Fréttablaðið - 14.02.2008, Síða 62
38 14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
Sýningin Minningar í mynd-
um opnar í sýningarrýminu
Skotinu í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í dag. Á sýn-
ingunni má berja augum
30 til 50 ára gamlar ljós-
myndir eftir Guðmund W.
Vilhjálmsson.
Guðmundur hefur tekið ljósmyndir
í rúm 50 ár. Hann var félagi í „Litla
ljósmyndaklúbbnum“ og átti mynd-
ir á frægri sýningu í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins árið 1961. Sýningin
sú braut blað í sögu ljósmyndunar á
Íslandi þar sem myndirnar voru
óhlutbundnar, en fram að því hafði
ekki verið hefð fyrir slíkri nálgun á
ljósmyndatökur hér á landi.
Fyrir myndirnar sem Guðmund-
ur sýnir nú í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur hefur hann víða leitað
fanga og má sjá í þeim ýmis við-
fangsefni og nálganir. „Á sýning-
unni eru myndirnar annars vegar
prentaðar og hengdar á vegg en
einnig sýndar á skjá. Myndirnar
sem birtast á skjánum eru mest-
megnis gamlar Reykjavíkurmynd-
ir en þær sem á veggjunum hanga
eru ljósmyndir frá höfninni og frá
Hveravöllum. Á þessum síðar-
nefndu myndum er nokkuð um
óhlutbundin viðfangsefni; ég tek til
að mynda ljósmyndir af olíuskell-
um á sjónum og af formum sem
birtast í náttúrunni,“ segir Guð-
mundur aðspurður um viðfangs-
efni sýningarinnar.
Náttúran hefur lengi veitt Guð-
mundi innblástur í listsköpun sinni,
jafnt í ljósmyndun sem í málara-
list. „Ég fór að mála fyrir þrjátíu
eða fjörutíu árum og geri meira af
því núorðið en að taka ljósmyndir.
Málverkin mín eru algerlega óhlut-
bundin, en þau eiga það sameigin-
legt með ljósmyndunum að náttúr-
an er ein af mínum helstu
uppsprettum innblásturs. Náttúran
inniheldur auðvitað öll heimsins
form og tekur stöðugum breyting-
um þannig að maður uppgötvar í
sífellu eitthvað nýtt, til dæmis í leik
ljóss og skugga.“
Heimur ljósmyndarinnar hefur
tekið stakkaskiptum undanfarinn
áratug eða svo við uppgang staf-
rænnar tækni. Guðmundur segist
hafa gaman af að prófa sig áfram
með þá möguleika sem þessi nýja
tækni veitir ljósmyndurum. „Þegar
ég var að byrja að taka ljósmyndir
var bara til svart-hvít filma og við
framkölluðum myndirnar í myrk-
raherbergjum. Þetta var að sjálf-
sögðu mun meiri vinna en fer í
þetta ferli í dag þegar maður getur
hlaðið myndunum jafnóðum inn í
tölvuna. Ég hef nokkuð gaman af að
taka stafrænar myndir, en ekki
þykir mér síður gaman að geta
unnið með gömlu ljósmyndirnar
mínar í forritum á borð við Photo-
shop. Myndirnar á sýningunni voru
upphaflega allar teknar á Kodac-
hrome-filmu en öðluðust nýtt líf
með aðstoð skanna og tölvu. Það
voru sannarlega ánægjulegir end-
urfundir að vinna með þær að
nýju,“ segir Guðmundur að lokum.
Sýningin Minningar í myndum
stendur yfir í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, fram
til 8. apríl. vigdis@frettabladid.is
Varðveisla minninga
VIÐ HÖFNINA Ein af ljósmyndum Guðmundar W. Vilhjálmssonar.
Á morgun hefði söngva-
skáldið og baráttukonan
Bergþóra Árnadóttir
fagnað 60 ára afmæli
sínu, en hún lést fyrir
aldur fram í fyrra.
