Fréttablaðið - 02.05.2008, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 02.05.2008, Blaðsíða 12
12 2. maí 2008 FÖSTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Nokkrir nemendur úr Lög- regluskóla ríkisins eru ný- komnir úr keppnisferðalagi frá Finnlandi. Aðalsteinn Bernharðsson, yfirþjálfari við skólann, er sáttur við frammistöðu sinna manna, sem meðal annars þurftu að sýna færni sína með skammbyssu. Hin árlega þríþrautarkeppni nem- enda lögregluskóla á Norður lönd- um var háð í Tampere í Finnlandi hinn 26. apríl síðast liðinn. „Við lentum í fjórða sæti af fimm, sem er vel ásættanlegt miðað við hverja er við að eiga,“ segir Aðalsteinn. „Þessir lögregluskólar eru jafnvel með vel á annað þúsund nemendur en við erum venjulega með 30 til 48 nemendur, sem er rétt eins og einn bekkur í þessum stóru skólum sem við vorum að etja kappi við.“ Átta keppendur komu frá hverri þjóð; fimm karlmenn og þrjár konur. Keppt var í hlaupi, sundi og svo skotfimi með skammbyssu, og þótt lögregla og lögreglunemendur á hinum Norðurlöndunum séu van- ari slíkum tólum en kollegar þeirra hér á landi voru íslensku kepp- end urnir engir eftirbátar þegar kom að þessari íþróttagrein. „Harpa Albertsdóttir náði 5. sæti í þessari grein og Heiðar Ingi Heið- arsson varð níundi af 25 keppend- um, sem er afar góður árangur,“ segir þjálfarinn. Að keppni lokinni var haldinn mikill gleðskapur og fór vel á með keppendum. „Þetta er ungt og frískt fólk og því var kátt á hjalla.“ Aðspurður hvort einhver hefði komist í kast við lögin í gleð skapn- um segir hann: „Nei, við ættum nú ekki annað eftir.“ Að svo mæltu varð þjálfarinn að hverfa á braut enda kominn með skeiðklukkuna á loft þar sem nemendanna beið hin mesta þolþraut. jse@frettabladid.is Tíu manna hópur Eyjamanna hyggst sigla umhverfis landið í sumar á slöngubátum. Ferðin er til styrktar Krafti, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra. Lagt verður af stað frá Vestmannaeyjum þann 16. júní næstkomandi og verður áhöfnin í Reykjavíkur- höfn á þjóðhátíðardaginn. Ráðgert er að áhöfnin komi svo aftur til heimahafnar hinn 4. júlí. Bjartmar Sigurðsson, einn forsprakka hópsins, segir að hugmyndin hafi kviknað þegar hann var, ásamt Ölmu Eðvaldsdóttur og Friðriki Stefánssyni, að ræða hvað þau vildu gera í sumarfríinu. „Ölmu langaði að skoða Djúpuvík á Ströndum,“ segir hann. „Friðrik skaut því inn í að taka slöngubát með og skoða fjörðinn frá sjó og þá stakk ég upp á því að skoða gjörvalla Vestfirði frá sjó. Þessi umræða vatt þannig upp á sig þar til að hún tók þá lendingu að við sigldum hringinn í kringum landið.“ Hann segir undirbúning langt kominn, enda hafa fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar tekið þeim afar vel. Hins vegar vanti aðeins upp á til að endar nái saman. Hægt verður að fylgjast með ferðinni á slóðinni krafturikringumlandid.com. - jse Eyjamenn fara umhverfis landið á slöngubátum: Strandaferðin vatt upp á sig KOMNIR Í BÁTINN Daníel Reynisson frá Krafti, sem situr í aftara sæti og til vinstri, verður farinn úr bátnum þegar lagt verður í hann. Friðrik Stefánsson, sem situr við hlið hans, Hilmar Kristj- ánsson og Bjartmar Sigurðsson munu hins vegar sitja sem fastast. MYND/ÓSKAR FRIÐRIKSSON „Efnahagsástandið er mjög slæmt um þessar mundir,“ segir Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar, stéttarfélags Þingey- inga. „Verðbólgan er í sögulegu hámarki sem þýðir að vöruverð hefur farið úr öllum böndum. Það bitnar ekki síst á þeim sem hafa lægri launin. Bensínverð og olíuverð eru einnig í sögu- legu hámarki og það breytist svo hratt að við tölum um að skiltin á bensínstöðvunum séu eins og hraðamælingar. Það er aldrei sama verðið.