Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.02.2008, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 14.02.2008, Qupperneq 2
2 14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR HAPPDRÆTTI Íslensk getspá ætlar, í samstarfi við happdrættisfyrirtæki í átta öðrum Evrópulöndum, að byrja með nýtt risalottó og er stefnt að því að dráttur hefjist í lok ársins. Aðalvinningurinn verður á bilinu 700-900 milljónir króna í hverri viku. Nýja lottóið gengur undir vinnuheitinu Eurolottó eða Euromillions en ekki er komin niðurstaða í nafnið enn. „Þetta hefur verið lengi í vinnslu,“ segir Stefán Konráðs- son, forstjóri Íslenskrar getspár. „Stefnt er að því að þetta hefjist í lok þessa árs en það er ennþá á vinnslustigi. Verkefnið er mjög spennandi. Við erum að tala um verulega háa vinninga,“ segir hann. Dráttur í nýja lottóinu verður vikulega og alltaf á föstudögum. Fyrsti vinningur verður á bilinu 700 til 900 milljónir en til samanburðar má nefna að fyrsti vinningur í Víkingalottóinu er venjulega 50-100 milljónir íslenskra króna. Til viðbótar aðalvinningi upp á tæpan milljarð kæmu átta til níu undirvinnings- flokkar. Hópurinn sem stendur að nýja lottóinu eru Víkinga- lottó-löndin Ísland, Svíþjóð, Danmörk, Noregur, Finnland og Eistland, ásamt Hollandi, Ítalíu og Þýskalandi. „Tugir milljóna manna koma að þessu og gera þetta meira spennandi en Íslendingar eru mjög pottasækin þjóð og hafa lengi verið,“ segir Stefán. Íslensk Getspá hefur ekki sótt um leyfi fyrir nýja lottóið enda undirbúningurinn tekið langan tíma. Stefán segir að marga enda þurfi að hnýta til að allt gangi upp en á von á því að niðurstaða verði komin um miðjan apríl. „Á undanförnum vikum höfum við fengið inn samstarfsaðila til að stækka pottinn. Þess vegna eru Ítalir og Þjóðverjar komnir inn. Eftir eru ýmis tækniatriði, til dæmis varðandi öryggismál, hvenær drættir eiga sér stað, negla endanlega niður á hvaða vikudögum er dregið og klukkan hvað því að ekki eru allir á sama tíma. Það þarf að samræma margt,“ segir hann. „Þetta verður gríðarlega stórt og öflugt lottó. Við horfum jákvæðum augum til þess því að okkar starf- semi gengur út á að styðja öryrkja, íþróttahreyfing- una og ungmennafélögin og við erum stöðugt að leita leiða til að auka okkar framlag. Samkeppni erlendis frá með ólöglegum spilum eykst stöðugt þannig að við reynum okkar besta að standa okkur í samkeppninni.“ ghs@frettabladid.is STÓRT OG ÖFLUGT „Þetta verður gríðarlega stórt og öflugt lottó,“ segir Stefán Konráðsson, forstjóri Íslenskrar Getspár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Milljarður í vinning í nýju Evrópulottói Allar líkur eru á því að nýtt evrópskt lottó hefji göngu sína í lok ársins. Níu lönd standa að því og verður hæsti vinningurinn upp undir einn milljarður króna. Dregið verður á föstudögum. Lottóið hefur vinnuheitið Eurolottó. Grísagúllas í súrsætri sósu Réttur dagsins 0,5 ltr. Egils gos fylgir með 749 kr. Þorbjörg, eruð þið ekki með réttu umhverfisráði? „Við þurfum kannski bara að fara í umhverfismat.