhann
Bachmann
Ólafsson er
32 ára.
MEKRISATBURÐIR:
2005 Norður Kórea gerir kjarn-
orkuvopnaeign landsins
opinbera.
1984 Fjórir menn af Fjallfossi
drukkna milli skips og
bryggju á Grundartanga.
1974 Landamærastríð milli
Írans og Íraks brýst út.
1962 Tveir farast og 26 bjarg-
ast þegar togarinn Elliði
frá Siglufirði sekkur undan
Öndverðarnesi.
1944 Þýskar flugvélar varpa
sprengjum að olíuskip-
inu El Grillo sem liggur á
Seyðisfirði svo það sekkur.
1943 Orlofslög, sem tryggja
einn frídag fyrir hvern
unninn mánuð, eru sett á
Alþingi.
1938 Björgunarskútan Sæbjörg
er vígð í Reykjavík.
Laura Ingalls Wilder var höfundur bókanna um
húsið á sléttunni sem vinsælir sjónvarpsþætt-
ir voru gerðir eftir. Í bókunum lýsir
hún lífi fjölskyldu sinnar í Amer-
íku landnemanna á nítjándu öld.
Laura fæddist 1867 í Wisconsin
og var mjög ung þegar faðir henn-
ar Charles Ingalls flutti með fjöl-
skylduna til Kansas inn á lendur
indjána en fjöldkyldan var svo á
faraldsfæti um Ameríku í nokk-
ur ár. Laura var tólf ára þega þau
settust að í Dakota í bænum De
Smet sem þá var að byggjast upp
og þar gerist sagan um litla húsið
á sléttunni. Laura Ingalls hóf að
kenna 15 ára að aldri til að drýgja
tekjur fjölskyldunnar en hætti því þegar hún gift-
is Almanzo Wilder átján ára. Þau eignuðust eina
dóttur, Rosie, og unnu bæði hörðum höndum á
búgarði sínum uns Almanzo lamaðist í slysi, en
hann náði aldrei fullri heilsu eftir
það. Þau bjuggu við kröpp kjör
þangað til bækur Lauru um æsku-
minningar hennar fóru að selj-
ast og Rosie dóttir þeirra hjálpaði
þeim að fjárfesta í hlutabréfum.
Í verðbréfahruninu 1929 misstu
þau allar eigur sínar og þurftu að
treysta á dóttur sína um fram-
færslu. Laura skrifaði stöku greinar
fyrir blöð og hélt áfram að skrifa
bækur og bjuggu hjónin við fjár-
hagslegt sjálfstæði þegar Almanzo
dó árið 1949. Bækur hennar hafa
verið þýddar á mörg tungumál
og njóta enn mikilla vinsælda. Laura Ingalls var
níræð þegar hún lést.
ÞETTA GERÐIST: 10. FEBRÚAR
Laura Ingalls Wilder lést
Á dögunum var stofnað Jafnrétt-
indafélag Íslands og er formaður
þess ungur laganemi í Háskólanum í
Reykjavík, Ólafur Hannesson.
Ólafur segir kveikjuna að stofnun
félagsins hafa verið umræðuna síð-
astliðið ár meðal annars um liti á ung-
barnafatnaði fæðingadeildarinnar og
tillöguna um breytingar á orðinu ráð-
herra. Hann segir umræðuna sem fór
af stað í kjölfarið á bloggsíðum hafa
verið grófa og fyrir neðan allar hell-
ur og honum og fleirum fannst vanta
vettvang fyrir siðmenntaðri umræðu
um þessi mál.
„Tilgangurinn með félaginu er að
koma umræðunni í jafnari stöðu og
vonandi siðmenntaðri og að fólk tali
opinberlega án þess að vera með leið-
indi og ljótt orðbragð,“ segir Ólafur.
„Það er verið að niðurlægja orðið
jafnrétti og þegar maður las blogg-
in og fylgdist með umræðunni átti
maður bágt með að trúa orðbragðinu
sem kom frá fólki í skjóli nafnleynd-
ar. Okkur fannst vanta félag fyrir þá
sem eru á móti kynjakvótum en vilja
fá jafnræði fyrir bæði kynin.“
Ólafur segist ekki geta séð að þau
jafnréttisfélög sem fyrir eru berj-
ist fyrir bæði kynin og umræðan um
jafnréttismál í þjóðfélaginu sé of eins-
leit. Hann segir oft búið að tala um að
stofna félag sem berjist fyrir bæði
kynin og vill ekki kalla nýja félagið
karlréttindafélag því markmið félags-
ins sé jafnrétti fyrir alla.
„Feministafélagið er að berjast
fyrir jöfnuði en við viljum berjast
fyrir jafnrétti en þó við séum ekki að
berjast eins þá erum við að berjast
fyrir svipuðum hlutum og þess vegna
ætti ekki að gera lítið úr neinum. Það
er munur á jafnrétti og jöfnuði og að
brjóta á jafnrétti til að ná jöfnuði er
ekki gott. Við viljum að allir hafi það
gott en það þarf að breyta þjóðfélag-
inu án þess að þvinga það,“ segir Ólaf-
ur og á þar við kynjakvóta sem honum
og félgsmönnum finnst ósanngjarn.
