Fréttablaðið - 02.05.2008, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 02.05.2008, Blaðsíða 40
heima gleði og glysgjörn húsráð Á húsgagnasýningunni Salone Internazionale del Mobile á Ítalíu var glamúr- inn allsráðandi. Síðastliðin ár hefur einfaldleikinn ráðið ríkjum en í ár bar við nýjan tón. Kannski má greina kreppuna af sýningarbásunum, en þegar krepp- ir að verður íburðurinn og glamúrinn alltaf meiri. Áhrifa gætti frá sjötta og átt- unda áratugnum og gullið er greinilega að koma inn aftur. Mikið var um gyllt sprautulökkuð húsgögn, gyllt blöndunartæki og það sem var ekki gyllt var króm- að. Gyllti liturinn hefur oft verið flokkaður sem „kerlingarlegur“ en á Ítalíu var ekkert kerlingarlegt yfirbragð yfir honum. Þegar nýtískuleg húsgögn eru komin í gylltan lit eru þau allt annað en hallærisleg. Í ár verður enginn maður með mönnum nema státa af stórum bókahillum í stofunni eða nota opnar bókahillur sem milliveggi ekki ólíkt og tíðkaðist á Ís- landi í kringum 1970. Þetta kemur vel út, sérstaklega þegar fallegum munum er raðað í hillurnar í bland við bækur, stórar sem smáar. Að nota bókahillur sem milliveggi er frábær lausn því oft getur verið of yfirþyrmandi að hafa steypta veggi á milli rýma og fyrir þá sem eru orðnir þreyttir á alveg opnum rýmum geta stúkað þau niður á þennan hátt. Bókahillurnar má svo útfæra á alla kanta og leyfa sköpunargáfunni að njóta sín í botn. martamaria@365.is Retrófílingur inn á heimili, opnar bókahillur og gyllt sprautulökkuð húsgögn eru það sem koma skal. Fortíðin mætir framtíðinni 1. Gulli sleginn skenkur frá ítalska fyrirtækinu Besana hefur hlotið mikið lof fyrir flotta hönnun. 2. Gyllt skrifborð frá Besana. 3. Bókahilla frá B&B Italia. Verslunin Heima í Síðumúla selur vörurnar frá fyrirtækinu og því ætti að vera auðvelt að nálgast þær. 4. Hér sést hvernig bókahilla er notuð til að stúka herbergi af. Það kemur ótrúlega vel út eins og sést á myndinni. 5. Gulli blöndunartæki eru smart þegar þau eru komin í rétt umhverfi. Hér fer lítið fyrir mínimalismanum en þeir sem hafa vit á húsgagnatísku segja líka að hann sé á undanhaldi. 1 2 34 5 12 • FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.