Fréttablaðið - 14.02.2008, Qupperneq 70
46 14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
14
14
7
16
12
14
7
RAMBO kl. 8 - 10
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 6 ÍSLENSKT TAL
ATONEMENT kl. 5.50 - 10
BRÚÐGUMINN kl. 8
16
12
7
14
12
7
16
MEET THE SPARTANS kl.6 - 8 -10
WALK HARD kl.6 - 8
THE DARJEELING LIMITED kl.6 - 10.10
BRÚÐGUMINN kl. 5.50 - 8 - 10.10
ALIEN VS PREDATOR 2 kl. 8 - 10.10
MEET THE SPARTANS kl. 6 - 8 -10
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 3.30 - 5.40 ÍSLENSKT TAL
WALK HARD kl. 5.30 - 8 -10
CLOVERFIELD kl. 10
BRÚÐGUMINN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
BRÚÐGUMINNLÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 4 ÍSLENSKT TAL
RAMBO kl. 8.30 - 10.30
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 8 ÍSLENSKT TAL
ATONEMENT kl. 9
CHARLIE WILSONS WAR kl. 10.30
BRÚÐGUMINN kl. 8 - 10.10
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
"FRAMÚRSKARANDI!"
- HJJ, MBL
EITTHVAÐ SKELFILEGT
ER Á SVEIMI!
FRÁBÆRA GAMANMYND SEM GERIR GRÍN
AF 300 SEM OG ÖÐRUM NÝLEGUM OG
VINSÆLUM BÍÓMYNDUM!
SANNIR SPARTVERJAR
FRIÐÞÆING
ALVÖRU HETJUR
DEYJA ALDREI
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
SELFOSS
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 16
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 VIP
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10:30 L
SWEENEY TODD kl. 5:30 - 8 - 10:30 16
UNTRACEABLE kl. 10:30 16
CHARLIE WILSON´S WAR kl. 8 12
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 7
NAT. TREASURE 2 kl. 10:30 12
TÖFRAPRINSESSAN M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L
NO COUNTRY ... kl. 5:40 - 8 - 10:30 16
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10:30 L
SWEENEY TODD kl. 10D 16
UNTRACEABLE kl. 8 16
THE GAME PLAN kl. 5:40 L
AKUREYRI
NO COUNTRY ... kl. 8 16
MEET THE SPARTANS kl. 8 7
MIST kl. 10 16
SWEENEY TODD kl. 10 16
P.S. I LOVE YOU kl. 8 L
CHARLIE WILSON´S WAR kl. 10:10 12
CLOVERFIELD kl. 10:30 14
BRÚÐGUMINN kl. 8 7
MEET THE SPARTANS kl. 8 - 10 12
UNTRACEABLE kl. 8 16
CLOVERFIELD kl. 10:10 16
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR BIG LEBOWSKY,
BLOOD SIMPLE OG FARGO KEMUR NÝTT MEISTARAVERK!
H.J. MBL
8Ó S K A R S ® T I L N E F N I N G A RMEÐAL ANNARSB E S T A M Y N D I N
Æðisleg mynd með óskarsverðlaunaleikkonuninni
Hilary Swank og Gerard Butler úr 300.
KEFLAVÍK
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
RAMBO kl. 6, 8 og 10-P 16
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.30 L
ATONEMENT kl. 5.30, 8 og 10.30 12
CLOVERFIELD kl. 8 og 10 14
- Dóri DNA, DV
- H.J. MBL
2
- E.E. DV
2
- 24. Stundir
- S. V. MBL
- V.I.J. 24 Stundir
Made in the Dark er þriðja plata
Hot Chip í fullri lengd. Frum-
smíðin Coming on Strong kom út
2004 og lofaði góðu. The Warn-
ing kom fyrir tveimur árum og
innihélt meðal annars hinn ómót-
stæðilega, nánast ávanabindandi
grúv-smell Over & Over. The
Warning var töluvert sterkari
plata en Coming on Strong
þannig að eftirvæntingin var
töluverð fyrir útkomu Made in
the Dark.
