Fréttablaðið - 12.04.2008, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 12. apríl 2008
Aðalfundur
Dagskrá:
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda
lagður fram til staðfestingar
3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári
4. Ákvörðun um lækkun hlutafjár með niðurfellingu eigin bréfa
5. Ákvörðun um hækkun hlutafjár með útgáfu jöfnunarhlutabréfa
6. Kosning bankaráðs
7. Kosning endurskoðenda
8. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eða taka að veði
allt að 10% af eigin bréfum
9. Tillögur um breytingar á samþykktum
10. Tillaga um Starfskjarastefnu Landsbanka Íslands hf.
lögð fram til endurstaðfestingar
11. Tillaga bankaráðs um framlag í Menningarsjóð Landsbanka Íslands hf.
fyrir árið 2008 og um breytta skipulagsskrá Menningarsjóðs
Landsbanka Íslands hf. lögð fram til samþykktar
12. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil
13. Önnur mál, löglega fram borin
Landsbanka Íslands hf. verður haldinn á Grand Hótel, Sigtúni 38,
105 Reykjavík, miðvikudaginn 23. apríl 2008 kl. 16.00
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur
stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Tilkynna skal
skriflega um framboð til bankaráðs eigi síðar föstudaginn 18. apríl kl. 16. Dagskrá,
endanlegar tillögur, skýrsla bankaráðs, ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endur-
skoðenda liggja frammi í Aðalbanka Landsbankans, Austurstræti 11, Reykjavík, hlut-
höfum til sýnis viku fyrir aðalfund. Á sama stað munu upplýsingar um framboð til
bankaráðs liggja frammi tveimur dögum fyrir aðalfund. Einnig er hægt að nálgast
þessi gögn á www.landsbanki.is
Gerð er tillaga um að aðalfundur samþykki lækkun hlutafjár Landsbankans um kr.
300.000.000.- að nafnvirði með niðurfellingu á eigin hlutum Landsbankans. Jafnframt
er gerð tillaga um að aðalfundur samþykki hækkun hlutafjár með útgáfu jöfnunar-
hluta um kr. 300.000.000.- að nafnvirði. Gerðar eru eftirfarandi tillögur um breyt-
ingar á samþykktum félagsins; að aðalfundur samþykki heimild til hækkunar hlutafjár
Landsbankans um allt að kr. 1.200.000.000, með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar falla frá
forgangsrétti sínum vegna nýju hlutanna, skv. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
Gerð er tillaga um orðalagsbreytingu í 2. máls. 4. mgr. 7. gr. samþykktanna, að arður
skuli greiddur þeim sem skráðir verða í hlutaskrá eftir að uppgjör viðskipta við lok
aðalfundardags hefur farið fram. Þá er gerð tillaga um að aðalfundur samþykki heimild
til útgáfu breytanlegra skuldabréfa um allt að kr. 60.000.000.000.- og jafnframt hækk-
un hlutafjár um allt að kr. 1.500.000.000.- að nafnverði í tengslum við slíka útgáfu.
Hluthafar falla frá forgangsrétti sínum til nýrra hluta vegna breytanlegra skuldabréfa,
skv. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Loks er gerð tillaga um að ný málsgrein bæt-
ist við 11. gr. samþykktanna um heimild til rafrænna samskipta við hluthafa.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við inngang í upphafi fundar.
Hluthöfum er gefinn kostur á að greiða atkvæði um tillögur á dagskrá aðalfundar
með rafrænum hætti, sjá nánar á heimasíðu Landsbankans, www.landsbanki.is
Hluthöfum er bent á að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Viðar, forstöðumaður Lögfræðiráðgjafar, í síma
410-7740.
forvarnastarfið að setja. Til dæmis
sögðust margir myndu kjósa frek-
ar að ræða um áfengi frá hlutlæg-
um sjónarhóli í stað þess að vera
endalaust að tala um skaðsemi þess
og hætturnar sem fylgt geta
neyslunni. Nær væri að kenna frek-
ar æskilega meðhöndlun þess þar
sem áfengi væri orðið að sjálfsögð-
um hlut í okkar samfélagi.
