Fréttablaðið - 14.02.2008, Side 31
FIMMTUDAGUR 14. febrúar 2008 3
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Valentino úr veislunni
Hátískusýning er afrakstur af löngu og erfiðu starfi þar sem ómæld
vinna hefur verið lögð í hverja flík. Upp í 2.000 vinnustundir fyrir einn
kjól. Vinna sem lifir á sýningarpallinum í nokkrar mínútur, stundum til
að hverfa að eilífu í gleymsku í geymslu tískuhússins.
Valentino Caravani færði tískuáhugafólki fallega gjöf í tilefni af
síðustu sýningu sinni í París á dögunum. Hann leyfði sjónvarpsmönn-
um að fylgjast með undirbúningi sýningarinnar, allt frá teikniborðinu
að sýningarpöllunum á Rodin-safninu. Vinnustofan er í Róm og þar
fylgdist meistarinn með hverju handtaki. Valentino byrjaði ungur að
teikna og átti erfitt með að hemja sig fyrir síðustu sýninguna; hefði
getað hannað þrisvar sinnum meira. Hann var aðeins 26 ára á þeirri
fyrstu 1957.
Á vinnustofunni eru áttatíu hendur sem sitja tímunum saman við
sauma, sumar eru búnar að vera með Valentino í fjörutíu ár og þekkja
hvert spor. Á eftir fylgja mátanir með fyrirsætum og lagfæringar því
allt á að vera fullkomið. Þótt Valentino hafi átt mikillar velgengi að
fagna í París hefur hann alltaf hannað og saumað á Íalíu og því eru
milljónakjólarnir 75 sendir til Parísar rétt fyrir sýninguna. Með þeim
fer helmingur sauma kvennanna til að fullkomna verkið þegar fyrir-
sæturnar sem eiga að sýna kjólana máta daginn fyrir sýninguna. Meira
að segja Roberta eldabuska „mamma italiana“ fylgir með svo starfs-
fólkið borðar ítalskt eins og heima til að halda við starfsanda liðsins.
Á síðustu stundu mætir Natalia Vodianova topp-módel, stjarna
sýningarinnar, til að máta kjólinn sem opnar hana. Hvert smáatriði er
þaulæft, tónlistin hefur verið valin, styrkurinn ákveðinn, allt frá
ítölskum óperum til Amy Winehouse, kvikmyndatónlistar úr „La Dolce
Vita“ Fellinis og „2046“ Wong Kar-Wai.
Aðsetur tískuhúss Valentinos í París er á skartgripatorginu Place
Vendôme, aðeins nokkra metra frá Ritz-hótelinu, þar sem gestir
hönnuðarins gista og þnngað þarf að senda fjölda kjóla sem samskipta-
deild tískuhússins lánar, því auðvitað klæðast gestirnir Valentino á
síðustu sýningunni og listinn er langur. Eftir sýninguna leka tár af
hvörmum margra aðstoðarmanna og kvenna sem og fyrirsætna, blað
er brotið.
Valentino segir að leyndarmál hátískunnar sé að efnið eigi að líta út
eins og enginn hafi snert það þegar flíkin er tilbúin. Hann hefur í 45 ár
fegrað konur, aldrei gert úr þeim furðuverk í nafni frumleika. Líkt og
Michael-Angelo okkar tíma, óður til kvenlegrar fegurðar. Og Valentino
segir: „Betra að fara úr veislunni meðan þar er enn fullt af fólki“.
Þannig kveður listamaður heim tískunnar. bergb75@free.fr
Náttúran býr yfir helstu
leyndarmálunum um fegurð
kvenna. Hunang og sítróna eru
þar fremst í flokki fyrir unaðs-
mjúkt hörund.
Í öllum þorpum Provence-héraðs í
Suður-Frakklandi eru býflugur
ræktaðar til framleiðslu á undur-
sætu hunangi, en hunang er einmitt
meðal mest hrífandi fjársjóða nátt-
úrunnar og eitt elsta fegurðarlyf
veraldar. Áhrif þess á húðina eru
mýkjandi og endurnærandi því hun-
ang er ríkt af sykri, stein-
efnum og vítamínum.
Blanda hunangs og sítr-
ónu er eftirsóknarverð
og nú hefur franski
snyrtivöruframleið-
andinn L‘Occitane
framleitt baðvörur úr
blöndu þessara mikil-
vægu fegurðargjafa
náttúrunnar. Honey &
Lemon línan ilmar auð-
vitað ótrúlega
girnilega,
ásamt því að
vera
hrein
upplifun
fyrir lík-
ama og sál.
- þlg
Húðgaldrar
hunangs og sítrónu
Honey &
Lemon-
baðlínan frá
L‘Occitane en
Býflugnarækt er áberandi í
Provence-héraði í Suður-Frakk-
landi.
60%
afsláttur
af öllum vörum
Laugavegi, s. 561-1680
Rýmingarsala í 3 daga
Allt að 90% afsláttur
Freemans/Clamal • Reykjavíkurvegi 66 • Hafnarfjörður • S: 565 3900
Fyrstir
koma
fyrstir
fá!
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Opið virka daga: 10-18 og laugardaga: 11-15
Síðasti dagur rýmingarsölunnar