Fréttablaðið - 23.08.2008, Page 74

Fréttablaðið - 23.08.2008, Page 74
54 23. ágúst 2008 LAUGARDAGUR PEKING 2008 „Ég á örugglega eftir að brotna saman einhvers staðar annars staðar líka. Ég er samt að reyna að vera steiktur og segja að næstu 48 tímar hafi ekki gildi nema maður hugsi um gullið og finni gullið. Annars er maður að eyða þeim í vitleysu. Það er engin ástæða til annars en að nota þessa vellíðan, sem um mann streymir í augnablikinu, til þess að koma brjálaður í úrslitaleikinn. Við eigum að geta unnið hann,“ sagði tilfinningasamur landsliðsfyrir- liði, Ólafur Stefánsson, en hann réð ekki við tilfinningar sínar eftir leikinn og hágrét. „Við rústuðum Spánverjana og það þó svo að við hefðum klúðrað fimmtán dauðafærum eða eitt- hvað. Þeir áttu bara möguleika þegar við vorum einum færri. Hvað er eiginlega að gerast með þetta lið? Þetta er bara ótrúlegt,“ sagði Ólafur sem er einn merkasti íþróttamaður íslenskrar íþrótta- sögu. Sannur sigurvegari sem hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félagsliðum sínum. Hann segir þó ekkert taka fram tilfinningunni sem hann fann eftir leik í gær er hann tryggði sér verðlaun á Ólympíuleikum. „Þetta er mín stærsta stund í boltanum og skrítið að hægt sé að gera hana stærri. Ég er mjög glað- ur en samt mjög dofinn. Ég er búinn að sjá þessa stund fyrir mér í sex ár og hef þroskast á leiðinni. Ég var miklu hræddari þegar ég var yngri. Nú hef ég ýtt því í burtu og held smitað félaga mína. Hugs- að jákvætt og hugsað um að þess- ar 60 mínútur séu það sem gildi. Njóta stundarinnar og trúa á styrk sinn,“ sagði Ólafur sem hefur lengi auglýst eftir þeirri mark- vörslu sem hefur verið hjá lands- liðinu í Peking. „Maður var alltaf að vona að þetta gerðist og það sést núna hvað það skiptir miklu máli að fá markvörslu. Þjálfarinn minn sagði við mig eftir HM í Þýskalandi, þar sem við vörðum fimm bolta í tví- framlengdum leik gegn Dönum og töpuðum með einu, að ef við hefð- um markverði sem myndu verja fimmtán bolta í leik þá værum við heimsmeistarar. Málið dautt. Það er kannski að gerast núna,“ sagði Ólafur dreyminn. „Þetta er líka Ólympíuandinn sem er að skila þessu. Það er erfiðara að ná þess- um anda upp á öðrum stórmótum þegar við erum að spila alla daga. Hér er frídagur á milli leikja og þorpið sem við búum í er paradís. Lækir rennandi, gosbrunnar, maturinn og allt fólkið. Þetta er heimur sem er yndislegur og maður mun aldrei gleyma.“ Ólafur vill ekkert gefa uppi um það hvort úrslitaleikurinn á sunnu- dag verði hans síðasti landsleikur. „Ég ætla að spara allar yfirlýsing- ar. Hef lært það með árunum. Ég mun líka fara hljóðlega þegar ég hætti.“ Viðtal Ólafs á Rúv eftir Pól- verjaleikinn vakti mikla athygli heima en þá sagði Ólafur að honum liði eins og Morfeusi. Ég fékk Ólaf til þess að útskýra það. „Morfeus er held ég svefnguð. Það var ekki sá. Þaðan kemur samt Morfeus úr Matrix. Morfeus gefur þér valið hvort þú vilt sjá raun- veruleikann eða vera bara í gervi- heimi sem Matrixið var og er. Aðalmálið er að hann trúði allan tímann á Neó. Það er skýringin ef fólk vill fá það. Hann var ótrúlega viss um að Neó væri hinn eini. Væri gaurinn sem gæti frelsað Sion og allt þetta og um það fjalla þessar þrjár myndir en aðallega fyrsta myndin,“ sagði Ólafur djúp- ur en hann er mikill Matrix-aðdá- andi og á allar myndirnar heima hjá sér. Mín stærsta stund í boltanum Ólafur Stefánsson segist hafa verið með stundina sem hann upplifði eftir Spánarleikinn í gær í kollinum á sér í sex ár. Hann vill ekki tjá sig um hvort landsliðsferlinum ljúki á sunnudag. DRAUMUR AÐ VERULEIKA Ólafur Stefánsson er búinn að vera að tala um verðlaun á Ólympíuleikum í langan tíma og nú hefur draumurinn ræst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM PEKING 2008 „Ég vil byrja á því að þakka öllum þeim sem eru að vinna með mér hérna. Þetta er ótrúlegur hópur og það hafa allir stefnt að þessu sem einn maður. Ég hef sjaldan eða aldrei upplifað eins samstillt teymi og við erum með hérna,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hálfklökkur eftir sigurinn á Spán- verjum. Guðmundur tók að sér lands- liðsþjálfarastarfið þegar illa gekk að