Fréttablaðið - 17.04.2008, Side 40
17. APRÍL 2008 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● vinnuvélar
Kraftvélar ehf. gengu nýlega
frá einni stærstu sölu sinni
þegar fyrirtækið seldi Björgun
stóran vélapakka sem inni-
heldur þrjá nýja brjóta.
Brjótarnir eru þrír og framleidd-
ir af Sandvik í Arbra og Svedala í
Svíþjóð. Sandvik byggir á traust-
um grunni Svedala, sem er eitt
þekktasta og virtasta nafn þegar
talað er um brjóta og er með ára-
tuga reynslu af smíði þeirra.
Fyrsti brjóturinn er kjálka-
brjótur sem ber heitið Sand-
vik UJ440i og er
sá fyrsti sinnar
tegundar hér-
lendis. Sandvik
UJ440i hefur
verið í notkun hjá bæði Svíum
og Norðmönnum við góðan orð-
stír enda er afkastageta hans um
600 tonn á klukkustund. Brjótur-
inn sjálfur er engin smásmíði og
vegur 62 tonn.
Annar brjóturinn er af gerðinni
Sandvik UH420 og er svokallaður
kónbrjótur. Sandvik UH420 hefur
lokaða hringrás sem matar þann
þriðja sem kallast Roadclassifier
107, betur þekktur sem VSI-
brjótur. Sá brjótur býr til rúnað
efni fyrir steypu og malbik sem
er flokkað í þrjár tegundir eftir
stærðum.
Tveir starfsmenn frá Sand-
vik í Svíþjóð komu sér-
staklega til lands-
ins til að koma upp
brjótunum. Unnu
þeir að því að
stilla brjótana þar til menn voru
ánægðir með afköst og gæði
efnis. Hlutverk þeirra var einnig
að þjálfa starfsmenn Björgunar í
meðhöndlun og vinnu í kringum
brjótana.
„Söluferlið tók alls sex mán-
uði enda um stór kaup að ræða.
Marga þætti þurfti að athuga svo
menn fengju það sem sóst var
eftir. Var margt tekið inn í ferlið,
til dæmis hver afkasta getan átti
að vera, hversu mörg tonn menn
vildu framleiða á klukkustund og
svo framvegis. Þetta var vinna
sem var ekki hægt að vinna
á einum degi heldur hægt og
örugglega,“ segir Ólafur Baldurs-
son, sölustjóri hjá
Kraftvélum
ehf., sem
var einn
af þeim sem komu að sölunni á
brjótunum.
„Það tekur alltaf tíma að kynn-
ast nýjum vélum en brjótarnir
hafa nú verið í notkun í rúmar
tvær vikur hjá Björgun. Þeir
hafa reynst afar vel og standast
allar þær kröfur sem til þeirra
voru gerðar,“ segir hann.
- mmr
Þrír nýir brjótar í flotann
Sandvik UH420 er annað stigið í möluninni. Hann tekur við efni úr kjálkabrjótnum
og matar beint ofan í Sandvik RC107. Sá brjótur rúnar efnið fyrir steypu og malbik.
Sandvik UJ440i er kjálkabrjótur sem tekur við grófasta efninu á fyrsta stiginu.
MYND/ÚR SAFNI KRAFTVÉLA
Komatsu WA 500-6 sést hérna moka
ofan í Sandvik UH420 kónbrjót, sem
er einn brjótanna sem Björgun keypti
af Kraftvélum.
Áhugaljósmyndarinn Björn
Anton Einarsson, sem starfar
sem viðhaldsmaður hjá Mjólkur-
samlaginu í Búðardal, tekur
myndir af öllu sem gleður augað,
þar á meðal af vinnuvélum.
„Ég byrjaði á þessu fyrir
tveimur árum en þá fór fjár-
hagurinn að leyfa kaup á góðri
vél og linsum,“ segir Björn. Hann
tekur aðal lega landslagsmyndir
en myndar einnig ýmislegt annað
sem fyrir augu ber, þar á meðal
vinnuvélar.
Víðimelsbræður ehf. hafa að
undanförnu unnið að gerð sjó-
varnargarðs við höfnina í Búðar-
dal, þar sem Björn er búsettur,
og hefur hann tekið óvenjulegar
myndir af vinnu þeirra sem sýnir
vélarnar í nýju ljósi.
Í tilefni af því að vinnu við
sjóvarnargarðinn er lokið opnar
Björn ljósmyndasýningu við
höfnina í dag.
- ve
Vinnuvélar í nýju ljósi
Víðimelsbræður að stöfum.
Delta-grafa í sólarlagi við sjóvarnargarðinn í Búðardal. MYND/BJÖRN ANTON EINARSSON
Fallegt sjónarhorn.
KM vörubíll skreyttur ljósmynd Björns.
60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004
MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu.
HANN ER GRIMMUR!
MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER
- VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár
- Útvegum notaða skotbómulyftara
- Úrval notaðra lyftara á lager
Fjórhjóladrifinn
Fjórhjólastýrður
Lyftigeta: 3.400 KG
Lyftihæð: 6.050 MM
Gafflar: 1.200 MM
Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ
LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar
án aukins snúningshraða vélar.
SKOTBÓMULYFTARI
PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf.
Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður
Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is