Fréttablaðið - 19.03.2008, Síða 18
18 19. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Átökin í Tíbet
Evran, sameiginlega Evrópumyntin, hefur nú náð metstyrkleika bæði gagnvart
íslensku krónunni og Bandaríkjadal. Að gengið skyldi geta þróast þannig
höfðu fáir trú á þegar evran varð til fyrir níu árum, enda átti hún í vök að
verjast gagnvart dollaranum á fyrstu misserunum eftir að evrópska mynt-
bandalagið komst á.
Hverjir nota evruna?
Sameiginlega Evrópumyntin er að svo stöddu lögeyrir í 15 af 27 aðildarríkjum
Evrópusambandsins. Á Evrusvæðinu búa 317 milljónir af alls 496 milljónum
íbúa ESB. Öll ný aðildarríki sambandsins eru skuldbundin til að ganga í mynt-
bandalagið, en það fá þau fyrst að gera þegar þau hafa uppfyllt efnahagsleg
skilyrði fyrir því. Bretland, Danmörk og Svíþjóð hafa kosið að standa utan
evrusvæðisins, en danska krónan er nú fasttengd evrunni.
Hver hefur gengisþróunin verið?
Er evran hóf göngu sína sem reiknimynt árið 1999 var gengi hennar 1,18
Bandaríkjadalir. Fyrstu misserin þar á eftir var óttast að nýja myntin væri of
veik og gengi hennar gagnvart dalnum lækkaði
niður í 0,82 í október 2000. Síðan þá hefur
gengið stöðugt farið hækkandi, mest þó nú
á síðustu misserum. Það veldur áhyggjum í
Evrópusambandinu af samkeppnishæfni
útflutningsgreinanna, en sterk evra ver
efnahagslífið jafnframt fyrir neikvæðum
áhrifum stöðugt hærra dollaraverðs á
innfluttri olíu.
Hvað kostar evran?
Gengi evrunnar gagnvart Bandaríkjadal
náði sögulegu hámarki á mánudag er ein
evra kostaði 1,5904 Bandaríkjadali. Þegar
viðskiptum lauk á gjaldeyrismarkaði hérlendis
á mánudag var gengi evrunnar rúmar 118 krónur
og hafði þá hækkað um fjórðung frá síðustu áramótum. Meðalgengi evrunnar
síðustu ár hefur verið á bilinu 85-90 krónur. Við lok markaða í gær var evran
svo í kringum 121 króna.
FBL-GREINING: GENGI EVRUNNAR
Styrkist stöðugt á
kostnað dollarans
Kínastjórn vísar ábyrgð-
inni á uppþotum í Tíbet
til Dalai Lama og gengur
fram af hörku við að kveða
þau niður. Ólíklegt er að
Ólympíuleikarnir í Peking
verði sniðgengnir vegna
þessa.
Stuðningsmenn Dalai Lama eru
aðskilnaðarsinnar og upphafs-
menn and-kínverskra uppþota í
tíbetsku höfuðborginni Lhasa.
Þessu lýsti Wen Jiabao, forsætis-
ráðherra Kína, yfir í gær. Þar
með tók forysta kommúnista-
stjórnarinnar í Peking af öll tví-
mæli um að hún væri staðráðin í
að gera allt sem í hennar valdi
stæði til að bæla niður uppþot
mótmælenda í Tíbet og samúðar-
mótmæli þau sem vart hefur
orðið víðar í Vestur-Kína.
Mótmælin hófust með friðsam-
legri göngu búddamunka í Lhasa
10. marz, en hefð er fyrir því að
minnast á þeim degi misheppn-
aðrar uppreisnar sem gerð var
árið 1959.
Dalai Lama hótar afsögn
Í því skyni að draga úr spennunni
hótaði Dalai Lama því í gær að
víkja sem leiðtogi útlagastjórnar
Tíbeta ef ofbeldi í tengslum við
mótmælin í Tíbet færi úr bönd-
unum. Hvatti hann landsmenn
sína til að sýna stillingu. Einn
helzti ráðgjafi Dalai Lama bætti
því við, að hann hótaði því að
víkja sem pólitískur leiðtogi
Tíbeta og þjóðhöfðingi þar sem
hann er algerlega á móti því að
ofbeldi sé beitt til að ná fram
markmiðinu um frjálst Tíbet.
En jafnvel þótt hann viki úr
hinu pólitíska embætti í útlaga-
stjórninni yrði hann áfram and-
legur leiðtogi þjóðarinnar.
Segjast hafa sannanir
Á blaðamannafundi í Peking, sem
annars var haldinn í tilefni af því
að árlegri samkomu kínverska
ráðgjafarþingsins var að ljúka,
hélt Wen því fram að stjórnvöld
hefðu „sannanir“ fyrir ásökunum
sínum um að „Dalai-klíkan“ hefði
„skipulagt, lagt á ráðin um, stýrt
og espað fólk
til þátttöku í“
uppþotunum í
Tíbet. „Þetta
hefur sýnt svo
ekki verði um
villzt að síend-
urteknar full-
yrðingar Dalai-
klíkunnar um
að hún sækist
ekki eftir sjálf-
stæði heldur friðsamlegri sam-
ræðu eru ekkert nema lygar,“
bætti Wen við. Hann sagði kín-
versk stjórnvöld þá aðeins munu
íhuga að eiga viðræður við Dalai
Lama að hann lýsi sig „reiðubú-
inn að gefa upp á bátinn markmið
sitt um svokallað sjálfstæði
Tíbets“. Wen vísaði því enn frem-
ur á bug að „menningarlegt þjóð-
armorð“ væri að eiga sér stað í
Tíbet.
