Fréttablaðið - 07.02.2009, Qupperneq 44
7. febrúar 2009 LAUGARDAGUR4
„Sýningin er í Sverrissal og Apó-
tekinu sem eru tveir salir sem
liggja saman á jarðhæð Hafnar-
borgar,“ segir Björg Þorsteins-
dóttir listakona, en á sýningunni
Þættir eru málverk, skúlptúrar,
shiborimyndir og teikningar. Björg
verður með leiðsögn um sýninguna
á morgun, sunnudag, klukkan 15.
„Á sýningunni eru verk sem
ég hef unnið á síðustu tveimur
til þremur árum en nafnið Þættir
kemur til vegna þess að þarna eru
fjórir þættir eða kaflar úr minni
vinnu,“ útskýrir Björg og heldur
áfram: „Þarna er akrýl á striga
og stærstu myndirnar eru 1,30
sinnum 1,60. Síðan eru blýants-
teikningar með endurtekningum
á mynstri þannig að hvert verk
myndar heild með mismunandi
mynstri. Svo geri ég verk með
svokallaðri shiboritækni, sem er
austurlensk taulitunaraðferð, og
nota ég hana á misþykkan austur-
lenskan pappír og er það líka end-
urtekning í mynstrinu. Þá brýt
ég pappírinn og lita hann í svart-
hvítu. Í fjórða lagi eru skúlptúrar
þar sem ysta lagið er austurlensk-
ur pappír með svarthvítri teikn-
ingu utan á skúlptúrunum.“
Sýningin hefur vakið mikla
athygli og hefur aðsókn verið
góð, enda teflir listakonan saman
efnum og tækni á hugvitssam-
an hátt. „Veggirnir í sölunum eru
mismunandi að stærð og því fer
sýningin afar vel í þessum salar-
kynnum,“ segir Björg ánægð og
bætir við: „Flest málverkin eru
í gulum lit en guli litaskalinn er
mjög stuttur og því er ögrandi að
vinna við þetta. Ég ákvað að hafa
málverkin gul með öðrum svart-
hvítum verkum. Að vísu eru þrjú
rauð verk með í för en þau voru
sett með til að fá smá áherslu.“
Að sögn Bjargar er víða algengt
að í sýningarsölum sé boðið upp
á Listamannsspjall með viðkom-
andi listamanni. „Þetta verður
enginn fyrirlestur hjá mér heldur
frekar nærvera og ég er tilbúin
til að svara spurningum. Gaman
er að fá svona samtal milli lista-
manns og neytenda og býst ég við
að jákvætt og skemmtilegt verði
að heyra spurningarnar. Stund-
um fær maður líka hugmyndir út
frá því og nýjan skilning á eigin
list. Að mála er oft eins og hug-
leiðsla, stundum er eins og mál-
verkið taki völdin og geri sig að
einhverju leyti sjálft,“ segir Björg
áhugasöm. hrefna@frettabladid.is
Fjölbreyttir listþættir
Listamannsspjall verður í Hafnarborg á morgun en þá verður Björg Þorsteinsdóttir með leiðsögn um
sýninguna sína Þættir þar sem hún blandar saman efnum og tækni á nýstárlegan máta.
Ysta lagið í skúlptúrunum er austurlenskur pappír með svarthvítri teikningu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þorra hvað?
Ferskur og ljúffengur þriggja rétta matseðill
með frábæru útsýni á 4.990 kr. út febrúar.
Forréttur
Humar með ætifíflamauki, epla chutney og kexi, heslihnetufroðu og heslihnetu-humargljáa.
eða
Dönsk urtönd með maísmjölköku, bökuðum maís og andadjús.
Aðalréttur
Lambarúlla, tunga og sultað lamb með lagskiptri kartöflu, ertumauki og rauðvínssósu.
eða
Steinbítur og hörpuskel með kremuðu banka-byggi, ætiþystlum, dijon sinnepi og froðu.
Eftirréttur
Mjólkursúkkulaðimús og brownie með heslihnetu kurli, tapioca perlum og tonkabaunaís.
eða
Bananakaka með hægelduðum banana, karamellu og „rum&cola“ ís.
Sérvalin frönsk og ítölsk vín einnig í boði í samráði við vínþjón okkar.
Tilboðið gildir öll kvöld frá 30. janúar til 28. febrúar.
Borðapantanir í síma 595 8545 eða dine@panoramarestaurant.is
Ljúffengt tilboð
í febrúar
Það er óþarfi að
vera súr á þorranum
Útsýnisferð fyrir
bragðlaukana
Ingólfsstræti 1 | 101 Reykjavík | www.panoramarestaurant.is
SJÁLFVIRK
Margar stærðir - 6v / 12v / 24v 0,8A - 25A
HLEÐSLUTÆKI
Snilldartæki sem mega vera í sambandi allt árið
og geta hlaðið allar gerðir rafgeyma.
Fyrir dömur og herra.
Nýkomið úrval af vönduðum
kuldaskóm úr leðri, gæruskinn-
fóðraðir. Margar gerðir.
Dömuskór, verð
frá: 19.700.- til 21.700.-
Herraskór,verð
frá: 15.900. - til 24.775.-
Alltaf
góður!
10 bita tilboð
3795,- KR.