Fréttablaðið - 14.02.2008, Side 78
54 14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
„Stundum er það ABT-mjólk, en
stundum læt ég það bíða þar
til ég er komin í vinnuna og fæ
mér þá bara kaffi. Það er ekki
mjög hollt að sleppa morgun-
matnum en hollusta hefur
aldrei verið mér mjög ofarlega
í huga.“
Nanna Rögnvaldardóttir, ritstjóri og
matargúrú.
LÁRÉTT
2. lampi 6. guð 8. eldsneyti 9. fornafn
11. núna 12. fáni 14. grín 16. utan 17.
rá 18. yfirgaf 20. belti 21. fullnægja.
LÓÐRÉTT
1. gryfja 3. kringum 4. áttfætla 5.
traust 7. dávænn 10. þunnur vökvi
13. loft 15. glyðra 16. upphrópun 19.
holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lukt, 6. ra, 8. mór, 9. öll,
11. nú, 12. flagg, 14. spaug, 16. út, 17.
slá, 18. fór, 20. ól, 21. fróa.
LÓÐRÉTT: 1. gröf, 3. um, 4. kónguló,
5. trú, 7. allstór, 10. lap, 13. gas, 15.
gála, 16. úff, 19. ró.
Fátt hefur vakið jafn mikla
athygli í auglýsingabransanum
síðustu mánuði og auglýsingin
frá Geymslur.com. Það er helst
hið grípandi lag sem vekur athygli
og fær fólk til að brosa. Tvíhöfði
gerði grín að laginu á dögunum í
Laugardagslögunum þegar Jón
Gnarr þóttist vera höfundur aug-
lýsingarinnar. Það var reyndar
Valgeir Guðjónsson sem samdi
lagið.
„Þetta var alveg kostulegur
skets hjá þeim,“ segir Valgeir,
sem er himinlifandi með viðtök-
urnar. „Það er gaman að vita til
þess að þessi litla fjölskylduiðn-
aðarauglýsing skuli hafa risið
svona til hæstu metorða.“
Eigandi Geymslur.com er Hall-
grímur Tómas Ragnarsson,
mágur Valgeirs, en Kári Schram,
frændi Hallgríms, tók auglýsing-
una upp. „Við hlógum mikið að
þessu þegar Hallgrímur bað mig
um að gera lag því þetta er nátt-
úrlega einhver mest ósexí vara
sem hægt er að láta sér detta í
hug,“ segir Valgeir. „Það var lítill
tími til stefnu. Ég settist niður og
notaði svo það fyrsta sem mér
datt í hug. Það hefur oftast reynst
betur en að rembast eins og rjúp-
an við staurinn. Sem betur fer
fannst Hallgrími lagið jafn fyndið
og mér.“
Hin einfalda auglýsing sló strax
í gegn. „Það var eins og við mann-
inn mælt að eftir nokkrar birting-
ar var allt orðið fullt í geymslun-
um í Garðabæ. Nú er verið að
opna nýtt útibú úti á Granda svo
auglýsingin var sett aftur af stað.
Það er á góðri leið með að fyllast
allt þar líka.“
Valgeir vann mikið við auglýs-
inga-lagagerð á árum áður fyrir
stóra kúnna. Hann samdi til að
mynda „Mjólk er góð“-stefið sem
hann segir að hafi verið notað í
áttatíu mismunandi auglýsingum.
„Menn koma og fara í þessum
bransa,“ segir Valgeir, „en þetta
er skemmtileg vinna. Í dag er ég
að vinna í allt öðrum heimi. Ég og
konan mín höfum verið að þróa
hugbúnað fyrir skólamarkaðinn
sem miðar meðal annars að því að
nemendur fái hærri einkunnir.
