Fréttablaðið - 02.05.2008, Page 60
36 2. maí 2008 FÖSTUDAGUR
Reynir Þór Sigurðsson er líklega fróðasti
Íslendingurinn um Eurovision. Það er
nánast hægt að fletta upp í honum eins og
alfræðiorðabók og hann hefur brennandi
áhuga á keppninni. Reynir verður einn af
vitringunum þremur sem munu hjálpa
Páli Óskari í þætti hans Alla leið, sem
hefst á morgun á RÚV.
Reynsi Boy, eins og Reynir kallar sig,
hefur birt rannsóknarniðurstöður sínar
fyrir keppnina á heimasíðu sinni reynsi-
boy.blogcentral.is undanfarin ár. Nú liggja
fyrstu niðurstöðurnar í ár fyrir. Á fyrra
kvöldinu telur Reynir líklegast að Ísrael,
Aserbaídsjan, Slóvenía, Írland, Andorra,
Armenía, Finnland, Rússland og Grikk-
land komist áfram og að dómnefnd muni
senda Noreg eða Rúmeníu áfram sem
tíunda lag. Reynir er þó ekki endilega viss
um að þetta séu bestu lögin, hann segir til
dæmis að það sé „pínu hneyksli“ að senda
dúkkukalkúnann Dustin í aðalkeppnina.
Þá er Reynir ómyrkur í máli varðandi
ýmis lög. Belgíska framlagið, sem er þjóð-
lagaskotið popp sungið á bullmáli, fer til
að mynda sérstaklega í taugarnar á honum
– „Þetta er lag frá þjóð sem er búin að fá
nóg! Bæði af lélegri útkomu í keppninni
og sendir bara eitthvað! Getur ekki einu
sinni kosið sér ríkisstjórn þannig að það
er kannske ekki von á góðu! Vonandi verð-
ur það ekki til að fólk úti um alla álfu
slökkvi á sjónvarpinu og hætti við að
horfa á fimmtudeginum og laugardegin-
um!“
Reynir hefur búið í London undanfarin
ár og er nú að klára doktorsritgerðina
sína. Nei, ekki um Eurovision, heldur um
norrænar fornbókmenntir.
Dr. Reynsi Boy birtir niðurstöður
EKKI HRIFINN AF BELGÍSKA LAGINU Reynir Þór
Sigurðsson verður bráðum doktor.
> HNÉBROTIN GWYNETH
Gwyneth Paltrow hefur enn ekki jafn-
að sig að fullu eftir að hafa brotið á
sér hnéð við tökur á myndinni Iron
Man. Hún var skorin upp vegna
meiðslanna og segist halda að
uppskurðurinn hafi valdið ein-
hverjum skemmdum á taugum.
„Mér líður ekki eins í fótleggj-
unum. Það getur gerst í aðgerð.
Ef ég fer í vax finn ég meira til
í öðrum fótleggnum,“ segir
hún.
Anbumani Ramadoss, heilbrigðis-
ráðherra Indlands, hefur farið
fram á að áfengisnotkun verði
hætt í Bollywood-kvikmyndum.
„Hér áður fyrr sáust bara vondu
karlanir drekka áfengi. Núna eru
hetjurnar farnar að drekka í miklu
magni,“ sagði Ramadoss. „Leikar-
ar sem drekka á hvíta tjaldinu
hvetja ungmenni til að herma eftir
þeim. Stöðva verður atriði þar
sem áfengisnotkun er við lýði.
Áfengisneysla er stærsta heil-
brigðisvandamál Indlands.“
Hugmynd Ramadoss hefur ekki
verið lögleidd. Í janúar bað hann
um að reykingum í kvikmyndum
yrði hætt því 52 prósent barna
byrjuðu að reykja til að herma
eftir átrúnaðargoðum sínum.
Kossar á hvíta tjaldinu hafa
ekki verið leyfðir til þessa í Bolly-
wood, auk þess sem nekt er litin
hornauga. Stutt er síðan leikkonan
Kareena Kapoor vakti þjóðar-
athygli út af vangaveltum um það
hvort hún myndi klæðast bikiní í
næstu mynd sinni.
Kvikmyndaforkólfar í Bolly-
wood telja að kröfur Ramadoss
séu óraunhæfar. „Fyrst bannar
hann reykingar og núna má ekki
drekka. Þetta er ógerlegt því hvað
er þá hægt að sýna?“ sagði Komal
Nahta, ritstjóri Film Information.
„Ungmenni herma ekki bara eftir
því sem gerist í bíómyndum.“
Vill banna áfengi í Bollywood
BOLLYWOOD Ramadoss er ósáttur
við þróun mála í kvikmyndaborginni
Bollywood.
Tískuvikan í Ástralíu hófst á mánudag,
en þar sýna hönnuðir línur sínar fyrir vor
og sumar 2008 og 2009. Vor þar um slóðir
hefst í september og sumarið tekur við
eftir áramótin. Þau gegnsæju klæði sem
hafa sett mark sitt á tískupallana í Evrópu
voru einnig áberandi á fyrsta degi ástr-
ölsku tískuvikunnar, og þá sérstaklega
hjá hönnuðunum Önnu Thomas og Lee
Mathews.
Létt og leikandi í Ástralíu
Töframaðurinn David Blaine hefur
sett heimsmet í því að halda niðri í
sér andanum í kafi, eða í sautján
mínútur og fjórar sekúndur. Metið
setti hann í beinni útsendingu í
spjallþætti Opruh Winfrey. Áhorf-
endur þáttarins fögnuðu hinum 35
ára Blaine mikið þegar kafarar
sóttu hann úr vatnskúlunni þar
sem hann setti metið.
Blaine virtist afslappaður eftir á
og sagði að ævilangur draumur
sinn hafi ræst. Fyrra metið átti
Svisslendingurinn Peter Colat sem
hélt niðri í sér andanum í sextán
mínútur og 32 sekúndur. Blaine
hefur áður látið grafa sig lifandi í
eina viku í glærri kistu í New York
og eytt rúmum mánuði í glerbúri
yfir ánni Thames í London.
Setti heimsmet
DAVID BLAINE Töframaðurinn snjalli í vatnsbúri í New York fyrir tveimur árum.
folk@frettabladid.is
20 DAGAR TIL STEFNU
NÆFURÞUNN SUMARFÖT
Gegnsæ pils eru eflaust ekki allra, þó að
fyrirsætan á sýningu Önnu Thomas í Sydney
hafi tekið sig ágætlega út í einu slíku. Næf-
urþunnar blússur eiga hins vegar örugglega
upp á pallborðið hjá mörgum, og þá sér-
staklega þegar hægt er að smeygja sér í bol
undir. Bæði sumarlegt og dömulegt.
LE
E
M
A
TH
EW
S
LE
E
M
A
TH
EW
S
A
N
N
A
T
H
O
M
A
S
LE
E
M
A
TH
EW
S
A
N
N
A
T
H
O
M
A
S
A
N
N
A
T
H
O
M
A
S