Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 16
16 19. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Unglingar með athyglis- brest og ofvirkni þurfa skilning og fyrirgefningu þegar þau fara yfir strikið. Þau vilja tilfinningalegan stuðning frá fjölskyldu, vinum og gæludýrum. Þeim finnst nauðsynlegt að fá hjálp þegar á þarf að halda. Unglingar á aldrinum 11 til 16 ára, sem hafa einbeitingarskort með ofvirkni, ADHD, eru sér meðvitað- ir um að þeir eigi það til að fara yfir strikið í samskiptum við aðra og að það skapi erfiðleika. Ungl- ingarnir hafa þörf fyrir nánd og nálægð við nánustu aðstandendur sína og vini. Þau telja sig fá tilfinn- ingalegan stuðn- ing frá gæludýr- um. Áslaug Birna Ólafsdóttir hjúkr- unarfræðingur hefur gert rann- sókn á þörfum unglinga með athyglisbrest og ofvirkni út frá sjónarhóli unglinganna sjálfra. Hún tók viðtöl við tíu unglinga með ADHD á höfuðborgarsvæð- inu og úti á landi. „Þeir nefna helst þörf fyrir nánd og nálægð. Þeir eiga í erfiðleikum vegna skorts á einbeitingu og ofvirkni og það kemur niður á samskiptum þeirra og krakkarnir lenda gjarnan í erfiðleikum,“ segir Áslaug Birna. „Þau tala um að umhverfið þurfi að skilja þau og hafa þekkingu á ADHD og á þeirra erfiðleikum en dæma þau ekki. Þau finna mikið fyrir fordómum og hafa þörf fyrir að það sé skilningur í umhverfinu og að þeim sé fyrir- gefið því að þau eru sér fylli- lega meðvituð um að þau sýni stundum óæskilega hegðun,“ segir hún. Skólinn er erfiðasti vettvangur lífsins hjá unglingunum og stór hluti af erfiðleikum þeirra á sér stað í skólanum. Unglingarnir hafa mikla þörf fyrir stuðning, umhyggjusaman og skilningsrík- an kennara sem hlustar á þau og reynir að skilja þau og hjálpa þeim. Eins hafa þau þörf fyrir að skólahjúkrunarfræðingurinn skilji og styðji. Sumir unglinganna hafa upplif- að einelti og eiga því erfitt með að treysta fólki. Mikið mæðir á sjálfs- myndinni í gegnum erfiðleikana sem þau ganga í gegnum og því þurfa þau að finna og byggja upp styrkleika sína, hafa von og geta treyst bæði á sjálf sig og aðra. Áslaug Birna segir að ungling- arnir hafi mikla þörf fyrir vini. Hún segir líka að sum þeirra eigi gæludýr og „það var nýtt fyrir mér. Ég hafði ekki séð neins stað- ar að gæludýr gætu skipt svona miklu máli en gæludýrin gáfu þeim mikinn tilfinningalegan stuðning þegar þeim leið illa,“ segir hún. „Sum þeirra höfðu sterka sjálfs- mynd, fannst þau vera frábær og klár og dugleg í vinnu meðan önnur voru hrædd við framtíðina og óttuðust að geta ekki bjargað sér sjálf. Þessi börn höfðu þörf fyrir von um bjarta framtíð.“ ghs@frettabladid.is Gæludýrin veita stuðning ÞURFA FYRIRGEFNINGU „Þau finna mikið fyrir fordómum og hafa þörf fyrir að það sé skilningur í umhverfinu og að þeim sé fyrirgefið,“ segir Áslaug Birna Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur sem hefur rannsakað þarfir unglinga með ADHD út frá sjónarhóli unglinganna sjálfra. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BIRKISSON Önnur voru hrædd við framtíðina og óttuðust að geta ekki bjargað sér sjálf. Þessi börn höfðu þörf fyrir von um bjarta framtíð. ÁSLAUG BIRNA ÓLAFSDÓTTIR HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Álver gegn gengisfell- ingu „Það besta sem við getum gert núna er að taka vel á móti þeim sem fjárfesta og vilja koma með peninga inn í landið, eins og til dæmis vegna álvers í Helguvík. Það myndi passa vel að þær fram- kvæmdir kæmust á skrið.“ ÁRNI MATHIESEN FJÁRMÁLARÁÐ- HERRA VEGNA EFNAHAGSÁSTANDS- INS. Fréttablaðið 18. mars Útrætt loftslagsmál „Umræðan um loftslagsbreyt- ingar er í vaxandi mæli að snúast um hvað sé hægt að gera en ekki um hvort þær séu að eiga sér stað eða ekki. Þeirri umræðu er í reynd lokið.“ ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON, FORSETI ÍSLANDS, VEGNA VÆNTAN- LEGRAR HEIMSÓKNAR AL GORE. Morgunblaðið 18. mars Nýtt pípuorgel, sem hefur verið pantað og verður vígt á tíu ára vígsluafmæli Grafarvogskirkju í júní 2010, mun kosta rúmlega 70 milljónir. Orgelinu hefur Hörður Áskelsson söngmálastjóri lýst sem „Rolls Royce. pípuorgela“. Orgelnefnd Grafarvogskirkju hefur verið falið að ganga til samn- inga við fyrirtækið Orgelbau Sei- fert um smíði orgelsins fyrir kirkjuna. Nú þegar hefur safnast umtalsvert fjármagn til kaupanna á því en betur má ef duga skal, að sögn séra Vigfúsar Þórs Árnason- ar sóknarprests. Því vill Grafar- vogskirkja leita til sóknarbarna sinna með framlög til orgelkaup- anna. „Gott er að hafa í huga gagn- vart þeirri söfnun sem við hefjum nú að margt smátt gerir eitt stórt,“ segir sr. Vigfús Þór. Með safnaðar- blaðinu Logafold fylgir nú gjafa- bréf sem afhenda má í bönkum Grafarvogsóknar og í kirkjunni og er þess vænst að þessari málaleit- an verði vel tekið af sóknarbörn- um. Grafarvogskirkju hafa borist stórgjafir til orgelkaupanna. Þess- ar gjafir leiddu til þess að hafist var handa við að undirbúa orgel- kaupin. Meðal gefenda eru Bónus, Landsbankinn og VÍS vátrygg- ingafélag Íslands. Gaf hvert fyrir- tæki tíu milljónir. Þá gáfu hjónin Kristín Vigfúsdóttir og Finnur Ingólfsson einnig 10 milljónir til orgelkaupanna. - jss Söfnun hafin fyrir pípuorgeli í Grafarvogskirkju: „Rolls Royce“ pípuorgela GRAFARVOGSKIRKJA Áætlað er að vígja nýja orgelið á tíu ára vígsluafmæli Graf- arvogskirkju í júní 2010. „Bensínverðið á ekki að hækka svona hratt því að maður veit alveg að olíufélögin liggja með lítra á lager. Eldsneyti er ekkert sem þeir kaupa frá degi til dags,“ segir Baldur Þórsson, söluráð- gjafi hjá Nýherja. „Mér finnst því óþarfi af þeim að hækka verðið strax og gengið breytist. Þeir ættu að endurskoða það frá mánuði til mánaðar, ekki degi til dags, ef þeir þurfa á annað borð að breyta verð- inu,“ heldur hann áfram og telur vel hugsanlegt að eldsneytisverð eigi eftir að hækka enn meira þótt honum þyki það ólíklegt. „Maður bjóst aldrei við því fyrir nokkrum árum að bensínverðið færi yfir 100 kall en nú bíður maður eftir því að það fari yfir 200-kallinn. Mér finnst að stjórnvöld megi nú lækka bensínskattinn þó ekki væri nema um tíu til fimmtán prósent. Ég held að ríkið fái hátt í 40 eða 50 krónur af hverjum seldum lítra og það er allt í lagi að minnka það aðeins tímabundið meðan verðið er hvað hæst.“ SJÓNARHÓLL SÍHÆKKANDI BENSÍNVERÐ Bíður eftir að það fari yfir 200-kallinn BALDUR ÞÓRSSON söluráðgjafi. Það er allt gott að frétta, vor í lofti og allt að gerast. Þegar ég finn lyktina af kúamykjunni og sé litla sprota vakna á trjánum fer maður allur að lifna sjálfur,“ segir Magnús Hlynur Hreiðarsson, garðyrkju- og fréttamaður á Suður- landi. Magnús Hlynur á von á góðu sumri. „Veturinn er búinn að vera harður og leiðinlegur, sem hlýtur að boða gott sumar – að minnsta kosti hér á Suðurlandi. Ég get ekki betur séð en að túnin komi vel undan vetri, þótt það séu auðvitað skaflar víða enn þá.“ Magnús ætlar að taka því rólega með fjölskyldunni yfir páskana, í mesta lagi kíkja í göngutúra sér til ánægju, og kveðst vera að safna orku fyrir stórafmæli. „Ég er ritstjóri Dagskrárinnar á Selfossi, sem fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir. Þetta er með elstu héraðs- blöðum landsins og fimmtudaginn 27. mars verður gefið út glæsilegt afmælisblað. Sama dag opnum við sýningu á Hótel Selfossi og skálum í kampavíni í leiðinni.“ Þótt það sé nóg að gera í garðyrkjunni á sumrin ætlar Magnús Hlynur að taka sér frí og bregða sér út fyrir land- steinana, til Danaveldis nánar tiltekið, enda lítt hrifinn af því að láta sólina baka sig á suðrænni strönd. „Ég er búinn að panta sumarhús í Danmörku í júní, ætla að vera þar í hálfan mánuð. Ég elska Danmörku, ég hlýt að hafa verið Dani í fyrra lífi.“ Magnús er þar að auki ávallt með augun opin fyrir fréttum fyrir Sjónvarpið. „Ég veit að það verður margt skemmtilegt að gerast hér um páskana. Maður á alltaf að vera sérstaklega vakandi fyrir jákvæðum fréttum. Það er það sem fólk vill heyra og sjá – það eru allir komnir með nóg af þessu svartagallsrausi um að allt sé að fara til fjandans.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON, GARÐYRKJU- OG FRÉTTAMAÐUR Fagnar 40 ára afmæli Dagskrárinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.