“ Furðuleg uppákoma varð í umhverfis- og samgönguráði á þriðjudag þegar tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson, héldu Helgu Jóhannsdóttur tilheyra F-list- anum en ekki Sjálfstæðisflokknum. Fyrir vikið var Þorbjörg kjörin varaformaður en ekki Ásta Þorleifsdóttir af F-lista, eins og reiknað hafði verið með. BRETLAND, AP Erkibiskupinn af Kantaraborg, Rowan Williams, segir Bretland geta tekið tillit til hefðbundinna laga íslams án þess ganga á borgaraleg réttindi. Erkibiskup- inn talaði frammi fyrir æðstu stjórn Ensku biskupa- kirkjunnar eftir að ummæli hans í síðustu viku um mögulega upptöku sjaríalaga á Bretlandi vöktu mikla reiði. Ummælin umdeildu snerust um að sjaría- lög geti gegnt hlutverki meðfram hjúskaparlögum, til dæmis hvað varðar skiptingu fjármuna hjóna. Williams ítrekaði að hann myndi ekki tala fyrir aðstæðum þar sem sjaríalög stríddu gegn borgaralegum réttindum breskra þegna. - sdg Rætt um sjaríalög í Bretlandi: Erkibiskup skýrir ummæli ROWAN WILLIAMS ÍSAFJÖRÐUR Reykingafólk á Ísafirði hefur fengið skjól í snjóhúsi sem veitingamenn í Kaffi Edinborg í Aðalstræti hafa hlaðið fyrir utan staðinn. Anna Jakobína Arngrímsdóttir á Kaffi Edinborg segir að starfsmönnum staðarins hafi þótt þetta góð hugmynd og drifið í að framkvæma hana í fyrradag. Þeir vonist eftir frosti næstu daga svo húsið bráðni ekki. Að sögn Önnu hafa gestir tekið hinu nýstárlega reykhúsi afar vel og yfirvöld engar athugasemdir gert. „Enda er þetta nú eiginlega bara skafl þótt hann sé að vísu óvenjulega kósí,“ útskýrir hún. - gar Ísfirskt hugvit í framkvæmd: Snjóhús fyrir reykingafólk SKIPULAGSMÁL Tillögur þátttak- enda í samkeppni um framtíðar- skipulag Vatnsmýrarinnar verða kynntar í dag. Að því er Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar í borgarstjórn, sagði við frétta- stofu Ríkisjónvarpsins í gær- kvöldi, leggja margir keppenda fram tillögur þar sem lestarkerfi kemur við sögu. Samkvæmt málefnasamningi meirihluti Sjálfstæðismanna og F-lista verður ekki tekin ákvörð- un á yfirstandandi kjörtímabili um brottflutning Reykjavíkur- flugvallar úr Vatnsmýri. Sýning á tillögunum verður opnuð í Hafnarhúsinu í dag. - gar Skipulag í Vatnsmýri: Tillögurnar kynntar í dag VIÐSKIPTI „Við höfum verið að endurskoða eignasafn- ið í heild sinni og minnka markaðsáhættu,“ segir Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group. Félagið tapaði 67,3 milljörðum króna á síðasta ári samanborið við 44,6 milljarða króna hagnað í hittifyrra. Tapið er að langmestu tilkomið á fjórða ársfjórðungi í fyrra en þá nam það 63,2 milljörðum króna. Þetta er í takti við væntingar markaðsaðila. Líkt og fram kom á uppgjörsfundi FL Group í gær eru skráðar eignir félagsins færðar á markaðsvirði en þær hafa fallið í verði í dýfunni á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. Hluti af endurskoðuninni er sala á Geysi Green Energy til hluthafa Geysis og Glitnis. FL Group verður áfram hluthafi í félaginu. Hannes Smárason, fyrrum forstjóri FL Group, er ekki á meðal kaup- enda. Þá hefur eftirstandandi 1,1 prósents hlutur FL Goup í AMR verið seldur og hlutabréfaeign í Commerzbank komin undir eitt prósent. Þau tilheyra nú veltubók félagsins. Jafnframt hefur verið horfið frá skráningu Landic Properties (áður Stoða) á markað og hlutafjáraukningu á genginu 14,7 eins og stefnt var að. „Augljóslega mun það ekki gerast á fyrri hluta ársins,“ sagði Jón og vísaði til aðstæðna á fjármálamörkuðum. - jab Nýir menn tóku til í eignasafni FL Group