Fréttablaðið - 07.02.2009, Page 42
„Gönguferðir í náttúrunni eru
tilvalinn vettvangur til að kynn-
ast nýju fólki, en hátt í helmingur
þeirra sem mæta koma einir. Við
höfum því oft orðið vitni að fal-
legri vináttu sem myndast, ekki
síður en ástarsamböndum sem
kvikna,“ staðfestir aðspurð Bjarn-
ey Sigurjónsdóttir, ferðafræðing-
ur hjá Ferðafélaginu Útivist, sem
í dag og á morgun fer tvær spenn-
andi dagsferðir sem öllum er opið
að sækja.
„Í dag förum við í gönguskíða-
ferð um Bláfjöll og yfir í gömlu
Kaffistofuna, og á morgun í
gönguferð um Brynjudal, sem er
annar hluti raðgöngu um Hval-
fjörð, en eru fimm göngur í allt.
Við hófum gönguna í Laxárvogi
í Hvammsvík í janúar og enduð-
um þá í Maríuhöfn á Búðarsandi;
þaðan sem við höldum nú áfram
inn í Brynjudal,“ segir Bjarney. Í
báðar ferðirnar er óþarft að bóka
sig fyrirfram, en nóg að mæta á
Umferðarmiðstöð BSÍ við Vatns-
mýrarveg, þar sem fararstjóri
bíður og haldið er af stað klukk-
an 9.30 báða morgnana.
„Í Brynjudal er von á talsverð-
um snjó og því gott að vera með
legghlífar, í góðum gönguskóm og
hlýjum vetrarfatnaði. Allir sem
teljast í nokkuð góðu formi geta
labbað þessa 12 kílómetra leið, en
gangan tekur um fimm tíma, mest
á jafnsléttu. Þá er mikilvægt að
hafa nóg að bíta og brenna þegar
kemur að nesti, því ekki er komið
aftur heim fyrr en undir kvöld-
mat,“ segir Bjarney og bætir við
að gönguskíðaferð dagsins henti
öllum sem komnir eru ágætlega
af stað á gönguskíðum, því hún sé
ekki erfið yfirferðar en taki um
sex klukkustundir á skíðum.
„Yfirleitt er afbragðs mæting
í dagsferðir okkar, en við förum
ekki af stað með rútu ef farþeg-
arnir eru færri en tíu. Raðgöngur
njóta mikilla vinsælda og vana-
lega vill fólk klára þær allar, en
önnur slík hefst nú í febrúar þar
sem farnar verða fjórar ferðir í
kringum vötnin Kleifarvatn, Hlíð-
arvatn, Laugavatn og Meðalfells-
vatn.“
Þess má geta að Útivist er með
útivistarrækt í Elliðaárdal tvisvar
í viku. Ekki þarf að skrá sig í þær
ferðir, sem allar hefjast við Topp-
stöðina (brúnu rafstöðina) klukk-
an 18 á mánudögum og miðviku-
dögum kl. 18.30. Á fimmtudögum
kl. 18 er gengið út með Skerjafirði
frá bílastæðinu við Skógræktarfé-
lagið í Fossvogi. Sjá nánar á www.
utivist.is. thordis@frettabladid.is
Raðgönguför í Hvalfirði
Að fara vel búinn á tveimur jafnfljótum í góðum félagsskap um íslenska náttúru og kyrrlátt vetrarríki er
rómantísk upplifun sem veitir lífsfyllingu, um leið og hjartað og líkaminn allur nýtur þægilegrar áreynslu.
Bjarney Sigurjónsdóttir
er ferðafræðingur hjá
Ferðafélaginu Útivist
sem fer allan ársins
hring í fjölbreytt ferða-
lög um íslenska náttúru.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
SUND er góð hreyfing fyrir fólk á öllum aldri. Ef fjölskyld-
an vill hreyfa sig saman um helgina er tilvalið að fara í
góða gönguferð eða á skauta og enda í sundlauginni.
Námskeið um hvernig á að útbúa einfaldan
en næringarríkan mat fyrir börn frá 6 mánaða
aldri. Farið verður yfir hvaða fæðutegundum
er gott að byrja á og hvenær.
… Svo eitthvað sé nefnt.
Leiðbeinandi:
Ebba Guðný Guðmundsdóttir kennari
Verð: 3.500 kr.
Upplýsingar og skráning:
síma 694-6386 og á netfanginu
ebbagudny@internet.is
Hvað á ég að gefa
barninu mínu að borða?
Fimmtudagur 12. febrúar kl. 20:00–22:00
hjá Maður lifandi Borgartúni 24
Námskeiðið nýtist einnig vel þeim
sem eru með eldri börn. Nýjar
uppskriftir og fróðleiksmolar fylgja
með námskeiðinu og verða nokkrir
réttir og “drykkir” útbúnir
á staðnum.
Einstakir hlutir einstök heimili