Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 36
 14. FEBRÚAR 2008 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● brúðkaup Elísabet Englandsdrottning og Philip Mountbatten héldu upp á 60 ára brúðkaupsafmæli sitt í lok síðasta árs. Hér eru nokkrar stað- reyndir um samband þeirra, tilhugalíf og brúðkaup. ● Elísabet og Philip kynntust í brúðkaupi frænku Philips árið 1934. ● Trúlofun þeirra var tilkynnt 9. júlí 1947 en þau giftu sig 20. nóv- ember sama ár. ● Demantarnir í trúlofunarhringnum voru úr demöntum úr kór- ónu móður Philips. ● 2.000 gestum var boðið í brúðkaupið í Westminster Abbey. ● Meðal gesta voru konungur og drottning af Danmörku, konung- ur og drottning af Júgóslavíu, konungar Noregs og Rúmeníu og Shah af Íran. ● Elísabet var í silkikjól eftir Sir Norman Hartnell og með kórónu sem búin var til fyrir Maríu drottningu árið 1919. ● Gröf óþekkta hermannsins var eini steinninn sem ekki var þak- inn sérstöku teppi í kirkjunni. Daginn eftir brúðkaupið lét Elísa- bet leggja brúðarvöndinn við gröfina líkt og móðir hennar lét gera. ● Mikil tónlist ómaði í brúðkaupinu en meðal annars söng 91 söngvari í athöfn- inni. ● Athöfnin var send út beint í útvarp- inu en hún var einnig kvikmynduð og sýnd í bíósölum um allan heim. ● Um tíu þúsund heillaskeyti bár- ust Buckingham-höll. ● Hjónakornin fengu um 2.500 gjafir frá velunnurum alls staðar að úr heiminum. ● Brúðkaupsveislan var haldin í Buckingham-höll. Brúðkaupsnóttinni eyddu þau í Broadlands í Hampshire, heim- ili frænda Philips, jarls af Mount- batten. ● Hluta hveitibrauðsdaganna eyddu þau á Möltu. ● Drottningin og maður hennar eignuðust fjögur börn. Karl, Önnu, Andrés og Játvarð. Samtals eru barnabörnin sjö. ● Elísabet og Philip héldu upp á sex ára brúðkaupsafmæli það ár sem Elísabet var krýnd drottning. ● Í nóvember 2007 héldu hjónin upp á demantsbrúðkaup en fimm kórsöngvarar sem höfðu tekið þátt í giftingarathöfninni sex- tíu árum áður tóku þátt á ný í athöfninni í Westminster Abbey. Konunglegt brúðkaup Ragnhildur Fjeldsted, eigandi blómabúðarinnar Dans á rósum á horni Lokastígs og Baldursgötu, hefur áralanga reynslu af blómaskreytingum. Hún hefur bæði starfað hér heima og í London og hefur séð um fjölmörg brúðkaup, stór sem smá. Ragnhildur segir mjög einstakl- ingsbundið hvernig brúðhjón vilji hafa brúðarvendi og annað skraut. „Ég mæli alltaf með því að brúðurin finni sitt uppáhalds- blóm og leyfi því að njóta sín í vendinum. Ég bendi samt fólki á þau blóm sem mest framboð er af á hverjum tíma. Það er bæði ódýrara og þá er maður viss um að fá það ferskasta sem völ er á.“ Ragnhildur segir að hvítur, bleik- ur og límónugrænn séu áberandi litir í brúðarvöndum á vorin og sumrin en oft vill fólk dekkri liti um haust og vetur. „Þetta getur þó verið allavega og gaman þegar blómin endurspegla persónuleika brúðhjónanna,“ segir Ragnhildur. Hún segir að svokallaðir kúlu- vendir séu geysilega vinsælir. Þeir eru nettir, elegant og auð- velt að bera þá. Oft eru rósir og orkideur í lykilhlutverki en hún segir allt eins hægt að nota önnur blóm. „Ég bendi fólki oft á að leggja áherslu á veglegar blómaskreyt- ingar sem njóta sín betur en margar litlar. Það gerir daginn tignarlegan og veisluna glæsi- lega. Þá er upplagt að fá fagfólk til þess að gera stóru skreyting- arnar og síðan er hægt að fá vini og fjölskyldu til að hjálpa til að gera ýmislegt smálegt sem dreg- ur úr kostnaði,“ útskýrir Ragn- hildur. Hún segist ráðleggja brúðhjón- um af hreinskilni hverju hægt sé að sleppa og hvað sé mikil- vægt að leggja áherslu á. Hún leggur mikið upp úr því að hitta brúðhjónin, finna taktinn og taka síðan mið af þeirra óskum og væntingum. - ve Leyfir uppáhaldsblómum brúðarinnar að njóta sín Það getur verið fallegt að skreyta veislu- borðin með háum vöndum í stíl við brúðar- vöndinn. Dramatískur og munúðarfullur vönd- ur. Í honum er dökkbleik bóndarós, gerbera, rósir og svört calla-lilja. Hann er svo bundinn saman með svörtum borða. Þessi vöndur er dálítið villtur. Hann er gerður úr appelsínugulri brúðarkollu og fá öll smáu blómin að njóta sín til fulls. Ragn- hildur segir gaman þegar fólk þorir að velja óhefðbundnar skreytingar. Ragnhildur Fjeldsted í búð sinni Dansi á rósum á horni Lokastígs og Baldursgötu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ragnhildur gifti sig í október á síðasta ári. Veislan var haldin á Hótel Búðum og var hún með skelja- og kuðungaþema. Hún notaði sandlitaða, fölbleika og kremaða liti í blómaskreytingarnar sem harmóneruðu vel við haustlitina, hafið og umhverfið. Ragnhildur segir gaman að tengja þemað við eitthvað sem er brúðhjónunum kært og endurspeglar þeirra stíl. Klassískur kúluvöndur með hvítum rósum. Orkideu- vendir hafa verið vinsælir og er þessi úr Phalanopsis orkideu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.