Kommúnistastjórnin í Kína vill
sjá til þess að Ólympíuleikarnir í
Peking í ágúst verði til að auka
hróður Kína á alþjóðavettvangi
frekar en að draga óvelkomna
athygli að mannréttindamálum.
Enda sagði Wen að mótmælendur
væru að reyna að spilla fyrir
ólympíuleikahaldinu.
Ráðamenn í fjölda landa, þar á
meðal aðildarríkjum Evrópusam-
bandsins, Rússlandi, Bandaríkj-
unum og Ástralíu hafa nú þegar
útilokað að gripið verði til þess
að sniðganga Ólympíuleikana. En
hugmyndir eru uppi um að ráða-
menn og tignargestir sniðgangi
opnunarhátíð leikanna til að sýna
óánægju sína í verki með fram-
göngu kínverskra yfirvalda í
málefnum Tíbets og annað er
varðar réttindi borgaranna í fjöl-
mennasta ríki heims. Hans-Gerd
Pöttering, forseti Evrópuþings-
ins, viðraði tillögu þessa efnis í
gær.
Handtökur halda áfram
Á miðnætti í gærkvöld að staðar-
tíma rann út frestur sem yfirvöld
gáfu þátttakendum í mótmælun-
um í Lhasa til að gefa sig fram.
Lítið fréttist af aðgerðum í land-
inu í gær, eftir að fresturinn rann
út, annað en það að öryggissveit-
ir héldu áfram að ganga hús úr
húsi og handtaka fólk sem grun-
að var um að standa með mót-
mælendum. Haft var eftir Duoji
Zeren aðstoðarlandstjóra að yfir-
völd myndu „grípa til afgerandi
ráðstafana til að hafa hendur í
hári hinna grunuðu“, en gaf ekk-
ert nánar upp um það í hverju
þær ráðstafanir fælust.
Á útvarpsstöðinni Radio Free
Asia, sem er að mestu fjármögn-
uð með framlögum frá banda-
rískum stjórnvöldum, var haft
eftir ónafngreindu vitni að um
leið og fresturinn var liðinn hefðu
hundruð manna verið handteknir.
Ströng stjórn kínverskra stjórn-
valda á upplýsingaflæði og bann
við veru erlendra fréttamanna á
vettvangi gerði erfitt um vik að
fá slíkar fréttir staðfestar. Frétta-
flutningur erlendra fréttaritara
frá Kína af mótmælunum í Tíbet
hefur sætt strangri ritskoðun, að
því er AP-fréttastofan greinir
frá. Öllum ferðahópum sem ætl-
uðu til Tíbets hefur verið meinað
að fara þangað. Það bann kvað
munu gilda að minnsta kosti til
mánaðamóta.
Auðmýkt gagnrýnd
Þessar fréttir frá Tíbet hafa orðið
leiðarahöfundum margra vest-
rænna miðla tilefni til að deila á
þá auðmýkt sem margur vest-
rænn ráðamaðurinn sýnir vald-
höfum í Peking. Með öðrum
orðum hvernig hagsmunir í við-
skiptum og á fleiri sviðum verða
til þess að fulltrúar frjálsra lýð-
ræðisríkja verða að smjöri þegar
á hólminn er komið og segja þar
ekki annað en gestgjafarnir vilja
heyra.
Harka er eina svar kín-
versku stjórnarinnar
WEN JIABAO
FRÁ LHASA Vegfarendur ganga um götu í miðborg Lhasa á mánudag. Ummerki
um óeirðirnar eru greinileg. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
© GRAPHIC NEWS
Kveikt verður á listaverki Yoko
Ono, Imagine Peace Tower, í Viðey
klukkan níu í kvöld. Í tilefni frið-
arvikunnar á vorjafndægri verður
sá hátturinn hafður á í eina viku
og munu ljósin loga frá klukkan
níu til miðnættis.
Áður en friðarsúlan verður
tendruð á morgun, skírdag, verða
ljóshnettir sendir á loft, barnakór
syngur lög frá ýmsum löndum og
gestum verða boðin stjörnuljós og
friðarkerti. Einnig verður ljós-
myndasýning á vegum ljósmynda-
samkeppni.is opnuð í hesthúsinu í
Viðey. Boðið verður upp á kennslu
í næturljósmyndun með friðarsúl-
una sem viðfangsefni. Það eru
alþjóðasamtökin AUS og Höfuð-
borgarstofa sem standa fyrir við-
burðunum. - jse
Kveikt á Friðarsúlunni í Viðey:
Friðarljós og söngur
FRIÐARSÚLAN Í VIÐEY Ljós friðarsúlunn-
ar mun lýsa kvöldin í friðarvikunni.
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
ATH!
Frábær sýnishorn af
Ice Age 3 frumsýnt á Horton
Þú finnur muninn
frá fyrsta sopa!
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is