“ Aðalsteinn nefnir líka húsnæðisverð og vexti. „Lán hækka nú alveg stöðugt á milli mánaða og það er ekkert í spilunum sem segir okkur að þetta sé neitt að batna. Það eru örugglega leiðir út úr þessu þó að þetta sé ekki auðvelt mál. Undanfarnar ríkisstjórnir voru að glíma við góðæri og því léttara að fást við efnahagsmálin en núna reynir fyrst á ríkisstjórnina.“ Hann sér fyrir sér að hægt sé að gera ýmislegt. „En við höfum ekki efni á að láta þetta halda áfram eins og þetta er núna, það er alveg á hreinu.“ SJÓNARHÓLL ÁSTAND EFNAHAGSMÁLA Nú reynir á ríkisstjórnina AÐALSTEINN BALDURSSON Formaður Framsýnar ■ Sögulega er rauði fáninn alþjóðlegt tákn fyrir „blóð reiðra verkamanna.“ Rauður fáni er sem tákn mun eldri en sósíalismi, en frá því hreyfingu sósíalista og síðar kommúnista hóf að vaxa ásmegin varð hann að alþjóðlegu tákni hennar. Hefð er fyrir því víða um lönd að skjóta rauðum fánum á loft í fyrsta maí-göngum. Dæmi um notkun rauðs fána fyrr úr sögunni er til að mynda þegar víkingar sigldu upp eftir fljótum Evrópu í herfangsleit. Þá sýndu þeir rauð flögg sem tákn fyrir að þeir tækju enga fanga ef einhver skyldi reyna að sýna þeim vopnaða mótspyrnu. RAUÐI FÁNINN ELDRI EN SÓSÍALISMI Fimir laganna verðir ÞRÍÞRAUTARHÓPURINN Talið frá vinstri: Heiðar Ingi Heiðarsson, Kjartan Páll Sæmundsson, Hinrik Geir Jónsson, Bergsteinn Karls- son, Margrét Þóra Guðmundsdóttir, Birgir Már Vigfússon sem brosir sínu breiðasta, Harpa Hrund Albertsdóttir og Guðrún Helga Tryggvadóttir. HARPA STINGUR SÉR TIL SUNDS HEIÐAR KEMUR HLAUPANDI Í MARKGUÐRÚN HELGA Á LOKASPRETTI „Ég var bara að klára að stinga upp kartöflugarðinn og undirbúa sumarið í góða veðrinu,“ segir Úlfar Linnet, sem er að hrinda af stað nýju verkefni um þess ar mundir. Úlfar er mikill áhugamaður um bjór og er nú farinn að vera með skipulagðar bjór smakkanir. „Ég er að fara á vinnustaði, svona á föstudögum, með marg ar tegundir af bjór og kynni mismunandi bjórstíla fyrir fólki. Svo kenni ég hvernig á að smakka bjór og svona, og þetta hefur gengið mjög vel hjá mér.“ Úlfar segir fólk nánast líkja bjórsmökk- uninni við trúarlega upplifun. „Flestir eru hættir að drekka rauðvín og eru orðnir kúltí veraðir bjórdrykkjumenn, svo hér reynum við að fagna sumrinu með garðrækt og bjórsmökkun.“ Aðspurður segist Úlfar ekki hafa farið í kröfu- göngu í gær, 1. maí, en það er ástæða fyrir því. „Ég fór í skrúðgönguna á sumardaginn fyrsta hér í Hafnarfirði og hún var svo löng, hún var lengri en Víðavangshlaupið. Það sem gerðist var að ég var með krakkana og ég bara sprakk og þurfti að stytta mér leið. Ég er ennþá að jafna mig eftir þetta þannig að mér finnst að svona hljómsveitir ættu að ganga hægar. Það eru mín skilaboð til lúðra sveita.“ Úlfar treysti sér af þessum sökum ekki í kröfu- gönguna en segist þó styðja kröfur verkalýðsins heilshugar. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÚLFAR LINNET VERKFRÆÐINGUR OG BJÓRÁHUGAMAÐUR Fagnar sumri með garðrækt og bjórsmökkun Steinhissa söngkona „Við urðum steinhissa þegar við fengum þetta tilboð.“ SIGRÍÐUR THORLACIUS, SÖNGKONA HJALTALÍN, EN SVEITINNI HEFUR VERIÐ BOÐIÐ AÐ SPILA Á TIME FOR PEACE-HÁTÍÐINNI Í LONDON. Fréttablaðið 1. maí Nikótíndjöfullinn „Mér hefur aldrei tekist að hætta að reykja.“ KALLI BJARNI IDOLSTJARNA UM FÍKN SÍNA. DV 1. maí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.