Fréttablaðið - 07.02.2009, Side 94
62 7. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
Fjölnir Þorgeirsson vann mikið
þrekvirki á dögunum er hann tók
þátt í björgun fjölda hesta úr ísi-
lagðri Reykjavíkurtjörn. Hestasíðan
Icehorsenews.com greindi að sjálf-
sögðu frá tíðindunum og meðal
annars var þar birt myndband af
atvikinu þar sem sást til Fjölnis
stökkva út í tjörnina og stjórna
aðgerðum af mikilli
röggsemi. Einnig var
á síðunni viðtal við
Fjölni þar sem hann
greindi frá sínum
þætti í björguninni.
Hann er sjálfur vefstjóri
síðunnar og voru því
hæg heimatökin
þegar kom að
því að tjá sig um
hetjudáðina.
Ekkert verður af fyrirhuguðum
stórtónleikum Bubba Morthens
og Björgvins Halldórssonar í
Laugardalshöll. Á heimasíðu sinni
segist Bubbi hafa gert þrjár tilraunir
til að negla niður dagsetningu á
tónleikana en Björgvin sagðist
alltaf vera upp-
tekinn. Bubbi
gefur í skyn að
Björgvin hafi
einfaldlega
ekki viljað stíga
á svið með
sér, sem hann
segir miður
því tilhugsunin
um að syngja
með Bo hafi
verið ákaflega
spennandi.
Annars fer Bubbi mikinn í útvarps-
þætti sínum, Færibandinu á Rás
2, á mánudagskvöldum. Næsti
gestur hans verður Jón Ásgeir
Jóhannesson og mun Bubbi
væntanlega spyrja
hann spjörunum úr
varðandi útrás hans
og hrun efnahags-
lífsins. Sjálfur hefur
Bubbi farið illa út úr
hlutabréfakaupum
sínum og meðal
annars tapaði
hann fúlgum
fjár í FL Group
þar sem Jón Ásgeir
er einmitt stærsti
hluthafinn. - fb
„Já, hvað eru … fimm til sex þættir
eftir. Og þá búið! En, við erum eins
og Ragnar Reykás. Ætíð tilbúnir
að endurmeta hlutina í ljósi nýrra
aðstæðna og upplýsinga,“ segir
Pálmi Gestsson, leikari og upplýs-
ingafulltrúi Spaugsstofunnar.
Spaugstofan hefur sjaldan eða
aldrei verið vinsælli en nú og
mældist með 55 prósenta áhorf
samkvæmt hinum nýju rafrænu
áhorfsmælingum nú í vikunni. Vin-
sælasti sjónvarpsþáttur landsins.
Og fram undan er fjörugt tímabil
í stjórnmálasögunni. Kosningar á
næsta leyti. Er þetta spéspegillinn
sem þjóðin þarf? Ítrekaðar yfir-
lýsingar eru til þess efnis að vet-
urinn í vetur væri sá allra síðasti
sem Spaugstofan væri með fasta
þætti á laugardögum. Enda tut-
tugu ára afmæli hópsins. En þeir
virðast vera að smellhitta á loka-
sprettinum. Og nú sjá menn fram á
að aðeins fimm þættir eru eftir og
þá allt-bú. „Jaaaááá,“ segir Pálmi
spurður hvort ekki sé misráðið að
hætta núna? „Okkur finnst það nú
eiginlega fullsnemma hætt þegar
dansinn er rétt að byrja.“ Og Örn
Árnason Spaugstofuliði gjamm-
ar inn í: „Engin stjórnarandstaða
eftir í landinu!“ Spaugstofumenn
líta á sig sem stjórnarandstöðuafl.
„Við erum það. Mörg átorítetin hafa
sagt að við séum eina stjórnarand-
staðan,“ segir Pálmi. Hann segir
að ekki hafi komið til tals fyrir
alvöru að endurskoða ákvörðunina
um að hætta. Enda þeir uppteknir
við að klára dæmið eins og um var
samið. En svo virðist sem Spaug-
stofumenn séu ekki að setja fyrir
sig fyrri yfirlýsingar um að nú sé
þessu lokið.
Þórhallur Gunnarsson dagskrár-
stjóri segir þetta allt satt og rétt.
Hann vinnur einmitt nú um þessar
mundir að skipulagningu dagskrár
næsta vetrar. Hann segir Spaug-
stofuna mælast gríðarlega vel og
engin ástæða til að hætta því sem
gott er bara til að hætta.
„Við gerum samning á hverju ári
við Spaugstofuna. Meðan ég ræð
við að hafa þá áfram þá verður það
svo en þetta er partur af flóknu
dæmi,“ segir dagskrárstjórinn og
útskýrir að það séu einkum þrjár
breytur sem taka verði tillit til:
Gæði, áhorf og kostnaður. „Efst
á þessum lista eru gæðin og síðan
verður að skoða hvort hægt sé að
vinna með kostnaðinn: Hvort við
höfum fé til að setja í tiltekin verk-
efni. Svo verður að viðurkennast að
svona stöðugt og gott áhorf segir
okkur að fólk vill ekki missa af
þessum þætti og auðvitað er horft
til þess.“ Þórhallur segir Spaug-
stofumenn hafa staðið sig frábær-
lega í vetur, að þeir hafi blómstrað
í gósentíð fréttanna. „Þess vegna
ætla ég að segja að það er jafn lík-
legt að þeir verði og að þeir verði
ekki.“ Niðurstaða mun vonandi
liggja fyrir í næsta mánuði.
jakob@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. sæti, 6. guð, 8. hversu, 9. spíra,
11. hvort, 12. sía, 14. skot, 16. átt,
17. nögl, 18. tæfa, 20. umhverfis, 21.
truflun.
