Fréttablaðið - 07.02.2009, Qupperneq 67
BLS. 7 I+ Bókaðu á www.icelandair.is
Ódýrir leikhúsmiðar hjá „tkts“
Hægt er að fá miða á mörg West
End leikhúsin á allt að hálfvirði á
tkts-sölustöðunum á Leicester
Square eða í Brent Cross Shopping
Centre. „tkts“ bjóða miða á hálfvirði
eða með 25% afslætti að meira en
30 sýningum samdægurs. Kaupandi
verður að koma á staðinn í eigin
persónu og vissara er að koma
tímanlega því að miðar eru fljótir að
seljast upp.
Aðrar leiðir til þess
að ná í ódýra leikhúsmiða
Það getur oftar en ekki borgað sig að
fara í leikhúsið sjálft og spyrja eftir
miðum á sýningu samdægurs;
afgangsmiðar og pantanir sem hafa
ekki verið sóttar eru þá víða á boð-
stólum á niðursettu verði.
Þjóðleikhúsið býður stundum miða
fyrir £10 á tilteknar sýningar: Athugið
hvort £10 Travelex Tickets séu í boði
þegar þið pantið miða á tiltekna
sýningu (www.nationaltheatre.org.uk).
Miðar á sýningar í Southwark
Playhouse, sem pantaðir eru með
góðum fyrirvara, t.d. á netinu, kosta
aðeins £8 (Airline Style Pricing).
Þegar fer að ganga á miðana á
tiltekna sýningu hækkar verðið í £13
og síðustu miðarnir eru seldir á £20.
Ódýrir leikhúsmiðar í stæði
Það má leggja á sig að standa til
þess að spara, ekki satt? Donmar
Warehouse býður 20 miða í stæði
fyrir £7.50 á sýningu samdægurs
þegar búið er að selja í öll sæti. Í
Wyndhams Theatre eru líka í boði 20
miðar í stæði fyrir £10 á Donmar
West End leikárinu (til ágústmánaðar).
Ef þið komið klukkustund áður en
sýning hefst í Royal Court Theatre
getið þið hugsanlega krækt í miða í
stæði fyrir aðeins 10 pens. Verður að
segjast eins og er að maður má hafa
sig allan við til þess að sjá á leik-
sviðið úr þessum stæðum. En þarna
er ódýrt húsaskjól í leiðindaveðri í
a.m.k. þrjár klukkustundir.
Í góðu veðri er tilvalið að fara í
Shakespeare's Globe og horfa á
leiksýningu úti undir berum himni fyrir
aðeins £5 (stæði).
Ódýrt í bíó í London
Í Prince Charles Cinema við
Leicester Place 7, við Leicester
Square, kostar bíómiðinn £4 á
síðdegissýningar og £5 á kvöldin.
Þarna eru nýjustu smellirnir sýndir
eilítið seinna en í öðrum bíóum og að
auki eru sýndar klassískar, frægar
ræmur og nýjar kvikmyndir, sem ekki
er ætlað eingöngu að slá aðsóknar-
met (art house releases).
Ódýrir miðar á tónleika
Sumar af frægustu rokkhljóm-
sveitunum, t.d. Blur, Coldplay og
Madness, byrjuðu að koma fram á
krám og skemmtistöðum í London.
Það getur því svo sannarlega verið
gefandi að borga lítinn pening og
stundum jafnvel ekki neitt fyrir á
hlusta á bönd sem eru að byrja
ferilinn. Í Dublin Castle, einum af
kunnari stöðunum í London þar sem
má heyra lifandi tónlist, spila þrjár til
fjórar hljómsveitir á hverju kvöldi og
miðinn kostar bara £5. – Þeir sem
hafa áhuga á aðeins alvarlegri tónlist
geta prófað að fá óselda miða á
hálfvirði á sýningu í Royal Opera
House með því að hringja í miða-
söluna eða koma á staðinn innan við
fjórum klukkstundum fyrir sýningu.
Ókeypis upplifun
á söfnum í London
Í London er hægt að skoða um 60
söfn án þess að þurfa að taka upp
veskið og borga. Hér eru nokkur
helstu þeirra sem öll eru vel þess
virði að skoða og sum að sjálfsögðu
heimskunnir staðir, fjölsóttir af
ferðamönnum hvaðanæva úr
veröldinni.
GÖNGUFERÐIR
UM LONDON
Skoðunarferðir á tveimur jafnfljótum
eru ódýr og skemmtilegur ferðamáti
og miðborg London er ekki stærri en
svo að hún er tilvalin til lengri eða
skemmri gönguferða. Ýmist er hægt
að verða sér úti um gott kort af
borginni og/eða gönguleiðakort eða
slást í hópinn með leiðsögumanni hjá
einum af hinum fjölmörgu ferða-
þjónustufyrirtækjum sem bjóða
tiltölulega ódýrar skoðunarferðir fyrir
göngufólk um miðborg London.
Kynnið ykkur málið t.d. á
www.walks.com
HAGKVÆMUR
FERÐAMÁTI UM
BORGINA
Það er ekki lengi að segja til sín í
buddunni ef fólk freistast til þess að
taka leigubíl á milli staða í London.
Þeir sem þekkja ekki vel til í mið-
borginni ættu að kynna sér fyrst hvort
ekki sé tilvalið að ganga, spyrjast fyrir
á hótelinu eða skoða kortið. Oftar en
ekki tekur það aðeins 10 til 15
mínútur að rölta á stað sem maður
hélt vegna ókunnugleika að væri mun
lengra í burtu.
Almenningssamgöngur
Neðanjarðarlestirnar og strætisvagnar
eru að sjálfsögðu hagkvæmasti og
fljótlegasti ferðamátinn þegar kemur
ekki til álita að ganga. Gefið ykkur því
tíma til þess að læra á lestarkerfið og
helstu strætisvagnaleiðir. Það getur
sparað ykkur veruleg útgjöld.
Oyster Card
Svonefnt Oyster Card er lang-
ódýrasti kosturinn fyrir þá sem nota
neðanjarðarlestir og strætisvagna,
hvort sem fólk er búsett í London eða
aðeins gestkomandi í nokkra daga.
Þetta er eins konar debetkort sem
greitt er inn á fyrir fram og gildir aðeins
í samgöngukerfinu. Korthafi getur lagt
inn á kortið eftir þörfum, t.d. á öllum
lestarstöðvum. Ferðamenn frá Íslandi
geta pantað kortið á netinu, t.d. hjá
VisitBritain eða útvegað sér kort þegar
þeir eru komnir til London.
Leitið nánari upplýsinga á
www.tfl.gov.uk