Nemar þurfa líka að hvíla sig og
því eru þarna inni nokkur slökun-
arstef eftir mig. Slökunartónlist
er yfirleitt alveg hræðilega leið-
inleg, en ég reyni að fara nýjar
leiðir.“ gunnarh@frettabladid.is
VALGEIR GUÐJÓNSSON: SLÆR Í GEGN MEÐ GEYMSLUR.COM-LAGINU
Fyndið lag selur ósexí vöru
GEYMSLUR! Valgeir Guðjónsson er höfundur Geymslu-lagsins vinsæla.
„Staðan er sú að ég er að athuga
hvernig ég get komið til móts við
hana og hennar aðstæður. Hún
hefur verið í fæðingarorlofi, er
með ungabarn heima og það er
meira en segja það að fara frá því
í 10 til 12 tíma vinnu á dag. Það er
rosalegt álag eins og gefur að
skilja,“ segir Þórhallur Gunnars-
son ritstjóri Kastljóss.
Frétt þess efnis að Jóhanna Vil-
hjálmsdóttir væri hætt í Kastljós-
inu vakti mikla athygli í gær. Faðir
Jóhönnu er Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarfulltrúi sem átt
hefur undir högg að sækja og
berst nú fyrir sínu pólitíska lífi.
Meðal þess sem honum sem stjórn-
málamanni er legið á hálsi fyrir
eru ummæli sem hann lét falla í
Kastljósi, í samtali við Sigmar
Guðmundsson, þess efnis að hann
hefði borið umboð sitt undir borg-
arlögmann í hinu svokallaða REI
máli. Borgarlögmaður neitaði að
tjá sig um málið og kom síðar á
daginn að það var fyrrverandi
borgarlögmaður sem Vilhjálmur
vísaði til. Menn hafa gert því
skóna að Jóhanna hafi hætt í Kast-
ljósinu vegna þess að hún sé ósátt
við framgöngu fjölmiðla, og þar
með Kastljóssins, í tengslum við
umfjöllun um vandræði Vilhjálms.
Vísir greindi svo frá því, eftir
samtal við Jóhönnu, að ekki sé
búið að ganga frá neinu, og hún líti
svo á að hún sé enn starfsmaður
Kastljóss.
„Margir eru ósáttir við umfjöll-
un Kastljóss. En, við erum ekki að
semja um hvort hún sé sátt við
umfjöllun þáttarins eða ósátt. Þá
værum við einfaldlega ekki að
ræða saman,“ segir Þórhallur.
Hann segir að starf við frétta-
þáttinn Kastljós sé langt í frá fjöl-
skylduvænt. Þórhallur segist
gjarnan vilja fá Jóhönnu aftur til
starfa og verið sé að finna flöt á
því hvort hægt sé að koma til móts
við hennar aðstæður með hugsan-
lega breyttu vinnufyrirkomulagi.
„Við erum öll góðir vinir innan
þessa hóps og þar með talin
Jóhanna.” - jbg
Jóhanna Vilhjálms hætt við að hætta
JÓHANNA OG PABBI Þórhallur Gunnars-
son leitar leiða til að Jóhanna Vilhjálms-
dóttir geti starfað áfram í Kastljósinu.
„Ég lenti fyrir öðru hjóli síðasta sumar, hruflaðist
töluvert í andliti þannig að það þurfti að sauma í
kringum augað tuttugu spor. Ég var nú reyndar bara
heppinn að halda auganu,“ segir þingmaðurinn
skeleggi Bjarni Harðarson sem þeysist um á mótor-
hjóli við hvert tækifæri.