Hvað segir Inga Dóra um þessa
gagnrýni? „Lengi vel var lögð rík
áhersla á að uppfræða unglinga og
búa til einskonar grýlu úr ákveðn-
um hlutum,“ svarar hún. „En þetta
er ekki sú aðferð sem við í Rann-
sóknum og greiningu erum hrifn-
ust af því fræðsla ein og sér er ekki
nóg. Við höfum séð að það sem
skiptir mestu máli er að skapa
unglingum aðstæður til að lifa heil-
brigðu lífi. Það er ekki nóg að hafa
áhrif á viðhorfin því þau þurfa ekki
endilega alltaf að vera í takt við
hegðunina. Til dæmis gæti einhver
talið það skynsamlegt að reykja
ekki en reykir síðan samt sem áður
ef hann kemst í aðstæður þar sem
þrýstingur er í þá átt. Enda höfum
við séð það að stór hluti þeirra sem
reykja er mótfallinn reykingum og
myndi helst ekki vilja reykja.“
Uppsveifla í neyslu um aldamótin
Um aldamótin fjölgaði sjúklingum
19 ára og yngri á Vogi svo mjög að
menn höfðu ekki séð annað eins.
Árið 2001 voru innritanir sjúklinga
í þessum aldurshópi tæplega þrjú
hundruð en síðan hefur þeim fækk-
að ört og árið 2006 voru þær 234.
Hlutfall 19 ára og yngri á Vogi það
ár var þó um 14 prósent og hefur
aldrei verið hærra ef frá er talin
uppsveiflan um aldamótin.
Neyslumynstrið hefur líka
breyst hjá þessum hópi á undan-
förnum árum þar sem neysla
kannabisefna og amfetamíns verð-
ur sífellt fyrirferðarmeiri en
minna ber á áfengisneyslu. Þetta
er hópurinn „sem lendir ansi illa í
því“ og minnir okkur á að lítið má
út af bera svo unglingar hverfi
ekki inn í hinn harða heim fíkni-
efnanna sem erfitt getur reynst að
losna úr. Nemendur sem Frétta-
blaðið talaði við sögðu að ungling-
ar sem byrjuðu að neyta fíkniefna
einangruðust og dyttu jafnvel úr
námi.
Það er því kannski ekki nema
von að forráðamenn séu uggandi
vegna þeirrar hættu sem blasir við
unglingum. Áreitin sem unglingar
verða fyrir nú til dags eru einnig
mörg og koma úr ótal áttum svo
hætt er við því að dómgreindin láti
einhvern tímann í minni pokann
fyrir einhverju þeirra. Unglingar
fara á hraðbraut inn í harðan heim
og áreksturinn getur því orðið
býsna harður ef ekki er haldið vel
um stýrið. En hinu má þó ekki
gleyma að í raun hefur mikill
meirihluti unglinga borið sig skyn-
samlega að í aðstæðum þar sem
erfitt getur reynst að finna fótum
sínum forráð. Nú kalla þau eftir
viðurkenningu fyrir það eða að
minnsta kosti að því sé gefinn
nokkur gaumur.
FRUMGREININGAR HJÁ SÁÁ, 19 ÁRA OG YNGRI
Ástæður innlagnar á árunum 2000 og 2006
ÁFENGI
19%
ÁFENGI
M/ÖÐRU
28%
KANNABIS
46%
AMFETAMÍN
6%
ANNAÐ 1%
2000
ÁFENGI
11%
ÁFENGI
M/ÖÐRU 8%
KANNABIS
63%
AMFETAMÍN
15%
ANNAÐ 3%
2006
HEIMILD: SÁÁ
2000 2004
NEYSLA ÁFENGIS SL. 30
DAGA HJÁ FRAMHALDS-
SKÓLANEMENDUM
■ Strákar ■ Stelpur
75,5% 77,1% 73,7% 76,2%
HEIMILD: RANNSÓKNIR OG GREINING
FRÉTTASKÝRING
JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON
jse@frettabladid.is
HVAÐ ER MIKILVÆGT
AÐ HAFA Í HUGA
VARÐANDI UNGLINGA?
„Við erum bara gott fólk.“
Alex Pétursson, nemandi í Rima-
skóla.
„Við verðum stundum að viðurkenna
það að unglingar standa okkur framar
á vissum sviðum.“
Inga Dóra Sigfúsdóttir, forseti
Kennslufræði- og lýðheilsudeildar
Háskólans í Reykjavík.
„Það er eiginlega ekkert um að vera
fyrir þá sem eru 16 til 18 ára.“
Gabríela Unnur Kristjánsdóttir,
formaður Sambands íslenskra fram-
haldsskólanema.
„Við erum ekki að segja það að við
munum aldrei koma til með að
drekka heldur hitt að það er ekki á
dagskrá núna.“
Hjálmar Örn Elísson Hinz, í stjórn
Bindindisfélags FG.
ÖNNUR GREIN AF FIMM
Á mánudag:
Unglingar og foreldrar.