Í tilefni afmælisins
verða haldnir tónleikar
til minningar um Berg-
þóru og fara þeir fram í
Salnum, Hamraborg 6,
annað kvöld kl. 20.30.
Margir af okkar hæfi-
leikaríkustu söngvurum
og hljóðfæraleikurum munu klæða
tímalaus lög Bergþóru í nýjan og
persónulegan búning. Þeirra á
meðal eru Ragnheiður
Gröndal, Magga Stína,
Lay Low, Hansa, Svavar
Knútur, Jónas Sigurðs-
son, Hjörleifur Valsson,
Tatu Kantomaa, Björg-
vin Gíslason, Birgir
Bragason, Ástvaldur
Traustason, Steingrímur
Guðmundsson og fleiri.
Það er Hjörleifur Vals-
son sem hefur veg og
vanda af skipulagningu
tónleikanna en hann var
náinn vinur og samstarfsmaður
Bergþóru.
Miðaverð er 2.700 kr. - vþ
Bergþóra heiðruð í Salnum
RAGNHEIÐUR GRÖN-
DAL Hún kemur fram á
tónleikunum.
„Frumsýning í Hafnarfjarðarleikhúsinu er alltaf tilhlökkunarefni. Í þetta
sinn stigu flinkir leikarar á svið með skemmtilega sýningu.“
Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.
Midasala: 555 2222. www.midi.is
„Hjálmar Hjálmarsson fer á
kostum í hlutverki sjón-
varpsins“
„ ... get ég ekki annað en mælt
með sýningunni, sem er
troðfull af skemmtilegum
atriðum ...“
Martin Regal,
Morgunblaðið.
„ ... konan sem sat tveim sætum
frá mér hló oft hátt og snjallt.
Og ég er viss um að hún var í raun
og veru að skemmta sér...“
Jón Viðar Jónsson, DV.
Næstu sýningar:
Lau. 9. febr. Kl. 20.00
Lau. 16. febr. Kl. 20.00
Lau. 23. febr. Kl. 20.00
Lau. 1. mars. Kl. 20.00
GAMANÓPERAN
SÍGAUNABARÓNINN
EFTIR JOHANN STRAUSS - Íslensk þýðing: Egill Bjarnason og Þorsteinn Gylfason
Í GAMLA MJÓLKURSAMLAGINU BORGARNESI
Miðapantanir 437 1598 • tskb@simnet.is • Uppl.: www.borgarbyggd.is
La. 16. feb. kl. 20.00 - UPPSELT
Su. 17. feb. kl. 20.00 - UPPSELT
Þr. 19. feb. kl. 20.00 - UPPSELT
Fi. 21. feb. kl. 20.00 - LAUS SÆTI
Fö. 22. feb. kl. 20.00 - ÖRFÁ LAUS
Su. 24. feb. kl. 20.00 - LAUS SÆTI
Sólarferð e. Guðmund Steinsson
frumsýn. 15/2 uppselt, 16/2 uppselt
Baðstofan e. Hugleik Dagsson
sýn. 14/2, 15/2, 16/2 örfá sæti laus
Vígaguðinn e. Yasminu Reza
sýn. 15/2 og 16/2 örfá sæti laus
Gott kvöld e. Áslaugu Jónsdóttur
17/2 kl. 13.30 og 15
allra síðustu sýningar
Skilaboðaskjóðan 17/2 örfá sæti laus
FÖSTUDAG 15. FEB KL. 20:30
BERGÞÓRA ÁRNADÓTTIR 60 ÁRA
Minningartónleikar um söngvaskáldið
ÖRFÁ SÆTI LAUS
SUNNUDAG 17. FEBRÚAR KL. 20
ÞJÓÐARGJÖF TIL ÍSLENDINGA
Einn fremsti kammerkór heims.
NOKKUR SÆTI LAUS
ÞRIÐJUDAG 19. FEBRÚAR KL. 20
DENIS BOURIAKOV OG
VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON
Tvær rísandi stjörnur.
ÖRFÁ SÆTI LAUS
27. febrúar
28. febrúar
2.mars