Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 12
12 19. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR
FRAM FRAM FYLKING Benedikt XVI
páfi heldur á krossstaf í broddi fylking-
ar trúaðra sem gekk um götur Rómar
fyrir pálmasunnudagsmessu páfa á
Péturstorginu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FERÐALAG
ER ÞROSKANDI
FERMINGARGJÖF
GJAFABRÉFIÐ GILDIR SEM
GREIÐSLA UPP Í FLUGFAR
MEÐ ICELANDAIR
ÞÚ VELUR UPPHÆÐINA
+ Pantaðu fermingargjöfina
á icelandair.is/gjafabref
Gjafabréf gildir í tvö ár frá útgáfudegi.
W W W. I C E L A N DA I R . I S
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
15
30
03
/0
8
MÓTMÆLI „Ég ætla að kíkja hérna
við á hverjum degi með eitt kerti
eða bréf til að láta þá vita að ég veit
hvað er í gangi,“ segir Birgitta Jóns-
dóttir rithöfundur um mótmæli sín
fyrir utan kínverska sendiráðið í
Reykjavík.
Birgitta segir engin skipuleg
mótmæli vera fyrir utan sendiráð-
ið. „Ég ætla að koma hingað þar til
kínversk stjórnvöld hleypa alþjóð-
legum fjölmiðlum inn í Tíbet og
þangað til þeir leyfa alþjóðlega
rannsókn á því hvað varð um þessa
mótmælendur sem hafa verið hand-
teknir.“
Birgitta furðar sig á afskiptum
lögreglunnar af mótmælendum.
„Við vorum búin að vera hérna í
fimm mínútur þegar lögreglan kom.
Hún kemur hérna á um hálftíma til
klukkutíma fresti en þessir komu
sérstaklega til að hitta okkur.“ Segir
hún lögreglumenn hafa viljað fá
kennitölur mótmælenda og að sjá
skírteinin þeirra. „Maður hlýtur að
eiga rétt á að mótmæla án þess að
þurfa að ganga með skilríki.“
„Ég þekki ekki þetta einstaka til-
vik en lögregla spyr fólk oft um
deili á því,“ segir Árni Þór Sig-
mundsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn.
Árni Þór segir fólki ekki skylt að
bera skilríki. En fólki beri skylda til
að gera lögreglu grein fyrir sér ef
spurt er að nafni og beðið um per-
sónulegar upplýsingar. - ovd
Mótmæli við sendiráð Kína vegna Tíbet:
Furðar sig á afskipt-
um lögreglunnar
MOSKVA, AP Rússneski utanríkis-
ráðherrann Sergei Lavrov sagði í
gær að ríkisstjórnir Rússlands og
Bandaríkjanna greindi enn á um
eldflaugavarnir í Evrópu, en
bandaríski varnarmálaráðherr-
ann Robert Gates sagði á sama
blaðamannafundi í Moskvu að
eldflaugavarnakerfið myndi
„ekki vera nein ógn“ við Rúss-
land.
Gates og kollegi hans úr Banda-
ríkjastjórn, Condoleezza Rice
utanríkisráðherra, áttu í gær við-
ræður við ráðamenn í Moskvu um
þetta deiluefni sem rússneskir
ráðamenn, þar á meðal Vladimír
Pútín forseti, hafa notað stór orð
um á síðustu misserum.
Lavrov sagði á blaðamanna-
fundinum að Rússar litu enn svo á
að í áformum Bandaríkjamanna
um að setja upp búnað fyrir hnatt-
rænt eldflaugavarnakerfi sitt í
Mið-Evrópu fælist „áhætta“ fyrir
Rússland. En bæði Lavrov og
Rice lýstu trú á að ráðamenn í
Moskvu og Washington myndu
halda áfram að ræða þetta og
önnur mál á uppbyggilegum
nótum.
„Þegar okkur greinir á getum
við rætt málin í andrúmslofti
gagnkvæmrar virðingar,“ sagði
Rice.
Gates sagði Bandaríkjastjórn
hafa „teygt sig ansi langt“ til að
fullvissa Rússa um að þeim staf-
aði engin ógn af kerfinu.
„Ég myndi segja að þeir hafi
hlustað grannt,“ sagði Gates um
viðbrögð viðmælenda bandarísku
sendinefndarinnar í Kreml við
því sem hún hafði fram að færa í
málinu.
Fyrir fundinn með ráðamönn-
um í Moskvu átti Rice morgun-
verðarfund með völdum fulltrú-
um stjórnmálaafla í Rússlandi
sem ekki eiga aðild að ríkisstjórn-
inni. Garrí Kasparov, fyrrverandi
heimsmeistari í skák sem er aðal-
talsmaður bandalags stjórnar-
andstöðuflokka í Rússlandi,
greindi frá því í gær að sér hefði
ekki verið boðið til þessa fundar
með bandaríska utanríkisráð-
herranum. Að minnsta kosti tveir
fulltrúar stjórnarandstöðuflokka
voru á honum, en enginn af þekkt-
ustu gagnrýnendum Pútíns og
stjórnarhátta hans. Kasparov
hefur hvatt Bandaríkjastjórn til
að vera gagnrýnni í umgengni
sinni við ríkisstjórn Pútíns.
audunn@frettabladid.is
Enn ósætti um
eldflaugavarnir
Ráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands reyndu að
jafna ágreining um eldflaugavarnir í Evrópu á fundi
í Moskvu í gær. Viðræðurnar þykja framfaramerki.
