Fréttablaðið - 14.02.2008, Side 44

Fréttablaðið - 14.02.2008, Side 44
 14. FEBRÚAR 2008 FIMMTUDAGUR10 ● fréttablaðið ● brúðkaup Hin síðustu ár hafa morgun- gjafir orðið ómissandi þáttur í lok brúðkaupsnætur, en oftast eru þær afhentar að morgni hins fyrsta dags þegar karl og kona vakna saman sem hjón. Mikil tilhlökkun fylgir morgungjöfum brúðhjóna hvors til annars, en þær eiga að endurspegla ást og að- dáun í upphafi nýrrar tilveru saman. Hér koma hugmyndir að morgungjöfum sem hitta örugglega í mark. Lofa skal mey að morgni Í Feneyjum er forsetinn sjálfur herra rómantík. Morgungjöf í formi ástarfarar- eyris og flugmiða til ítalskra amorslenda er yndisleg og gefur hveitibrauðsdög- unum ekkert eftir, enda nauðsynlegt að viðhalda rómantíkinni áfram og skipu- leggja fagra daga hjónalífsins saman. Morgungjafir þurfa ekki að kosta formúu til að hitta í hjartastað. Kossar fást alls ekki ókeypis né handa hverjum sem er, en í ástarkossi sameinast sálirnar og inneign er vissulega ótakmörkuð. Koss frá nýbakaðri eiginkonu eða eigin- manni er ein af guðdómlegri lystisemd- um og gjöfum hjónabandsins. Hjón eru eitt. Mitt er þitt og þitt er mitt. Í annríki samtímans er mikilvægt að eiga frítímann saman. Tvímenningshjól í ástarrauðum lit gefur fögur fyrirheit um útivist og endalausa minningasköpun á góðviðrisdögum hjúskaparins. Þótt ávöxtur ástarinnar hafi allt eins komið undir á brúðkaupsnótt er alltaf jafn hjartastyrkjandi að veita af örlæti sínu og ástum. Að gerast hátíðlega fjarstatt styrktar foreldri munaðarlauss barns er falleg morgungjöf og frjósöm því þar er vissulega komið fyrsta barnið sem þið elskið og annist frá árdegi heilags samlífs. Fallegur myndarammi sem geymir eftirlætis augnablikið ykkar saman, rómantískasta staðinn ykkar eða annað sem ykkur einum er svo kært, og finnst aðeins ykkar á milli, er persónuleg morgungjöf, og slíkur fjársjóður stendur örugglega upp úr þegar horft er til baka. Hver stenst einn svona? Kátur hvolpur með yndismjúkan feld, forvitin augu og bleika tungu er dásamleg morgungjöf og gefur fyrirheit um tryggan og ljúfan félaga sem brúðhjónin geta samein- ast um að annast og eiga lífsins góðu stundirnar með. Demantar og gull í allri sinni glitrandi dýrð er morgungjöf sem hittir allar konur í hjartastað, enda draumur kvenna að skarta enn einum ástar- demantinum frá sínum heittelskaða sem nýbökuð og heiðvirð frú. ÍS L E N S K A /S IA .I S /R A U 4 09 12 0 1/ 08 Guðmundur Viðarsson, yfirkokkur Steikarveisla 5.900.- með víni 8.400.- Forréttur: Koníaksbætt rjómahumarsúpa Aðalréttur: Eldsteikt lambafille með bakaðri kartöflu og rauðvínssósu eða nautapiparsteik með piparsósu Desert: Ítölsk ostaterta í bolla með ferskum jarðarberjum Villibráðarveisla 6.900.- með víni 9.400.- Forréttur: Grafin gæsabringa með bláberjabalsamic ásamt andalifrarmús og rauðvínssoðnum lauk Aðalréttur: Hreindýramedalíur með gamaldags rjómasósu Desert: Heilög þrenning, eplapæ, eplamúffin og tartar tartín Humarveisla 6.900.- með víni 9.400.- Forréttur: Grillaður humar í skel með villisveppa rísottó Aðalréttur: Nautasteik New Orleans með crembrulle lauk Desert: Heit súkkulaðiterta með vanilluís og jarðarberjasósu Veislan heldur áfram Á bóndadaginn kynnti Rauðará girnilegan matseðil: steikarveislu, villibráðarveislu og humarveislu. Skemmst er frá því að segja að undirtektir voru frábærar og því heldur veislan áfram. R A U Ð A R Á R S T Í G 3 7 S Í M I 5 6 2 6 7 6 6 W W W . R A U D A R A . I S– ástríðufullur veitingastaður með fersku yfirbragði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.