Fréttablaðið - 18.03.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
EFNAHAGSMÁL „Horfurnar eru ekki
góðar,“ segir Finnur Árnason, for-
stjóri Haga, og telur verðhækk-
anir fram undan í kjölfar mikillar
gengislækkunar krónunnar undan-
farna daga. Undir það taka fleiri
verslunarmenn. Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, segir þetta stað-
festa það skipbrot sem peninga-
stefna Seðlabankans hafi beðið.
Grétar Þorsteinsson, forseti
Alþýðusambandsins, segir þessa
þróun mikið áhyggjuefni.
Alþjóðlega viðskiptafrétta-
veitan Bloomberg sagði í gær að
íslenska krónan hefði lækkað
gagnvart öllum 178 gjaldmiðlun-
um sem veitan fylgist með.
Krónan hefur aldrei áður veikst
jafnmikið milli daga, um sjö pró-
sent, frá því flotgengi hennar var
tekið upp árið 2001. Auknar
áhyggjur af að bankarnir og ríkið
gætu ekki staðið við fjárhags-
legar skuldbindingar segir Bloom-
berg hafa haft þessi áhrif. Álag á
skuldatryggingar, sem lánveit-
endur kaupa gegn hugsanlegu
tapi, hefði hækkað í kjölfar vanga-
veltna um að ríkisvaldið þyrfti að
bjarga einum bankanum vegna
áhrifa lánsfjárkreppunnar.
„Íslenska krónan verður einna
harðast úti vegna undirmáls-
kreppunnar í Bandaríkjunum og
áhrifa hennar á lánsfjármarkað-
inn,“ segir í greiningu Ulrich
Leuchtmann hjá Commerzbank.
„Búast má við að krónan veikist
enn frekar.“
Sérfræðingar hér innanlands
rekja hins vegar veikingu krón-
unnar fremur til almennrar
áhættufælni á fjármálamörkuð-
um, enda lækkuðu aðrar hávaxta-
myntir líka. Þá er sagt ýta undir
fall krónunnar að hér hefur þurrk-
ast út ábati af gjaldeyrisviðskipt-
um með krónunna vegna tregðu
fjármálafyrirtækja til að láta frá
sér erlendan gjaldeyri.
Greiningardeild Kaupþings
segir seljanleika krónunnar hafa
minnkað verulega vegna mót-
byrsins á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum. Kallað er eftir því að
Seðlabankinn bregðist við og
útvegi bönkunum gjaldeyri með
skiptasamningum til skemmri
tíma, en í þeim efnum er smæð
gjaldeyrisforða bankans sögð
hamla aðgerðum.
Einnig hafa verið uppi hug-
myndir um að ríkisvaldið gefi út
víxla til skemmri tíma sem
erlendir fjárfestar, sem vilji nýta
sér háa vexti krónunnar, geti
keypt.
„Ég vona að þetta endi vel varð-
andi Ísland, en ef við hugum að
því sem gerðist hjá Bear Stearns
eru horfur verri en fyrir viku,“
segir Paal Ringholm, forstöðu-
maður greiningardeildar láns-
fjármarkaða hjá First Securities í
Noregi, sem er hluti af Swedbank
AB. „Allir bankar eru háðir fjár-
mögnun og í dag njóta íslenskir
bankar ekki trausts á markaðn-
um.“ - sjá síður 4, 6 og 14
Smá l
Guðrún Jóhannsdóttir matgæðingur hefur skrifað
tvær handhægar matreiðslubækur, Hollt og ódýrt og
Hollt og fljótlegt sem Salka gefur út.„Í mínum huga er hollur matur fyrst og fremst fólginn í
fjölbreytni,“ segir Guðrún sem er óhrædd við að prófa nýj-
ungar í matargerð og lítur á það sem ævintýri að fara í sér-
staka leiðangra að leita að kryddi.Lesendur Fréttablaðsins þekkja Guðrúnu að góðu. Hún
hefur verið með matarpistla og uppskriftir í blaðinu í rúm
þrjú ár undir yfirskriftinni Til hnífs og skeiðar. Lengi vel
miðuðust hráefniskaup við þúsundkallinn og hafa áreiðan-
lega margir blessað Guðrúnu í huganum fyrir lækkaðan
matarreikning. Nú eru þessar uppskriftir komnar út á bók
sem heitir Hollt og ódýrt. „Sumar uppskriftirnar hafði ég notað sjálf í mörg ár en
aðrar voru þróaðar næstum jafnóðum með tilraunastarf-
semi því ég hef alla tíð verið forvitin og óhrædd við að prófa
mig áfram. Mér þykir gaman að sækja í matreiðsluhefðir
annarra landa og gera mínar útfærslur á réttunum og finnst
líka frábært hversu framboð af góðu og fjölbreyttu hráefni
hefur aukist hér á landi. Í þeim meðbyr sem ég haft í sam-
bandi við pistlana finn ég að margir eru opnir fyrir því að
prófa uppskriftir og spennandi krydd úr fjarlægum álfum.
Mér finnst hugmyndin um að ferðast með bragðlaukunum
heillandi.“
Spurð hvernig gangi að halda kostnaði niðri en vera samt
með framandi hráefni svarar hún: „Margt af því sem til-
heyrir ítalskri og austurlenskri matargerð er frekar ódýrt
en í bókinni Hollt og fljótlegt einskorða ég mig ekki bara
við ódýru uppskriftirnar. Guðrún tekur sjálf myndirnar í bækurnar. „Þegar ég
byrjaði á pistlunum þá vildi ég ekki binda mig við að fá ljós-
myndara á ákveðnum tíma heldur elda réttinn þegar það
hentaði mér og innblásturinn kom. Ég hafði föndrað við
ljósmyndun og ákvað að taka myndirnar sjálf. Svo hefur
það þróast yfir í mikla ástríðu og áhuga á matarljósmynd-
un. Það má því segja að hér sé algert tilraunaeldhús.“
Guðrún gefur lesendum Fréttablaðsins uppskrift að
ítölskum tvíbökum á bls. 6.
Óhrædd við að prófa sig áfram
ÍSLENS
Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
18. mars 2008 — 77. tölublað — 8. árgangur
RAKEL HÚNFJÖRÐ
Þægilegt á ferðum að
þurfa ekki tannkrem
heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Ungmenni flykkjast
í leikhús
María Sigurðardóttir
kemur sér fyrir í
Samkomuhúsinu á
Akureyri.
TÍMAMÓT 20
ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN
Stóra stundin rennur
upp í kvöld
Sérblað um íslensku tónlistarverðlaunin
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Dansaði eins og
Jackson
Hreiðar Már Sigurðs-
son fór á kostum á
árshátíð Kaupþings.
FÓLK 34
VORLEGT Í dag verður hæg breyti-
leg átt. Bjartviðri austan til, annars
þungbúnara og víða dálítil súld
vestan til á landinu. Hiti 3-10 stig.
VEÐUR 4
4 5
4
65
1. JANÚAR 17. MARS
■ Gengi krónunnar
■ Úrvalsvísitalan
ÞRÓUN KRÓNU OG ÚRVALS-
VÍSITÖLU FRÁ ÁRAMÓTUM
119,68
6318
153,4
4652
KARL BRETAPRINS
Kallaður til vitnis í máli
hálfíslensks fjárkúgara
Lögmaðurinn með öll spjót úti
FÓLK 26
LANDBÚNAÐUR Sauðburður hófst í
fyrra fallinu á bænum Mógili II á
Svalbarðsströnd við Eyjafjörð í
fyrradag. Þá bar kindin Þoka
tveimur lömbum; mórauðri
gimbur og hvítum hrút. Halldóra
Kjartansdóttir, bóndi á Mógili og
eigandi Þoku, segir barnabarnið
sitt ekki hafa hikað við að gefa
nýbornu lömbunum nöfn.