Ég verð að viðurkenna að
þegar ég renndi plötunni í gegn í
fyrsta skipti varð ég ekki fyrir
mjög miklum hughrifum. Þetta
hljómaði eitthvað svo tilþrifalít-
ið. Eina lagið sem stóð upp úr
var smáskífulagið frábæra
Ready for the Floor. Þegar ég
hlustaði meira og hækkaði vel í
græjunum fór hins vegar afgang-
urinn af plötunni að svínvirka
líka. Made in the Dark er popp-
aðasta Hot Chip-platan hingað
til. Flest lögin láta frekar lítið
yfir sér í byrjun en detta svo inn
hvert af öðru við ítrekaða spilun.
Hljómurinn er mjög flottur og
nýtur sín áberandi betur í góðum
græjum á miklum styrk. Hot
Chip-menn virðast fara svo létt
með að búa til lúmskt grúv að
það hljóta að teljast sérgáfur.
Það er létt og hresst yfirbragð
yfir Hot Chip, sem smitar áhorf-
endur auðveldlega á tónleikum
eins og við Reykvíkingar höfum
þegar fengið að kynnast í nokk-
ur skipti. Textarnir undirstrika
líka þennan léttleika. Þeir eru
engan veginn djúpir eða
merkilegir þannig séð, en oft
skemmtilegir.
Á Made in the Dark eru þrett-
án lög, flest góð, og heildarsvip-
urinn er sterkur, en Shake a Fist,
Ready for the Floor, Made in the
Dark, One Pure Thought, Don’t
Dance og Hold On eru hrein
snilld. Trausti Júlíusson
Meistarar lúmska grúvsins
TÓNLIST
Made in the Dark
Hot Chip
★★★★
Þessi þriðja plata Íslandsvinanna
hressu í Hot Chip lætur lítið yfir sér
við fyrstu kynni en fer að svínvirka
eftir nokkrar hlustanir. Spilist hátt!
„Bræður og systur“, baráttutónleikar Bubba
Morthens gegn rasisma, hafa fengið gífurleg
viðbrögð. „Ég er nánast búinn að vera
fastur í símanum síðan þetta spurðist
út,“ segir Páll Eyjólfsson, umboðs-
maður Bubba, sem tók við umsókn-
um. „Á annað hundrað hljóm-
sveita og listamanna hafa
hringt inn og lýst yfir áhuga
á að styðja við þetta mjög
svo þarfa verkefni. Það má
segja að allar flóðgáttir hafi
opnast. Fólk hefur fengið yfir
sig nóg. Margt fólk af erlendu
bergi brotið hefur líka hringt
inn og lýst yfir áhuga sínum að
koma að þessu með okkur.“
Dagskrá tónleikanna, sem
haldnir verða í Austurbæ næsta
miðvikudag, er farin að skýrast og
munu ólíklegustu listamenn koma
fram. Mínus, Ný dönsk, Lay Low,
Ragnheiður Gröndal, Hjálmar,
Poetrix, South river band, Raggi
Bjarna og Þorgeir Ástvalds, Buff,
Ellen Kristjáns, Sprengjuhöllin,
Fabúla og ónefnd hljómsveit
skipuð Pólverjum eru meðal
þeirra sem ætla að rokka gegn
rasisma en eitthvað mun
bætast við þennan myndar-
lega lista á næstu dögum.
Frítt verður inn á tónleikana
á meðan húsrúm leyfir.
- glh
Stjörnuflóð gegn rasisma
„Fyrir lengra komna“ er
fyrsta plata rapparans
Poetrix, eða Sævars Daníels
Kolandavelum eins og hann
er þekktur innan fjölskyld-
unnar og hjá skattstofunni.
Sævar er tuttugu og tveggja
ára. Platan hefur lengi verið
á leiðinni en kemur loksins
út á morgun.
