Fréttablaðið - 02.05.2008, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 02.05.2008, Blaðsíða 37
mig. Það er kostnaðarsamt og tíma- frekt að gefa sjálf út bók, en með þeim mikla stuðningi sem ég fékk borgaði útgáfan sig,“ segir Yesmine. „Áslaug Snorradóttir ljósmyndari átti stóran þátt í því að gera bókina að því sem hún er, því ég vildi allt- af hafa bókina litríka og þar spila myndirnar stórt hlutverk.“ Yesmine gekk með sitt fyrsta barn á meðan hún skrifaði bókina. Dóttir hennar ákvað hins vegar að koma fyrr í heiminn en áætlað var og Yesmine var því undir töluverðu álagi þegar kom að því að leggja lokahönd á bókina. „Ég fór upp á fæðingardeild til að eiga Ronju um kvöld og var sagt að ég yrði sett af stað klukkan tíu morguninn eftir. Þá stillti ég klukkuna á sex, lauk við skrifin og sendi bókina frá mér áður en klukkan sló tíu,“ segir hún brosandi. „Ég er ekki lærður kokk- ur svo ég er alltaf með atvinnufólk í faginu sem ráðgjafa og aðstoðar- menn. Ég er fyrst og fremst með mikla ástríðu fyrir mat og skapa uppskriftir út frá mínum hugmynd- um. Ég útfæri oft hefðbundna rétti, geri þá hollari og gef þeim mitt eigið yfirbragð.“ Móðurmissirinn setti strik í reikn- inginn Á sama tíma og Yesmine var að tak- ast á við móðurhlutverkið í fyrsta skipti féll móðir hennar skyndi- lega frá. „Það var rosalega erfiður og tilfinningaþrunginn tími því ég var að gleðjast yfir fæðingu Ronju og syrgja móður mína á sama tíma. Í fyrsta skipti á ævinni upplifði ég það að hafa enga löngun til að æfa og kom mér ekki aftur af stað fyrr en tæplega ári eftir fæðinguna. Á þessum tíma var X-Factor í full- um gangi og fram undan meðal ann- ars sýningar fyrir Oasis í Kaup- mannahöfn, GK, Habitat og Sam- tök iðnaðar ins. Ég varð að ákveða hvort ég ætlaði að gera þetta allt eða ekki og spurði mig einfaldlega hvað mamma hefði viljað að ég gerði. Ég held að þessi skapandi en ólíku verkefni hafi hjálpað mér að takast á við sorgina og ég ákvað að vinna þau í minningu móður minnar. Þegar ég kom mér loksins af stað og fór að æfa aftur fann ég hvað það var margfalt erfiðara en það hafði verið fyrir fæðinguna og það var erfitt að losna við aukakílóin sem ég nældi mér í á meðgöngunni. En ég held að sú reynsla hafi gert mig að betri einkaþjálfara,“ segir Yes- mine. Sótti innblástur til Indlands Þessa dagana er Yesmine með sína aðra matreiðslubók í smíðum og að þessu sinni er matargerð með indversku og arabísku ívafi í aðal- hlutverki. „Sem krakki var ég allt- af mjög forvitin um indverskan mat en á mínu heimili var yfir- leitt venjulegur sænskur heimilis- matur. Við bjuggum í litlu þorpi fyrir utan Helsingjaborg og á þess- um tíma var lítið sem ekkert af ind- verskum veitingastöðum í Svíþjóð. Þegar ég var fimmtán ára fékk ég systur mína, sem er ári eldri en ég, til að stelast með mér yfir til Kaup- mannahafnar til að borða á eina indverska veitingastaðnum sem ég vissi um. Fyrst þurftum við að taka bát yfir á Helsingjaeyri og svo lest til Kaupmannahafnar og koma okkur á veitingastaðinn, sem var á Istedgade, ekki beint öruggasta hverfinu í Kaupmannahöfn. Við þurftum að hafa mikið fyrir ferð- inni, en hún var svo sannarlega þess virði því ég gleymi ekki bragðinu af fyrstu indversku máltíðinni minni. Við þorðum ekki að segja foreldr- um okkar frá ferðalaginu, en þetta er skemmtileg minning,“ segir hún og brosir að endurminningunni. Eftir að bókin Framandi og freist- andi var komin út fór Yesmine fljótlega að hugleiða næstu bók. Hún var hins vegar upptekin við að sinna Ronju Isabel og sá ekki fram á hvenær tækifæri gæfist til að hefjast handa. „Í janúar fórum við af stað með bókina og við Ágústa M. Ólafsdóttir, útgáfustjóri bókarinnar, og Áslaug ljósmyndari ákváðum að skella okkur til Suður-Indlands. Áslaug hafði heyrt af íslenskri konu sem heitir Þóra Guðmunds- dóttir og er búsett í Kochin-héraði þar sem hún er búin að koma á fót litlu hóteli sem heitir Secret Gard- en. Við höfðum samband, bókuðum gistingu og Þóra hjálpaði okkur að skipuleggja heim sóknir á veitinga- staði og kynnti okkur fyrir stór- kostlegum indverskum kokkum.“ Hún segir að dvölin í Kochin hafi verið draumi líkust. „Við vöknuðum á morgnana, fórum í jóga og hjóluð- um svo um þorpið. Það var yndis- legt að vera hjá Þóru og ekki verra að fá heimatilbúið brauð og múslí sem hún gerir sjálf frá grunni. Ég ráðlegg öllum Íslendingum sem ætla að ferðast til Indlands að fara til Þóru,“ segir Yesmine og bætir því við að þessi bók verði að öllum líkindum aðeins meira framandi en alveg jafn freistandi og sú fyrri. „Indversku áhrifin verða auðvitað allsráðandi í þessari bók en að auki kíktum við á matar hátíð til Dubai þar sem arabískir réttir og krydd urðu heilmikill innblástur,“ segir Yesmine að lokum, en nýja mat- reiðslubókin hennar er væntanleg í bókabúðir á haustmánuðum. Móðurhlutverkið gerði Yesmine að betri einkaþjálfara. FÖRÐUN: Margrét Jónasdóttir hjá Make-Up Store HÁR: Jógvan Hansen á Unique 2. MAÍ 2008 FÖSTUDAGUR • 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.