og hafa sett hlutafjáraukningu á salt: Töpuðu 67 milljörðum í fyrra STENGIRNIR STILLTIR Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarfor- maður FL Group, og Jón Sigurðsson forstjóri rýna í uppgjör fjárfestingarfélagsins fyrir fundinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þrír undir áhrifum Ökumaður var tekinn undir áhrifum lyfja í Reykjavík í gærmorgun. Einnig var ökumaður í Borgarnesi handtekinn undir áhrifum fíkniefna í fyrrakvöld. Á sama tíma var þriðji maðurinn tekinn fyrir ölvunarakstur í Keflavík. LÖGREGLUFRÉTTIR KJARAMÁL „Þetta þokast frekar áfram heldur en afturábak. Ég býst við að þetta skýrist um eða eftir hádegi á morgun [í dag],“ sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem í gærkvöld sat á fundi með formönnum landssambanda Alþýðusam- bandsins. „Hvað mig varðar er ég þokkalega bjartsýnn á að það sé að miða þónokkuð vel. Hins vegar er það þannig að maður veit aldrei hvernig hlutirnir gerast næsta dag. Það er nú einfaldlega einkenni svona samningaþjarks,“ segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. - gar Kjaraviðræður í gærkvöld: Miðar áfram en ekki afturábak Markús Örn í nýtt starf Geir Haarde forsætisráðherra hefur fengið leyfi utanríkisráðuneytisins til að kalla Markús Örn Antonsson sendiherra heim frá Kanada og gera hann að forstöðumanni Þjóðmenn- ingarhússins frá 1. maí. Núverandi for- stöðumanni, Guðrúnu Sigurðardóttur, hefur verið veitt lausn frá sama tíma. STJÓRNSÝSLA BORGARMÁL Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Kjartan Magnússon hafi verið að kanna hvort hann njóti stuðnings í borg- arstjórastólinn ákveði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson að stíga til hliðar, sem þykir nánast öruggt. Kjartan þvertekur hins vegar fyrir þetta. „Ég er ekkert að þreifa fyrir mér enda væri slíkt ótímabært,“ segir Kjartan. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er tíðinda að vænta í borgarstjóramálum Sjálfstæðis- flokksins á næstu dögum, líklega um helgina. Baráttan um borgar- stjórastólinn stendur fyrst og fremst á milli Gísla Marteins Baldurssonar, sem þykir hafa nokkuð sterka stöðu inni í borgar- stjórnarflokknum, og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem gerir tilkall til borgarstjórastólsins á þeim forsendum að hún er í öðru sæti á lista flokksins í borginni. Kjartan telur kröfu sína rétt- mæta í ljósi þess að hann, ásamt Vilhjálmi, var arkitektinn að núverandi meirihlutasamstarfi með F-listanum, Auk þrímenn- inganna hefur Júlíus Vífill Ingv- arsson einnig verið að þreifa fyrir sér. Möguleikar Kjartans og Júlíusar Vífils felast fyrst og fremst í því að ekki náist sátt um Gísla Martein eða Hönnu Birnu. Heimildir blaðsins herma enn fremur að beðið sé eftir því hvort Vilhjálmur komi með uppástung- ur að eftirmanni sínum, víki hann til hliðar. Það mun vera vilji flokksforystunnar að borgar- stjórnarflokkurinn leysi úr þessu. - th Borgarstjóramál Sjálfstæðisflokksins skýrast á næstu dögum: Fjórir vilja borgarstjórastólinn KJARTAN MAGN- ÚSSON Borgar- fulltrúinn segir ekki tímabært að ræða um borgar- stjórastólinn. SNJÓHÚSIÐ Anna Jakobína Arngríms- dóttir þjónar reykingamönnum í snjó- húsi Kaffi Edinborgar. MYND/JOACHIM SCHMIDT SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.