Fréttablaðið - 14.02.2008, Síða 30
[ ]Sjöl og treflar gegn kuldanum detta aldrei úr tísku. Fallegir hand-prjónaðir ullartreflar setja punktinn yfir i-ið þegar skunda skal út í frostið, og halda á manni yl.
Hildur Inga Björnsdóttir
hannar skartfatnað sem setur
punktinn yfir i-ið.
Hönnuðurinn Hildur Inga Björns-
dóttir hannar undir merkinu Xir-
ena. Hún hannar flíkur til að nota
yfir eða undir önnur föt og eiga
þær að setja punktinn yfir i-ið.
Flíkunum er meðal annars ætlað
að höfða til skapandi kvenna á
öllum aldri sem vilja marka sér
sérstöðu.
„Línunni tilheyra toppar, pils,
kjólar og leggings og fötin er
ýmist hægt að nota spari eða
hversdags. Sumar flíkurnar má
líka nota á mismunandi vegu. Þær
eru úr teygjanlegum ítölskum
jersey-efnum og skreyttar með
þæfðri íslenskri ull,“ segir Hildur
Inga.
Hún tekur þátt í verkefninu ÚH-
18 á vegum Útflutningsráðs
Íslands ásamt átta öðrum fyrir-
tækjum. Verkefnið miðar að því
að koma íslenskum fyrirtækj-
um á framfæri erlendis og
stefnir Hildur helst á bresk-
an og þýskan markað. Hún
fékk styrk frá Félagi kvenna
í atvinnurekstri til þátttöku
í verkefninu og lætur mjög
vel af því.
Auk fatahönnunarinnar
málar Hildur Inga
myndir og er að byrja
að fikra sig áfram með
skartgripahönnun. „Ég
mun tvinna þetta
þrennt saman en ég
vinn allt út frá svipaðri
hugmyndafræði. Í skart-
gripunum er steina- og
sjávarþema og svo hef ég
verið að mála konur úr
íslensku þjóðsögunum sem
jafnvel stökkbreytast í
steina. Í fatahönnuninni fæ
ég innblástur úr náttúrunni
og eiga flíkurnar að höfða
til sterkra og sjálfstæðra
kvenna,“ útskýrir Hildur
Inga en fötin fást í verslunun-
um Cific í Bankastræti 11 og
101 Skjöldur að Pósthússtræti
13. vera@frettabladid.is
Skartfatnaður fyrir sterkar
og sjálfstæðar konur
Rithöfundurinn Þórdís Björnsdóttir í skart-
toppi sem ber nafnið Sjófugl.
Hildur Inga í skartpilsi á vinnustofu sinni á Korpúlfsstöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÍSKUVIKUNNI Í NEW YORK LAUK Í SÍÐUSTU VIKU EN ÞAR MÁTTI
SJÁ HÖNNUÐI SÝNA VOR- OG HAUSTLÍNUR FYRIR ÁRIÐ 2008.
Tískuvikunni lauk án krassandi upákoma og þóttu fötin sem
hönnuðir kynntu þetta árið settleg. Áhrifa sjötta áratugarins
mátti sjá gæta í dömulegum sniðum, blóma-
mynstrum og léttum efnum og kemst Suzy
Menkes, tískugagnrýnandi hjá Herald Tri-
bune, svo að orði að íhaldssamar mæður
hefðu sannarlega lagt blessun sína yfir
þessar flíkur sem sýndar voru í New York
þetta árið þar sem þær hefðu kannast
við þær úr eigin fataskáp. - rt
Reem Acra er þekktust fyrir
glæsilega kvöldkjóla og þótti
léttleiki og glamúr einkenna
haustlínu hennar fyrir 2008.
Rebecca Taylor sýndi léttar skyrtur
og kjóla í dökkum litum og
blómamunstri fyrir haustið.
Myndlistarmað-
urinn Sunna
Sigfríðardóttir í
skartkjól sem nefn-
ist Hafbrim.
Einfaldur og
glæsilegur
kvöldkjóll frá
Reem Acra
en hún þótti
sjálfri sér
samkvæm í
elegans.
Tíðindalaust á tískuviku
Bill Bliss sýndi
dömuleg
snið og
aðskorna jakka
sem minntu
óneitanlega á
fatnað sjötta
áratugarins.
Létt efni
bylgjuðust
um fætur
fyrirsætn-
anna hjá
Rebeccu
Taylor og
litirnir
dökkir.
s: 557 2010
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Tjáðu þig! 50MB frítt
myndasvæði!
Búðu til myndaalbúm
á síðunni þinni!
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki