Fréttablaðið - 18.03.2008, Page 19
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Flest notum við tannkrem á tannburstann
þegar við burstum tennurnar en það gerir
Rakel Húnfjörð, verslunarstjóri í Heilsuhús-
inu í Lágmúla, ekki. Hún notar sérstakan
tannbursta sem ekki þarf tannkrem á.
Svokallaður Jónatannbursti eða Soladey kom fyrst
fram á sjónarsviðið snemma á níunda áratugnum en
Japaninn dr. Yoshinori Nakagawa fann hann upp. Dr.
Nakagawa byggði nýja tannburstann á þeim vísindum
að þegar títaníum kemst í snertingu við vatn og ljós
myndast neikvæðar jónir. Þær gera umhverfið í
munninum basískt og þar með eyðast bakteríurnar í
munninum án þess að tannkrem eða munnskol þurfi
til.
Soladey-burstinn er gríðarlega vinsæll í Japan og
hefur verið að hasla sér völl hér á landi líka en hann
hefur einungis verið fáanlegur hérna síðan fyrir jól.
„Mér líkar vel við burstann en ég fékk mér eintak til
að prófa þetta og er búin að nota hann núna í einhverja
mánuði,“ segir Rakel.
En hvernig er að bursta tennurnar án tannkrems?
„Það er náttúrlega svolítið sérstakt en það virkar
alveg ótrúlega vel. Tennurnar verða skínandi hreinar
og mér fannst þær lýsast og var sérstaklega ánægð
með burstann fyrir það. Ég set líka stundum myntu-
dropa í burstann og í sjálfu sér er í lagi að nota tann-
krem en það er samt óþarfi.
Fólk er að uppgötva þennan tannbursta og er hrifið
af hugmyndinni en hann er tiltölulega nýlega kominn
á markaðinn. Það getur líka verið erfitt fyrir þá sem
eru mikið á náttúrulegu línunni að finna tannkrem
sem er án skaðlegra efna og svo er þetta auðvitað
mjög gott fyrir þá sem eru með tannholdsvandamál
eða vilja lýsa tennurnar.“
Rakel segir gott að nota kjarnaolíur með mismun-
andi bragði á burstann til að fá frískandi bragð í
munninn og nefnir að til dæmis sé Tea tree-olía góð
því hún er líka bakteríueyðandi. Passa þarf að setja
ekki of mikið en einn dropi er nóg.
„Mér finnst mjög gott að eiga þennan bursta. Það er
þægilegt á ferðalögum að þurfa ekki að taka með sér
tannkrem og ég hugsa að ég muni alltaf eiga jónatann-
burstann í veskinu mínu,“ segir hún ánægð.
heida@frettabladid.is
Jónir í stað tannkrems
Rakel Húnfjörð, verslunarstjóri í Heilsuhúsinu, er ánægð með jónatannburstann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Atson • Brautarholti 4 • s. 561-0060 • www.atson.is
FERMINGAGJAFIR
Seðlaveski
ókeypis nafngylling fylgir
Opnunartími:
mánudag - föstudag 8:00 - 17:00
fi mmtudag 8:00 - 19:00
laugardag 12:00 - 15:00
Skoðanakönn-
un sem Lýðheilsustöð
lét gera í janúar leiddi
í ljós að mun færri en
áður vilja að áfengi sé selt
í matvöruverslunum. Á
höfuðborgarsvæðinu er
stuðningur við sölu á bjór og
léttvíni meiri en á lands-
byggðinni og þeir sem yngri
eru styðja hana frekar en
þeir sem eldri eru.
Kuðungsígræðsla
hefur breytt lífi margra,
bæði þeirra sem farið
hafa í aðgerðina og
aðstandenda þeirra, sam-
kvæmt frétt á heimasíðu
Heyrnar- og talmeina-
stöðvar Íslands, www.hti.
is. Rúmlega 40 Íslending-
ar hafa farið í kuðungs-
ígræðslu, þar af tíu börn.
Tæknifrjóvgun gæti fljót-
lega orðið mögulegur valkostur
fyrir einhleypar íslenskar konur
sem vilja eignast börn. Heilbrigðis-
ráðherra skipaði síðasta haust
nefnd til að endurskoða reglugerð
um tæknifrjóvganir sem skilar af
sér á næstunni og er
talið líklegt að hún
leyfi tæknifrjóvgunar-
meðferð einhleypra
kvenna hér á landi.