Fréttablaðið - 14.02.2008, Qupperneq 8
14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
FLEX
hágæða
rafmagnsverkfæri
í miklu úrvali
Aseta ehf
Tunguháls 19
110 Reykjavík
sími: 533 1600
aseta@aseta.is
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
-
9
0
8
0
2
5
3
RV Unique örtrefjaræstikerfið
- hagkvæmt, vistvænt og mannvænt
Nánari upplýsingar
veita sölumenn og ráðgjafar RV
Bodil Fur,
sölumaður hjá
RV Unique í Danmörku
UniFlex II H Fiber ræstivagn
RV
U
N
IQ
U
E
02
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
VERSLUN „Það er erfitt að nefna
mörg stór fyrirtæki á íslenskum
markaði sem ekki hafa gengið í
gegnum eigendaskipti á síðustu
árum,“ segir Stefán Karl Segatta,
framkvæmdastjóri neytendasviðs
hjá Skeljungi.
Því skekki það umræðuna að
taka olíufélögin ein út og segja
eigendur þeirra hafa fjármagnað
kaupin á þeim með því að hækka
álagninguna.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda, lýsti því yfir í
gær að olíufyrirtækin hefðu aukið
álagningu sína um allt að fimm
krónur á hvern lítra. Þetta sé
meðal annars vegna þess að nýir
eigendur hafi komið að olíufélög-
unum. Þeir hafi síðan hækkað
álagninguna til að fjármagna fjár-
festingar sínar.
Stefán vill ekki dæma um
útreikninga Runólfs en segir að
betra væri að horfa á verðþróun
til lengri tíma. Hann neitar því
ekki að fjárfestingar kunni að
spila þar inn í.
„Og það má alveg taka þessa
umræðu,“ segir hann. Aðalatriðið
sé þó að álagning olíufélaganna
hafi ekki hækkað meira en sem
nemur hækkun kostnaðar til
dæmis launa, flutnings og fjár-
bindingar.
Ekki náðist í forstjóra Olís og
stjórnarformaður N1 svaraði ekki
skilaboðum. - kóþ
Framkvæmdastjóri hjá Skeljungi svarar gagnrýni framkvæmdastjóra FÍB:
Olíufélög lík öðrum félögum
MENNTUN Starfsemi á einkarekna
leikskólanum Hvarfi í Kópavogi
er í uppnámi. Þjónustusamningur
ÓB Ráðgjafar, sem rekur skólann,
var sagt upp um áramótin og renn-
ur út 1. maí. Hvorki starfsfólk né
foreldrar vita hvað verður um
leikskólann þá.
„Við vitum ekki hvort leikskól-
inn fer undir aðra rekstraraðila,
hvort hann verður boðinn út aftur
eða hvort Kópavogsbær ætlar að
taka yfir reksturinn,“ segir Edda
Guðrún Guðnadóttir, trúnaðar-
maður starfsmanna á Hvarfi. „Við
vitum ekki hjá hverjum við vinn-
um þá, eða hvort við þurfum yfir-
höfuð að mæta í vinnu eftir 1.
maí.“
ÓB Ráðgjöf hefur rekið leik-
skólann frá 1. nóvember 2005 sam-
kvæmt þjónustusamningi við
Kópavogsbæ. Þeim samningi var
sagt upp um áramótin vegna erfið-
leika í samstarfi milli Kópavogs-
bæjar, sem á skólann, og ÓB Ráð-
gjafar. Engin ákvörðun hefur
verið tekin um áframhaldandi
rekstur skólans.
„Það hefur verið mikil óánægja
meðal margra foreldra með þessa
rekstraraðila, og fólk vill fá á
hreint hvert framhaldið verður,“
segir Hlynur Þór Sveinbjörnsson,
faðir fjögurra ára drengs á Hvarfi.
„Okkur hefur ekkert verið til-
kynnt hvað gerist 1. maí, við vitum
bara að samningnum var sagt
upp.“
Aðspurður hvers vegna svo
mikil óánægja hafi verið meðal
foreldra segist Hlynur ekki vilja
tiltaka neina sérstaka ástæðu, það
hafi einfaldlega verið óánægja
með ýmsa þætti rekstrarins hjá
ÓB Ráðgjöf.
Samúel Örn Erlingsson, formað-
ur leikskólanefndar Kópavogs-
bæjar, segir að það sé í höndum
bæjaryfirvalda hvert rekstrar-
fyrirkomulag skólans verði, og
það sé verið að ákveða núna.
salvar@frettabladid.is
Vita ekki hvað verður
um leikskólann í maí
Óvissa ríkir um framtíð einkarekna leikskólans Hvarfs í Álfahverfi í Kópavogi.
Þjónustusamningi við rekstraraðila hefur verið rift, en enginn veit hvað tekur við
þegar hann rennur út 1. maí. Málið er í vinnslu, segir formaður leikskólanefndar.
HVARF Þjónustusamningur Kópavogsbæjar við ÓB Ráðgjöf rennur út 1. maí, en
honum var sagt upp vegna erfiðleika í samstarfi við rekstraraðila. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STEFÁN KARL
SEGATTA
Framkvæmda-
stjóri hjá
Skeljungi segir
hækkun á
eldsneytisverði
ekki óeðlilega.