Fréttablaðið - 12.04.2008, Síða 94

Fréttablaðið - 12.04.2008, Síða 94
58 12. apríl 2008 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is Það er alltaf nóg að gera hjá sveiflukónginum Geir- mundi Valtýssyni. Hann spilar á Kringlukránni um helgina. „Nú er ég með tvær hljómsveit- ir, eina fyrir norðan og eina fyrir sunnan, en ég fer á milli,“ segir sveiflukóngurinn síkáti Geir- mundur Valtýsson. Það er í nógu að snúast hjá Geirmundi, sem kemur til Reykjavíkur að minnsta kosti einu sinni í mán- uði og spilar fyrir borgarbúa. Ef hann er ekki að spila fyrir sunn- an er hann fyrir norðan að skemmta Norðlendingum. Þá er betra að vera með hljómsveit í hverri höfn. Geirmundur mun leggja land undir fót þessa helgina. „Við erum á Kringlukránni um helg- ina,“ segir Geirmundur. „Þetta gengur alltaf jafn vel. Það eru margir sem koma oft að sjá okkur. Hugsa að það sé svona um hundrað manna hópur sem mætir reglulega fyrir utan alla hina.“ Hvernig ætli það gangi svo að stilla saman strengi með sitt- hvorri hljómsveitinni á víxl? „Blessaður vertu, það er ekkert mál. Ég og bandið sem ég er með fyrir sunnan vorum með stórt og gott prógramm sem við endur- bættum. Annars eru ekki mörg hitt-lög sem koma fram nú á tímum,“ segir Geirmundur og á nú eflaust sína sök þar á því sjálfur hefur hann róast mikið í lagasmíðum með árunum. „Það er nú bara lífsins leið að róa sig niður með árunum,“ segir hann. Geirmundur á þó nóg af slögur- um eftir sjálfan sig og aðra í handraðanum frá fyrri tíð og þarf því ekki að óttast að verða uppiskroppa með lög til að spila. soli@frettabladid.is Sveiflukóngurinn með hljómsveit í hverri höfn GEIRMUNDUR Er með hljómsveit fyrir norðan og sunnan en flakkar sjálfur á milli. > MUCCA Í HAM Heather Mills heldur áfram að skjóta föstum skotum á fv. bónda sinn, Sir Paul McCartn- ey. Í viðtali í morgunþættinum Breakfast TV sagði hún: „Ég held hann eigi þrjár kærust- ur núna og ég óska þeim alls hins besta. Frekar þær en ég.“ Paula Abdul er hætt með kærastanum sínum. Vinir Idol- dómarans halda því fram að hún sé hætt með veitinga- manninum JT Torregiani eftir tæplega árs samband. „JT tók þetta samband ekki alvarlega og var alveg sama,“ sagði einn vinur hans. Getgátur hafa verið uppi um að sambandið héngi á bláþræði eftir að Paula mætti ekki á opnun nýs veitingastaðar hans á dögunum. Það kvöld sást til JT í innilegum samræðum við aðrar konur. Á meðan hefur Paula, sem er 45 ára, rætt í viðtölum um að hún vilji eignast börn og fara að taka því rólega. Paula Abdul á lausu AFTUR Á LAUSU Paula Abdul er hætt með kærastanum. Glæparapparinn 50 Cent segir fyrrver- andi eiginkonu sína ekki vera þann engil sem kvikmyndin Get Rich or Die Tryin‘ sýni og ver þá ákvörðun að láta bera hana út af heimili sínu á Long Island í New York. 50 Cent á húseign- ina en Shaniqua Tompkins og tíu ára sonur þeirra Marquise hafa fengið að búa þar síðan parið skildi fyrir fimm árum. 50 Cent hefur nú fengið dómara í New York til að úrskurða að mæðgin- in eigi að vera farin um leið og skólinn klárast hjá stráknum á þessu ári. Þessi ákvörðun hiphop-stjörnunnar hefur mælst fremur illa fyrir hjá aðdáendum hans og þeir skilja lítið í honum að vera svona vondur við konuna sem hjúkraði honum eftir skotárás árið 2000. Cent segir hins vegar að kvikmyndin dragi upp heldur fagra mynd af Tompkins sem eigi við lítil rök að styðjast. „Eitt er kvikmynd og annað er raunveruleiki. Hún var nú ekkert mikið fyrir að standa við sjúkrabeðið. Þessi kona hefur ekki gert handtak síðan 2001 og það er ég sem hef haldið henni uppi en nú er komið nóg,“ sagði rapparinn við blaðamenn, skömmu eftir úrskurðinn. 50 Cent ber út eiginkonuna EKKERT BULL 50 Cent er ekkert sérstak- lega þolinmóður náungi og ætlar að láta bera út fyrrverandi eiginkonu sína. Skemmtiatriði á 17. júní Hitt Húsið Sími: 411 5500 17juni@hitthusid.is 17juni.is Frá sýningu götuleikhússins 2007 www.17juni.is Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun í Reykjavík. Dagskráin fer fram í miðborg Reykjavíkur og stendur hún frá morgni til kvölds. Gert er ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum á sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum. Auk hefðbundinna skemmtiatriða er áhugi á hópatriðum og sýningum og er leitað að leik-, tónlistar-, dans- og öðrum listhópum til að troða upp á útisviðum og á götunni. Einnig er óskað eftir hópum, félagasamtökum og öðrum sem vilja standa fyrir eigin dagskrá á sviðum eða í samkomutjöldum í samráði við þjóðhátíðarnefnd. Umsóknir um  utning atriða, uppákomur og viðburði er hægt að fylla út á vefnum www.17juni.is en einnig er hægt að skila þeim í Hitt Húsið, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur rennur út þriðjudaginn 6. maí. Flottari sími á ótrúlegu tilboði Gríptu augnablikið og lifðu núna Nokia V640i Lipur og nettur Walkman tónlistarsími. 3G, EDGE, 256 MB minniskort. Fer á Netið með Vodafone live! Fæst í „Havana gold“ og svörtu. Eingöngu hjá Vodafone. Tilboðsverð: 21.900 kr. Komdu við í næstu Vodafone verslun og nýttu þér frábært tilboð. F í t o n / S Í A Annað kvöld 13. apríl kl. 20 – Uppselt AUKASÝNING: Þriðjudaginn 15. apríl kl. 20 MIÐAVERÐ: 1.000 KR. www.opera.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.