„Dótturdóttir mín kom í heim-
sókn og nefndi þau. Sú mórauða
heitir Kolbrún en hrúturinn fékk
nafnið Pálmi,“ segir hún. Aðspurð
hvort einhverjar fyrirmyndir hafi
verið að nöfnunum svarar Hall-
dóra neitandi. „Henni datt þetta
bara í hug á staðnum.“
Um tvö hundruð fjár eru á
Mógili II, og byrjar sauðburður-
inn yfirleitt snemma í maí. Þoka
er því frekar snemma á ferðinni,
en Halldóra segir það ekki í fyrsta
skipti. „Hún bar á svipuðum tíma í
fyrra, og var þá fjórlembd. Hún
hefur eitthvað verið að skemmta
sér í fyrra fallinu í haust.“
- sþs
Kindin Þoka var snemma á ferðinni í sauðburði á Svalbarðsströnd í Eyjafirði:
Lömbin nefnd Kolbrún og Pálmi
Á MÓGILI Lömbin stilla sér upp fyrir ljós-
myndara ásamt móður sinni. Frá vinstri
eru Pálmi, Þoka og Kolbrún.
MYND/VÖLUNDUR JÓNSSON
VERÐLAG Bensínverð hefur aldrei
verið hærra hér á landi en það var
í gær. Yfir daginn hækkaði verðið
víðs vegar og algengt verð í
sjálfsafgreiðslu var 147,90
krónur. Lítrinn með þjónustu
kostaði þá 152,90.
Öll olíufélögin hækkuðu
verðskrá sína, nema Orkan og
Atlantsolía. Orkan bauð best í
gær; lítrann á 142,10 krónur.
Magnús Ásgeirsson hjá N1
sagði í samtali við Vísi að það
hefði fyrst og fremst verið snörp
lækkun gengisins í gær sem hefði
valdið hækkuninni. Kvaðst hann
vonast til þess að gengið hækkaði
aftur á næstunni. - kóþ
Olíufélög hækka verð:
Bensínverðið
aldrei hærra
Svartur mánudagur
Krónan féll um sjö prósent í gær sem er met. Hlutabréf hafa aldrei fallið samfleytt jafn mikið í verði og
síðustu átta mánuði. Bankastjórar ræddu við Seðlabankann í gær um erfiða stöðu á fjármálamarkaði.
Keflavík
komið í 2-0
Keflavík
stendur vel
að vígi gegn
Haukum í
úrslitakeppni Ice-
land Express-deildar
kvenna.
ÍÞRÓTTIR 31
VEÐRIÐ Í DAG
MÓTMÆLI Harðri framgöngu Kínverja í Tíbet var mótmælt við kínverska sendiráðið í Reykjavík í gær. Birgitta Jónsdóttir listakona,
sem tók þátt í skipulagningu mótmælanna, krafðist þess fyrir hönd mótmælendanna að fjölmiðlafólki og fulltrúum mannrétt-
indasamtaka yrði hleypt inn í Tíbet. Í bakgrunni eru tröppur sendiráðsins, sem Jan Jiricek málaði rauðar í fyrradag í mótmæla-
skyni. - Sjá síðu 12 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óléttar stýrur og ófrískar
„Ég vona að leitin að öðru orði
en ráðherra fyrir konur í þeirri
stöðu lukkist ekki. Herra merkir
vald og yfirráð. Ekki bara herrann
sem er með frúnni,“ skrifar Jónína
Michaelsdóttir.
Í DAG 16
MENNING Íslendingar verða
fyrstir á svið í forkeppni
söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í Belgrad í
Serbíu.
Tvær undankeppnir verða
og leikur íslenska Eurobandið,
með Friðrik Ómar og Regínu
Ósk í broddi fylkingar, seinna
kvöldið, 22. maí. Svíar koma
strax á eftir Eurobandinu en
þess má geta að Danir spila
einnig þetta sama kvöld.
Aðalkeppnin fer fram
laugardagskvöldið 24. maí. - kóþ
Eurovision-söngvakeppnin:
Íslendingar
fyrstir á svið
EUROBANDIÐ Friðrik Ómar og Reg-
ína Ósk verða fyrst á svið.