Fréttablaðið - 14.02.2008, Side 57

Fréttablaðið - 14.02.2008, Side 57
FIMMTUDAGUR 14. febrúar 2008 33 KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 664 5.094 +1,78% Velta: 12.126 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,82 -0,76% ... Bakkavör 45,90 +2,92% ... Eimskipafélagið 30,65 -0,33% ... Exista 12,35 +4,66% ... FL Group 10,20 4,62% ... Glitnir 18,00 +2,56% ... Icelandair 26,55 +0,19% ... Kaupþing 734,00 +1,52% ... Landsbankinn 28,75 +1,23% ... Marel 97,40 -1,62% ... SPRON 5,88 +4,63% ... Straumur-Burðarás 12,65 +0,72% ... Teymi 5,17 -0,77% ... Össur 90,60 +1,46% MESTA HÆKKUN EXISTA +4,66% SPRON +4,63% FL GROUP +4,62% MESTA LÆKKUN 365 -4,07% MAREL -1,62% EIK BANKI -1,36% Umsjón: nánar á visir.is Nánari upplýsingar og skráning: sími 525 4444 endurmenntun.is Öflug símenntun fyrir hjúkrunarfræðinga Endurmenntun HÍ fagnar samningi við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga um símenntun fyrir félagsmenn. Framundan eru fjölmörg spennandi námskeið til styrkingar í fagi jafnt sem almennri færni. Að auki bjóðast félagsmönnum sérkjör á önnur valin námskeið hjá Endurmenntun. Í tengslum við samstarf EHÍ og FÍH verða fimm námskeið í boði á vormisseri 2008: Viðbótar og óhefðbundnar meðferðir í hjúkrun hefst 21. feb. Framsögn og fundarsköp hefst 10. mars Næring og vökvajafnvægi haldið 18. apríl Að skrifa grein og koma fram í fjölmiðlum haldið 4. apríl Er hjúkrun launuð vinna eða hugsjónastarf? - Að semja um kaup og kjör hefst 7. maí Danska dagblaðið Ekstra Bladet hefur beðið Kaupþing afsökunar vegna greinaskrifa um starfsemi bankans sem birtust í greinaflokki blaðsins haustið 2006. Blaðið mun sömuleiðis greiða bankanum skaðabætur og lögfræðikostnað vegna málsins. Í greinaflokknum voru meðal annars settar fram alvarlegar ásakanir í garð Kaupþings og Sigurðar Einarssonar, stjórnarfor- manns bankans. Greinarnar birtust á dönsku í blaðinu en á vefsíðu þess á ensku og dönsku. Í tilkynningu frá Kaupþingi segir að Ekstra Bladet hafi leitað eftir sátt í málinu og og beðið bankann afsökunar fyrir dómstólnum. Þá muni það láta afsökunarbeiðni standa á heimasíðu sinni í einn mánuð. Ekki náðist í Sigurð Einarsson þegar eftir því var leitað í gær. Bent Falbert, ritstjóri Ekstra Bladet, sagði í samtali við Vísi.is í gær að afsökunarbeiðnin nái einungis til enskrar þýðingar á greinaflokknum enda hafi siða- nefnd danskra fjölmiðla fellt úrskurð blaðinu í vil. Bankinn hafi hins vegar talið að ensku útgáfuna hefði mátt túlka sem svo að Kaupþing væri sakað um glæpsamlegt athæfi. Það hafi ekki verið ætlunin og því ákveðið að biðjast afsökunar, að sögn ritstjórans. - jab SIGURÐUR EINARSSON Ekstra Bladet hefur beðist afsökunar á enskri útgáfu greinaflokks um Kaupþing og Sigurð Einarssonar, stjórnarformann bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ekstra Bladet biðst afsökunar Í pallborði „viðskiptalífsins“ á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í gær voru skiptar skoðanir um hvort krónan væri byrði eða blóra- böggull, en að því var spurt í yfir- skrift þingsins. „Fyrir fjármálafyrirtæki er óstöðugleiki byrði,“ segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaup- þings. „Við verðum að hafa aðgang að Seðlabanka með evrur,“ segir hann og telur þá staðreynd eina í raun útiloka einhliða upptöku myntarinnar hér. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, segir ljóst að krónan sé útflutningsfyrirtækjum byrði og telur eitt brýnasta verkefni hag- stjórnar að stuðla að stöðugleika gjaldmiðilsins. Tryggvi Þór Herbertsson, for- stjóri Aska Capital, segir að hér eigi allir að líta sér nær, sér í lagi stjórnvöld og fjármálafyrirtæki, þar sem sameiningar og hagræð- ingar sé þörf. „Vandinn er að fjár- málakerfið og hið opinbera hefur verið á fylleríi,“ sagði hann í pall- borðinu. Hreiðar Már segir eitt brýnasta verkefnið að losna við viðskiptahallann og draga úr skuldum þjóðarbúsins. „Það er umræða sem ég hef saknað.“ - óká Bankarnir þurfa aðgang að evru PALLBORÐIÐ Niðurstöður Viðskiptaþings ræddu í gær Hreiðar Már Sigurðsson, Róbert Wessman, Þóra Arnórsdóttir sem stýrði umræðum, Tryggvi Þór Herberts- son og Katrín Pétursdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Kaupþing og Exista fá um 1,9 milljarða króna í arðgreiðslur fyrir tæpan 29 prósenta hlut í norska fjármálafyrirtækinu Storebrand. Kaupþing fær mest, um 1.300 milljónir króna, en Exista afganginn. Hagnaður Storebrand nam tveimur milljörðum norskra króna, jafnvirði 25 milljarða íslenskra, í fyrra. Þetta er fjögur hundruð milljónum norskra króna meira en í hitteðfyrra. Hagnaður- inn á fjórða ársfjórðungi nam 676 milljónum norskra króna, sem er rúmlega 52 prósenta hækkun á milli ára og yfir væntingum. Fjárfestar tóku fréttunum fagn- andi enda rauk gengi bréfa í Storebrand upp um ellefu prósent í norsku kauphöllinni í gær. - jab Fá tvo milljarða frá Storebrand HÖFUÐSTÖÐVAR STOREBRAND Gengi bréfa Storebrand rauk upp um ellefu prósent í gær.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.