„Það er fáránlegt að velja karl bara
af því að hann er karl eða konu af því
að hún er kona. Það á að velja fólk
vegna hæfileika. Jafnrétti sem slíkt
er jafn réttur fólks og það er ekki til
neitt sem heitir jákvæð mismunun.
Það næst ekki jafnrétti með því að
mismuna.“
Fyrir hálfum mánuði hélt Jafnrétt-
indafélgið undirbúningsfund í Háskóla
Reykjavíkur og bauð alþingismönnum
allra flokka að koma og flytja ávörp
og svara spurningum. Allir flokkar
sendu fulltrúa nema Frjálslyndir og
segir Ólafur fundinn hafa verið mjög
áhugaverðann og að miklar umræður
hafi orðið.
„Okkur finnst skipta máli að fólk
hafi tengingu við þá sem stjórna og
það hvað þeir eru að hugsa. Við feng-
um alþingismenn til að koma og tala
við fólkið og ætlum að gera þetta
reglulega. Þarna fóru fram fyrir-
spurnir og svör og það var spjallað um
jafnréttið eins og það er í dag. Ætlun-
in er svo að koma upp heimasíðu fyrir
félagið en enn sem komið er notumst
við við bloggsíðuna mína oliha.blogg.
is fyrir umræður og svo getur fólk
skráð sig í félagið á jafnretti@sim-
net.is og sent þangað fyrirspurnir og
fengið svör. Við viljum að fólk taki
þátt í að móta félagið með okkur og
byggja það upp.“
Undanfarið hefur hópurinn stækkað
og hefur fólk skráð sig í félagið í hverri
viku. Ólafur ætlar að boða til aðalfund-
ar á næstunni þar sem fólk getur skráð
sig og spjallað og hann er bjartsýnn á
framtíð nýja félagsins. „Góðir hlutir
gerast hægt en gerast samt sem áður,
það þarf bara þolinmæði til að fylgja
þeim eftir.“ heida@frettabladid.is
JAFNRÉTTINDAFÉLAG ÍSLANDS: STOFNAÐ Á DÖGUNUM
Vill siðmenntaðari umræðu
BERJAST FYRIR ALLA Ólafur Hannesson, laganemi og formaður nýstofnaðs jafnréttindafélags, telur þörf á félagi sem berst fyrir alla.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
THOMAS BERNHARD FÆDD-
IST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1931.
„Það sem skiptir máli
er hvort við viljum ljúga
eða segja sannleik-
ann og skrifa sannleik-
ann, jafnvel þó það geti
aldrei orðið sannleikur
og sé aldrei sannleikur.“
Thomas Bernhard rithöfundur var af mörgum tal-
inn snillingur. Hann þótti kaldur og óvæginn í
gagnrýni sinni á aðra rithöfunda og hirti lítið um
álit annara. Bernhard átti ófá hneyksli að baki
þegar hann lést árið 1989.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
heiðruðu minningu okkar ástkæra,
Sigmundar Sigurgeirssonar
Þorragötu 9,
og sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát hans og
útför.
Ásdís Sigurðardóttir
Sigurgeir Ó. Sigmundsson Ingunn Mai Friðleifsdóttir
Margrét Sigmundsdóttir Bjarni Ólafur Ólafsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigurásta Guðnadóttir
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu-
daginn 11. febrúar og hefst athöfnin kl. 11.00. Blóm og
kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hinnar
látnu er bent á Minningarsjóð Elli- og hjúkrunarheim-
ilisins Grundar.
Guðni G. Sigurðsson Þóra Hallgrímsson
Benedikt G. Sigurðsson Áslaug Þorleifsdóttir
Ingibergur Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Fjóla Bjarnadóttir
Hlíðarhúsum 3, Reykjavík,
áður á Grundarvegi 17, Ytri-Njarðvík,
lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 3. febrúar sl. Útför
hennar fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn
11. febrúar kl. 14.00.
Oddbergur Eiríksson
Kolbrún Oddbergsdóttir Sveinn Sigurðsson
Guðmundur Oddbergsson Ingibjörg Jónsdóttir
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín,móðir okkar
tengdamóðir,amma og langamma,
Guðleif Ólafsdóttir
hjúkrunarkona, Sogavegi 172,
lést á Borgarspítalanum hinn 7. febrúar. Jarðsungið
verður frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28. febrúar
kl.15.00.
Júlíus Helgi Helgason
Ásthildur Ketilsdóttir
Sigríður Ketilsdóttir
Guðmundur Júlíusson
Ágúst Júlíusson
Ólafur Júlíusson Rósa Erlendsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.