finna mann sem vildi starfið. Hann stendur uppi sem sannur sigurvegari. Sumarið hefur engu að síður ekki verið Guðmundi auðvelt en hann missti föður sinn í sumar. „Það var gríðarlega erfiður tími. Fyrir utan það áfall þá eru síðustu þrjár vikur líklega þær erfiðustu í mínu lífi enda höfum við unnið baki brotnu til þess að ná þessum árangri. Ég hef gefið allt sem ég á í þetta verkefni,“ sagði Guðmundur sem var hættur að þjálfa er hann tók að sér lands- liðsþjálfarastarfið. Hann vill ekk- ert tjá sig um framhaldið strax. „Ég hef alltaf vitað hvers ég er megnugur sem þjálfari. Hef aldrei efast um það,“ sagði Guð- mundur sem mun ef að líkum lætur fá gylliboð um þjálfara- störf erlendis á næstu misserum. Hann vill heldur ekkert tjá sig um hvort hann væri til í að skoða slíkt. Hann segist vera sáttur í góðri vinnu hjá Kaupþingi. „Ég á eitt mottó í lífinu og það er að maður skal aldrei segja aldrei.“ Það skildu ekki allir að Guð- mundur skyldi taka hina ungu og frekar óreyndu leikmenn Björg- vin Pál, Ingimund og Sturlu í hóp- inn. Það reyndist heldur betur rétt ákvörðun en hún var Guð- mundi erfið, enda skildi hann reynda menn eftir heima í staðinn. „Það þurfti hugrekki til þess að taka þessar ákvarðanir. Það er heilög skylda landsliðsþjálfara að velja sterkasta liðið hverju sinni og það skulu menn muna. Maður sviptir engan því að komast á Ólympíuleika að gamni sínu. Það var mjög erfið ákvörðun að skilja ákveðna menn eftir heima. Það tók mjög á en ég fylgdi minni sannfæringu sem fagmaður. Ég var að fylgja minni skyldu,“ sagði Guðmundur sem er ekki saddur. „Nei, ég er ekki saddur. Það er einn leikur eftir og við munum búa okkur á sama hátt undir hann eins og alla hina. Við erum að spila vel, fullir sjálfstrausts og ætlum að selja okkur dýrt.“ - hbg Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson stendur uppi sem sigurvegari á Ólympíuleikunum í Peking: Hef alltaf vitað hvers ég er megnugur sem þjálfari Í FANGI FYRIRLIÐANS Landsliðs- þjálfarinn Guðmundur Guðmunds- son faðmar hér fyrirliða liðsins, Ólaf Stefánsson, eftir að lokaflautið gall og ljóst var að Ísland vinnur verðlaun á leikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM UPPGEFINN Ólafur Stefánsson gaf allt sitt í leikinn og var þreyttur í lokin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HENRY BIRGIR GUNNARSSON Skrifar frá Peking henry@frettabladid.is PEKING 2008 Björgvin Páll Gústavsson fór enn og aftur á kostum í gær. Þessi ungi mark- vörður hefur spilað á ÓL eins og þrautreyndur landsliðsmaður og slegið í gegn. „Þegar manni líður svona vel innan hópsins og finnur svona mikið traust frá þjálfaranum og leikmönnum og sérstaklega Hreiðari getur manni ekki annað en liðið vel. Þá verður maður óstöðvandi,“ sagði Björgvin Páll hógvær að vanda. „Ég er með hörkuvörn fyrir framan mig sem skiptir öllu máli. Ég vex með hverjum leik og hef unnið vel fyrir þessu. Ég æfði mikið og það er að skila sér. Þegar maður er að berjast fyrir þjóðina þá er ekki annað hægt en að standa sig og gefa allt. Þetta er alveg yndislegt,“ sagði þjóðernis- sinninn Björgvin Páll. – hbg Björgvin Páll Gústavsson: Vörnin skiptir öllu máli 21 SKOT Björgvin Páll Gústavsson hefur varið yfir 40 skot í síðustu tveimur leikj- um. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM PEKING 2008 Það kviknaði heldur betur á fallbyssunni Loga Geirssyni í gær. Hann skoraði sjö ótrúleg mörk og mörg hver þegar Ísland var manni færri. Gríðar- lega mikilvæg mörk. „Þetta er ekki búið enn,“ sagði Logi léttur. „Þetta var undanúr- slitaleikur og mér gekk persónu- lega vel en vil samt frekar tala um liðið. Það fannst mér sýna geggjaðan karakter og kraft í dag. Það eru allir jákvæðir og frábært að taka þátt í þessu,“ sagði Logi sem hrósar heildinni líkt og aðrir. „Þetta er svakalegt lið sem við erum með hérna í öllum stöðum. Það var bara tímaspursmál hvenær þetta lið myndi springa út. Núna erum við að vinna allir saman sem heild og erum að ná okkar markmiðum. Annars get ég ekki lýst því hvernig mér líður,“ sagði Logi að lokum. - hbg Logi Geirsson skoraði 7 mörk: Erum með svakalegt lið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.