Fréttablaðið - 02.05.2008, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Í dag er föstudagurinn 2. maí,
123. dagur ársins.
4.55 13.25 21.56
4.27 13.09 21.54
Munið þið þegar þeirri skrítnu hugmynd skaut niður á Íslandi
að enginn væri maður með mönn-
um nema hann eignaðist straumlínu-
lagaðan jeppa sem hét hinu
af spyrnu kjánalega og óþjála nafni
SsangYong Musso?
BURGEISARNIR á Seltjarnarnesi
og í Garðabæ sáu auðvitað við nýja -
bruminu og héldu sig við Pajero og
Patrol en stéttirnar sem voru
ný búnar að brjótast til velmegunar
féllu kylliflatar fyrir þessu kóreska
þarfaþingi – ekki síst úti á landi.
Á landsbyggðinni slógu oddvitar,
sýslumenn og orkubústjórar tóninn
og í kjölfarið fylgdu trillukarlarnir;
annar hver seldi kvótann, settist
upp í Löduna og ók suður með pen-
ingana en sneri aftur á Musso. Um
stutt skeið var sómi sjávar byggða
metinn í fjölda Musso-jeppa. Að
koma frá tíu Mussoa bæjarfélagi
vestur á fjörðum þótti um tíma
hreint ekki ónýtt; sýndi að verð-
mætasköpunin hefði aldeilis borið
ávöxt og menn komið ár sinni vel
fyrir borð.
SVO hallaði á ógæfuhliðina.
Verk fræðingarnir í Seúl höfðu ekki
sýnt þá fyrirhyggju að gera ráð
fyrir hinum alræmdu „íslensku
aðstæðum“ (það er að segja hand -
ónýtu vegakerfi) og fyrr en varði
fylltust bílaverkstæði af Musso-
jeppum með ónýta vatnskassa, bil-
aðar sjálfskiptingar og brotin
drif sköft. Trillukarlar sátu uppi
kvótalausir með ónýtan jeppa og
grétu Lödurnar sárt.
ÞETTA var áfall, ekki síst fyrir
sjálfsmynd margra hinna dreifðu
byggða. Sjálfur var ég á bíl prófs -
aldri á þessum tíma og man vel að
skyndilega þýddi lengur ekki að slá
um sig með þeirri staðreynd að
vera frá tíu Mussoa þorpi. Í einu
vetfangi var Kóreujeppinn orðinn
að tákngervingi stöðnunar.
ÞAÐ verður hins vegar ekki af
jeppainnflytjendum tekið að þeir
lærðu af reynslunni því undanfarin
áratug hefur ekki sá jeppi verið
fluttur inn til landsins án þess að
auglýst sé að hann sé „sérhannaður
fyrir íslenskar aðstæður“ – með
öðrum orðum hægt að aka honum
fyrirhafnarlaust frá Reykjavík til
Akureyrar. Það er hins vegar
engum lengur kappsmál að eignast
Musso. Af og til er þó hægt að rek-
ast á smáauglýsingar í dag blöðun-
um þar sem eigendur ónýtra Musso-
jeppa reyna að pranga varahlutum
hver inn á annan.
ÞAÐ er auðvelt að vera vitur eftir
á. Niðurlæging Musso-skeiðisins
varði sem betur fer stutt en kenndi
okkur dreifurunum aftur á móti að
meta að verðleikum bifreiðina sem
tryggði að við kæmumst leiðar
okkar hvað sem á gekk. Hvenær
skyldi Lödu-setrið verða opnað?
Þegar Musso
var málið