Fréttablaðið - 23.08.2008, Page 66
46 23. ágúst 2008 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
... gullfallega og
perluskreytta
hælaskó frá
miumiu. Fást hjá
Sævari Karli, Bankastræti.
... frábærlega smart og praktíska helg-
artösku sem þar að auki er algjör-
lega vatnsheld. Frá 66Norður.
... jakka sem klikkar ekki fyrir
herrana í vetur enda hannað-
ar af meistara kúlsins, Henrik
Vibskov. Frá Kronkron.
Nú er brúnka sólríkra daga og sumarfría farin að dofna og tími til
kominn að endurskoða aðeins sumarútlitið og færa það inn í haustið.
Þegar horft er yfir áherslurnar í förðun í vetur er augljóst að nokkur
mjög sterk trend eru í gangi hjá allflestum hátískuhönnuðum. Húðin,
sem var bronslituð og gljáandi í sumar verður ljós og mött,
augabrúnir þykkar og náttúrulegar og augu mjög gjarnan
máluð með sérstaklega grafískum línum. Hjá tískuhúsum
eins og Balenciaga, Comme des Garcons og Givenchy
voru fyrirsætur með svartan augnskugga sem var
teiknaður í sterkum línum alveg upp að augabrúnum.
Þessi tíska minnir meira á abstrakt málverk eða
„gothic“ rokk heldur en kisulegt útlit sjöunda
áratugarins. Annað lúkk sem kemur sterkt inn er
áttundi áratugurinn, en hjá Eley Kishimoto, Louise
Goldin og Christopher Kane voru fyrirsætur með
augnskugga í gylltum og appelsínugulum tón og
varirnar í appelsínugulu eða sterkbleiku. Það er
greinilegt að mjög ljóst púður er bráðnauðsynlegt í
snyrtibuddurnar í haust þar sem ekki snefill af glans
sást á andlitum fyrirsætna fyrir haust og vetur
2008. Hvað varðar hártískuna sýnast mér þrjár
sterkar bylgjur vera í gangi. Sú fyrsta er að allt
hárið er tekið frá andlitinu í stíft tagl eða hnút eins
og hjá Calvin Klein, Hussein Chalayan og Costume
National. Í öðru lagi koma diskó eða jafnvel afrókrullur
áttunda áratugarins sterkt inn, hvort sem hárið er sítt eða
í styttra lagi. Og að síðustu eru það mjúkar bylgjur eins og
eftir karmenrúllurnar góðu sem skapa einhvers konar
kvikmyndastjörnulúkk sjötta áratugarins. Vetrarútlitinu
fylgir augljóslega meiri vinna en á sumrin þegar maður
getur komist af með ófarðaða húð og maskara, en allar
konur ættu að geta fundið litlu stelpuna í sjálfum sér með
bursta og pensla og notað andlitið sem kanvas. Og fyrir
þær sem hryggjast yfir haustkomunni er vert að muna að
við erum allar sætari í kertaljósi!
Fölar á brún og brá
> GYÐJUR Í KRONKRON
Hönnuðurinn Hildur Björk Yeoman hefur ekki síður vakið
athygli fyrir fagrar tískuteikningar sínar. Í dag á Menningar-
nótt opnar hún sýningu teikninga sinna í KronKron klukk-
an 20 en þar gefur að líta myndir af ýmis konar gyðjum
sem eru innblásnar af málverkum Pre-Rafaelita 19. aldar.
Allar gyðjurnar skarta
hátískufatnaði frá haust
og vetrarlínum margra
af uppáhalds fatahönn-
uðum Hildar. Opnunin
stendur til klukkan 22
og allir eru velkomnir.
Sterkar stelpur eru málið fyrir haust og vetur 2008 en margir
tískuhönnuðir virtust innblásnir af teiknimyndahetjum og
vísindaskáldsögum. Kjólasniðin hjá Nicolas Ghésquiere hjá
Balenciaga voru sérlega framtíðarleg og gjarnan í háglansandi
efnum, og fyrirsæturnar hjá Rick Owens minntu á japanskar
manga-teikningar eða persónu úr teiknimyndasögunni The Crow.
Þröng snið, skikkjur, glans, og plast koma sterkt inn í vetur. - amb
Geimverur og ofurhetjur
Framtíðarleg tíska fyrir veturinn.
OKKUR
LANGAR Í
…