„Það rann af mér þegar ég var 19
ára,“ segir Sævar, „Á áfangaheim-
ilið kom maður í heimsókn, Hákon
Jens Pétursson, sem ég leyfði að
heyra þetta dót sem ég hafði verið
að gera síðan ég var 16 ára. Hann
gerir reyndar fyrir mig mynd-
bönd í dag. Hann vildi endilega
láta taka þetta betur upp og kom
mér í samband við frænda sinn,
Finn Hákonarson. Síðan þá hefur
þetta verið að vinda upp á sig.“
Haugur af listamönnum kemur
fram á plötu Poetrix. Bubbi Mort-
hens, Einar Ágúst, Steve Sampling
og Reynir kokkur, ógæfumaður í
Reykjavík sem Sævar sá texta
eftir í dagblaði og fékk til að lesa
inn á plötunni. Hann gefur plötuna
út sjálfur en fær hjálp hjá Prime.
Sævar segist hafa sérstöðu
innan íslenska hipphoppheimsins.
„Ég kann ekkert í tónlist. Ég veit
bara hvað fílingur er. Ég er með
rosalega einfalda uppskrift: Feitar
trommur, feitan fönkí bassa og
góðar melódíur. Ég reyni að gera
músík sem nær hlustandanum og
snertir í honum sálina á sama hátt
og mig. Það eru margir mjög góðir
rapparar, en það sem kannski skil-
ur mig að frá restinni, er hversu
persónulega ég kýs að nálgast
textagerðina. Hlustandinn fær að
skyggnast inn í líf mitt.“
Þegar kemur að textagerðinni
er Sævar ekkert að skafa utan af
því. „Ég vil meina að ég sé besti
textahöfundurinn í íslenskri tón-
listarsögu – hlustaðu bara.“ Og
lítið er um svör við spurningunni
hver sé þá næstbestur – „Margir
gömlu textarnir hans Bubba eru
mjög fallegir í einfaldleik sínum
og Vivid Brain er magnaður líka,“
segir Sævar eftir nokkra umhugs-
un. Honum hefur lent saman við
strákana í Rottweiler. „Þeir eru
eitthvað illir út í mig af því ég
sagði þá ekki nógu góða. En ég er
ekki í neinu „beefi“ við þá. Ég hef
ekkert á móti gaurunum og finnst
Erpur frekar klár og sniðugur
náungi.“
Sævar hefur úr djúpum reynslu-
brunni að moða. Hann nær bráð-
lega þremur árum í edrúmennsku,
en það þurfti níu meðferðir á Vogi
áður en það hafðist. Hann er þakk-
látur uppþurrkunarbatteríinu.
„Það bjargaði lífi mínu en það gæti
líka verið betra. Ríkið er að klikka,
sérstaklega í forvarnamálum. Það
fara mörg hundruð milljónir í ein-
hverja íþróttaálfa sem fara á milli
skóla til að segja krökkunum að
dóp og áfengi sé slæmt. Þetta virk-
ar ekki neitt, gæti ekki sannfært
þriggja ára krakka. Sjálfur sá ég
bara matseðla. Ég furða mig á
þessari afstöðu því að fíknisjúk-
dómar eru stærsta samfélags-
meinið sem við glímum við í dag.“
Það var 12 spora kerfið sem
beindi Sævari að lokum af vegin-
um til glötunar. „Ég er samt ekki
yfirlýstur meðlimur neinna sam-
taka eða trúarbragða,“ segir rapp-
arinn. Hann segir mikinn mis-
skilning að viljastyrkur hafi
eitthvað með árangur að gera.
„Það drekkur sig enginn í gegn-
um níu meðferðir bara af því að
hann skortir viljastyrk. Guð veit
að ég fékk nógu góðar ástæður til
að hætta án þess að takast það. Ef
þetta hefði eitthvað með vilja-
styrk að gera væru allir alkar
löngu hættir að drekka. Þetta er
sjúkdómur, bara eins og krabba-
mein. Það hættir enginn að vera
með krabbamein bara ef hann vill
það nógu mikið.“
gunnarh@frettabladid.is
Skyggnst inn í líf manns sem
hefur farið í níu meðferðir
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
RAGGI OG LAY LOW Eru meðal þeirra sem brugð-
ust við ákalli Bubba og syngja gegn rasisma.
BESTI TEXTAHÖFUNDURINN Í
ÍSLENSKRI TÓNLISTARSÖGU
Poetrix er ekkert sérstaklega
hógvær. Fyrsta plata hans kemur
út á morgun. Meðal gesta á
plötunni eru Bubbi Morthens og
Einar Ágúst.