Að sögn þingmannsins eru hjólin sem
hann þeysist um á svokölluð Enduro-hjól
eða fjallabifhjól. „Þau fara út um allt,
upp á hálendi og ég veit ekki hvað og
hvað. Við getum nokkurn veginn farið
það sama og jeppar komast þótt við
eigum kannski stundum í erfiðleikum
með stórar jökulár. En við komumst samt
glettilega leiða okkar,“ segir Bjarni sem að
sjálfsögðu er á stærsta hjólinu í sínum hópi
og það lék aldrei neinn vafi á því hvernig
litur væri á hjólinu, grænn eins og litur fram-
sóknarflokksins. „Mitt er miklu þyngra
og meira krassandi en að sama
skapi er auðveldara að sitja það.“
Og þingmaðurinn er augljós-
lega ánægður með að vera
kominn aftur á ferðina. „Já, það
var mikill fögnuður að komast
út í náttúruna,“ segir Bjarni
sem óttast þó ekki að slasast aftur þrátt fyrir
ófarir síðasta árs. „Oftast eru vegirnir þannig að
fimmtíu til sjötíu kílómetra hraða þykir
nokkuð mikið þannig að þetta er aldrei
rosaleg ferð. Við erum heldur
ekki mikið innan um aðra
umferð heldur bara einir
einhvers staðar úti í
náttúrunni,“ bætir Bjarni
við en segir það þó algjört
lykilatriði að vera með
hjálm og í réttu græjun-
um. -fgg
Bjarni á grænu framsóknarhjóli
ÞINGMAÐUR Á FERÐ Bjarni Harðarson, fyrir miðju, með
græna hjólið sitt sem hann keyrir um náttúru Íslands.
Frétt blaðsins af sér-
kennilegri uppákomu í
umhverfis- og samgöngu-
ráði í gær í tengslum
við hvort varaformað-
ur ráðsins yrði Ásta
Þorleifsdóttir eða
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir hefur
vakið mikla furðu
manna á meðal.
Ekki síst þau
ummæli Ástu, í
tengslum við að
F-listinn ætti að eiga
tvo fulltrúa í ráðinu,
að sjálfstæðismenn
hafi talið Helgu Jóhannesdótt-
ur til F-listans af því hún er kona
Ómars Ragnarssonar. „Krúttlegur
misskilningur,” segir Ásta. En víst er
að Helgu þykir fátt eitt krúttlegt við
þessa neyðarlegu uppákomu. Hún
gekk í Sjálfstæðisf lokkinn 18 ára
gömul og hefur verið þar jafn lengi
og Gamli góði Villi.
Nokkurt uppþot varð á
fréttastofu Ríkisútvarps-
ins í gær og var Óðinn
Jónsson fréttastjóri
ókátur vegna fréttar
blaðsins sem var undir
fyrirsögninni „Stolin
frétt af stolnu vöru-
merki”. Ómar Örn
Ólafsson á Eyjunni
birti frétt af sláandi líkindum milli
merkja kínverska fyrirtækisins
Sutor og merkis Símans. Korteri
síðar birtu RÚV-arar á sinni síðu
svipaða frétt. Og furðuðu sig á því
að frétt þeirra fór sem eldur í sinu
um netið án þess að heimilda væri
getið. Ómari þótti þetta líka furðu
sæta og dró þá ályktun að sín frétt
hefði kveikt í RÚV-urum með að
segja af málinu. En þeir
hjá RÚV höfðu þá
lengi verið að kanna
málið og vissu ekki
af frétt Ómars. Þeim
líður nú eins Jóni sem
ávallt var kallaður Jón
þjófur – af því að
frá honum var
stolið. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
MISSTI NÆSTUM AUGAÐ
Bjarni missti næstum augað eftir slys
síðasta sumar en þá þurfti að sauma
tuttugu spor í kringum það eftir að
þingmaðurinn fékk mótorhjól yfir sig.
Nr. 7 - 2008
Verð 659 kr.
14. feb. – 20
. feb.
ÁSTFANGIN
Í ALVÖRU!
GLAMÚR
OG GLEÐI!
Bara í
SAFNAR
RASSI!
Rebekka stefnir
á Evróvisjón:
9
7
7
1
0
2
5
9
5
6
0
0
9
Stjörnuárshát
íð 365 miðla:
Sjáið
myndirn
ar!
Örn Arnarson og
Hólmfríður Magnú
sdóttir:
Siggi og Jara
í Kræ-Beibí:
Gerir
lífið
skem
mtile
gra!Karl Ágúst
og Ásdís Olsen:
GAMLAR FEGURÐAR-
DROTTNINGAR
Í nýju
ljósi
Súrt og sætt!