Fréttablaðið - 07.02.2009, Síða 11
LAUGARDAGUR 7. febrúar 2009 11
ÚTIVIST „Þetta er alveg magnað. Aðsóknin
hefur verið svo gríðarleg að síðustu dagar
hafa eiginlega minnt á tíu daga páska,“ segir
Einar Bjarnason, rekstrarstjóri skíðasvæð-
isins í Bláfjöllum. Gott skíðafæri að und-
anförnu hefur skilað sér í mikilli aðsókn í
brekkur um allt land, og Bláfjöll hafa ekki
farið varhluta af því.
Einar segir skíðamenn kunna vel að meta
þurra snjóinn, eða púðursnjóinn, sem hefur
verið í brekkunum að undanförnu. Frost og
örlítil gola án úrkomu sé besta skíðaveðrið
sem hægt sé að hugsa sér. „En auðvitað skipt-
ir það líka miklu máli að mjög margir hafa
hætt við að fara með fjölskyldurnar sínar
erlendis í skíðaferðir, enda lítil ástæða til
þegar færið er svona gott hjá okkur. Ég stalst
á skíði í gærkvöldi [í fyrrakvöld] og get vottað
það að þetta er með því allra besta sem gerist,
og ég hef skíðað út um allan heim frá því að
ég var tíu ára gamall.“
Að sögn Einars hafa á bilinu tvö til þrjú
þúsund manns skíðað í Bláfjöllum á hverju
virku kvöldi undanfarið. „En um helgar fer
fjöldinn allt upp í 7.000 manns. Þetta er alveg
ótrúlegt,“ segir Einar.
Vegna þessarar miklu aðsóknar hefur Blá-
fjallanefnd ákveðið að lengja opnunartím-
ann á skíðasvæðinu til klukkan 21.00 á kvöld-
in. „Við kunnum Bláfjallanefnd bestu þakkir
fyrir það, og skíðafólki fyrir að vera svona
duglegt að mæta,“ segir Einar Bjarnason. - kg
Skíðasvæðið í Bláfjöllum opið lengur vegna mikillar aðsóknar undanfarið:
Síðustu dagar minna á tíu daga páska
MIKIL AÐSÓKN Fólk á öllum aldri hefur verið duglegt
við að skella sér á skíði í Bláfjöllum síðustu daga, enda
færið með besta móti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Höfuðstóll minnkar í kreppu
Verðtrygging höfuðstóls Framfara-
sjóðs Sveitarfélagsins Voga hefur
verið felld niður fyrir árin 2008 og
2009. Er það gert til að bregðast við
fjárþörf vegna rekstrarhalla og fjár-
festinga. Minnihlutinn í bæjarstjórn
var á móti og sagði ábyrgðarlaust að
skerða sjóðinn vegna hallareksturs.
VOGAR
SAMFÉLAGSMÁL Kjalarness-próf-
astsdæmi efnir á morgun til mál-
þings í Norræna húsinu. Mál-
þingið ber yfirskriftina Hvar
er vonin? og verður fjallað um
framtíðarsýn þjóðarinnar and-
spænis þeim vanda sem nú blas-
ir við. Ræðumenn koma víða úr
samfélaginu.
Í tilkynningu segir að kjarni
málsins sé spurningin um vonina,
hvar hana sé að finna og hvern-
ig hún verður að nýju hreyfiafli í
samfélaginu. Horft verði til sögu
og samtíðar og lærdómur dreg-
inn af trúarmenningu þjóðarinn-
ar og spurt hvernig hann nýtist í
andstreyminu nú. - ghs
Kjalarnessprófastsdæmi:
Ræða vonina
á málþingi
MENNTUN „Þetta var mjög góður
fundur og sérstaklega gaman að
sjá hversu ríka áherslu Katrín
ætlar að leggja á að hafa náms-
menn með í ráðum,“ segir Björg
Magnúsdóttir, formaður Stúd-
entaráðs Háskóla Íslands. Hún,
ásamt kollegum sínum í Háskól-
anum í Reykjavík og Háskólan-
um á Akureyri, sat fund með
Katrínu Jakobsdóttur, nýskip-
uðum menntamálaráðherra, í
fyrradag.
Stúdentarnir færðu Katrínu
að gjöf svokallaðan Menntavita,
átta hliða skúlptúr sem tákn-
ar átta óskir frá námsmönnum.
„Hún sagðist ætla að hafa vit-
ann hjá sér í ráðuneytinu til að
tryggja að hún hugsi til okkar
námsmanna á hverjum degi,“
segir Björg. - kg
Fulltrúar Stúdentaráða:
Færðu Katrínu
Menntavita
VITINN Katrín Jakobsdóttir hyggst hafa
Menntavitann hjá sér í ráðuneytinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kannabisræktun í Árbæ
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í húsi í
Árbæ síðdegis í fyrradag. Við húsleit
fundust 140 kannabisplöntur. Karl-
maður um þrítugt var handtekinn í
þágu rannsóknar málsins.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Ungir piltar á skilorði
Tveir sautján ára piltar hafa verið
dæmdir í skilorðsbundið fangelsi,
annar í tvo mánuði og hinn í þrjá,
fyrir nokkur afbrot, meðal annars
þjófnaði, innbrot og fíkniefnabrot.
Þeir höfðu báðir komið við sögu lög-
reglu áður, annar þó sýnu oftar.
DÓMSTÓLAR