RÆÐA ÁGREINING Robert Gates, Condoleezza Rice og Sergei Lavrov á blaðamanna-
fundi í Moskvu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRUSSEL, AP Talsmenn stjórnmála-
flokka bæði úr flæmsku- og
frönskumælandi hlutum Belgíu
tilkynntu í gær að þeir hefðu náð
samkomulagi um að mynda nýja
ríkisstjórn. Þar með bundu þeir
enda á pólitíska pattstöðu sem
varað hafði í níu mánuði, eða allt
frá því þingkosningar fóru fram í
júní í fyrra.
Þessi pattstaða, sem orsakaðist
fyrst og fremst af ólíkum hug-
myndum Flæmingja og Vallóna
um það hversu langt skyldi ganga
í að færa völd frá sambandsríkis-
stjórninni til landshlutastjórnanna,
vakti vangaveltur um að belgíska
konungsríkið kynni að leysast upp.
Yves Leterme, leiðtogi flæmskra
kristilegra demókrata, tilkynnti
um samkomulagið í gærmorgun,
eftir lokalotu viðræðna sem alls
fimm flokkar komu að og stóð
fram á morgun. Búist er við að
Leterme taki við af Guy Leterme,
sem farið hefur fyrir bráðabirgða-
ríkisstjórnini, strax á skírdag, er
samsteypuflokkarnir fimm og
meirihluti þingsins hafa samþykkt
stjórnarsáttmálann. - aa
Endir bundinn á níu mánaða pólitíska pattstöðu í Belgíu:
Ný stjórn tekur við á skírdag
NÝ STJÓRN Yves Leterme, verðandi forsætisráðherra, er hér annar f.v. ásamt fleiri
flokksforkólfum sem tóku þátt í stjórnarmyndunarviðræðunum. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu fékk
tilkynningar um tíu líkamsárás-
ir um síðustu helgi.
Voru þær nær allar minni
háttar en nokkrir þurftu samt að
leita á slysadeild vegna smá-
skurða og minni háttar meiðsla.
Meðal þeirra sem leita þurftu á
slysadeild var karlmaður sem
fór í sjómann á öldurhúsi í
miðbæ Reykjavíkur. Sá sem
tapaði tók því illa og svaraði
fyrir sig með því að slá hann. Af
þessum tíu líkamsárásum áttu
þrjár sér stað utan miðborgar-
innar, þar af ein í heimahúsi.
- ovd
Tíu líkamsárásir um helgina:
Sleginn eftir sig-
ur í sjómanni
ÍSRAEL, AP Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, braut blað í sögu Ísra-
elsþings er hún ávarpaði það í
gær, fyrst erlendra ríkisstjórnar-
leiðtoga sem ekki er jafnframt
þjóðhöfðingi.
Merkel hóf mál sitt á setningu á
hebresku, þar sem hún þakkaði
þingheimi fyrir að leyfa sér að
tala á móðurmáli sínu. „Þýskaland
og Ísrael eru og munu ætíð verða
tengd með sérstökum hætti í gegn-
um minninguna um helförina,“
sagði hún síðan. Kanslarinn árétt-
aði að Þýskaland yrði ávallt skuld-
bundið til að taka þátt í að tryggja
öryggi gyðingaríkisins, sem minn-
ist þess nú að 60 ár eru frá stofnun
þess. - aa
Tímamót á Ísraelsþingi:
Merkel í Knesset
MERKEL Í PONTU Fáeinir þingmenn
sniðgengu ræðuna í mótmælaskyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Doktor Anna formaður
Doktor Anna Agnarsdóttir prófessor
hefur verið skipuð formaður úthlutun-
arnefndar fræðimannsíbúðar Jóns
Sigurðssonar í Kaupmannahöfn. Með
henni í nefndinni eru doktorarnir og
rektorarnir Ágúst Einarsson á Bifröst
og Kristinn Ólafsson í Skálholti.
ALÞINGI
Ók of hratt á Eyrarbakkavegi
Lögreglan á Selfossi tók ökumann
um klukkan hálf tólf í gærmorgun á
Eyrarbakkavegi. Mældist bíll manns-
ins á 137 kílómetra hraða þar sem
hámarkshraði er 90. Má hann búast
við um 90 þúsund króna sekt.
Árekstur á Reykjanesbraut
Tveir bílar rákust saman á gatnamót-
um Reykjanesbrautar og Grænásvegs
við Njarðvík í hádeginu í gær. Var öku-
maður annarrar bifreiðarinnar fluttur
með minni háttar meiðsl í sjúkrabíl á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hinn
ökumaðurinn slapp án meiðsla.
LÖGREGLUFRÉTTIR