LÓÐRÉTT
1. atlaga, 3. eftir hádegi, 4. bylgju,
5. gras, 7. húsdýr, 10. tálbeita, 13.
verkur, 15. heiður, 16. hlóðir, 19.
bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sess, 6. ra, 8. hve, 9. ála,
11. ef, 12. sigti, 14. snafs, 16. sv, 17.
kló, 18. tík, 20. um, 21. ónáð.
LÓÐRÉTT: 1. árás, 3. eh, 4. sveiflu,
5. sef, 7. alisvín, 10. agn, 13. tak, 15.
sóma, 16. stó, 19. ká.
Kristín Eysteinsdóttir
Aldur: 35 ára.
Starf: Leikstjóri.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: 105 Reykjavík.
Fjölskylda: Býr með Katrínu Odds-
dóttur laganema.
Kristín leikstýrir leikritinu Rústað
sem nú er sýnt á nýja sviði Borgar-
leikhússins. Þetta umdeilda verk
eftir Söru Kane er fyrsta verk
Kristínar sem fastráðins leikstjóra í
Borgarleikhúsinu.
„Kerfið er ekki undirbúið fyrir menn eins
og Einar Bárðarson,“ segir aðstoðarmaður
Kjartans Ólafssonar þingmanns Sjálfstæðis-
flokksins.
Eftir að þingmenn áttu þess kost að ráða
sér aðstoðarmenn var Einar ráðinn af Kjart-
ani. Einar sá sem var að ekki mæltust sér-
legir aðstoðarmenn þingmanna vel fyrir
meðal almennings og þeir hafðir til marks
um bruðl hins opinbera. Kosningar nálgast
og Einar þá jafnframt í hlutverki kosninga-
agents Kjartans. Hann steig því skref sem
margir kunnu að meta: Afsalaði sér launum.
Hins vegar kom honum á óvart að með því
fauk allt annað sem fylgdi starfinu svo sem
netfang og öll aðstaða.
Karl Magnús Kristjánsson er aðstoðar-
skrifstofustjóri Alþingis og hann segir að
þegar Einar óskaði eftir því að vera tek-
inn af launaskrá Alþingis „upplýsti hann að
ástæðan væri að hann væri að fara að
vinna önnur störf en kveðið er á um
í samningi við aðstoðarmanninn og
metur hann greinilega að ekki sé við
hæfi að hann njóti launa á meðan. Við
lítum á það sem ígildi uppsagnar.
Þar af leiðir fær hann ekki aðrar
greiðslur eða fyrirgreiðslu
af hálfu Alþingis,“ segir
Kjartan Magnús.
„Já, það fauk allt dótið
svo sem netfang svo fólk
nái betur í mann,“ segir
Einar sem telur aðstoð-
armenn þingmanna hafi
sætt ómaklegri gagnrýni. Ekki sé um
há laun að ræða, Einar segist hafa
verið að fá um 80 þúsund krónur
útborgaðar á mánuði auk ferða- og
símahlunninda. „Þetta er viðleitni
til að efla störf þingsins og ég held
að þetta hafi verið ranglega
kynnt. Sannarlega er bruðl
í kerfinu en lýsir sér ekki
í þessu,“ segir Einar sem
tók eftir gagnrýni á þessa
ráðstöfun á fundum
og þar sem hann fór.
„Minn frambjóðandi
er heiðarlegur og
duglegur maður og
ég vildi ekki varpa
skugga á hans góða
starf. En held áfram að
vinna fyrir hann.“ - jbg
Aðstaða Einars fauk með laununum
EINAR BÁRÐARSON Segir kerfið
ekki ráða við mann eins og sig
en með því að afsala sér launum
fór aðstaða hans einnig.
Að loknum ríkisstjórnarfundi í
ráðherrabústaðnum í gær ætlaði
Ragna Árnadóttir dómsmálaráð-
herra að fara í kápu sína en greip
í tómt í anddyri hússins. Lögregl-
an var umsvifalaust sett í málið
enda hæg heimatökin. Og röskir
laganna verðir voru ekki lengi að
komast að hinu sanna í þessu máli
dularfulla kápuhvarfs yfirboð-
ara síns. Eftir nokkur símtöl við
þá sem hugsanlega voru vitni, svo
sem bílstjóra ráðherraliðsins, kom
á daginn að Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra var sá seki.
Hann hafði farið fyrr af fundi og
í asanum hafði hann gripið kápu
Rögnu í misgripum og haft á brott
með sér. Var kápunni við svo búið
komið í réttar hendur og Ragna
þurfti því ekki að fara út í frostið
kápulaus. - jbg
Kápa dómsmálaráðherra hvarf
MÁLIÐ Í ÖRUGGUM HÖNDUM Ragna fylgist með röskum laganna vörðum finna
sökudólginn Össur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
PÁLMI GESTSSON: ERUM TIL Í ENDURSKOÐUN AÐ HÆTTI RAGNARS REYKÁSS
Hugsanlega hætt við að
hætta með Spaugstofuna
SPAUGSTOFAN Aðeins
fimm þættir eftir og
menn farnir að efast
um að rétt sé að hætta
þegar ballið er að byrja.
FRÉTTIR AF FÓLKIÞÓRHALLUR
GUNNARS-
SON Segir allt
eins líklegt að
Spaugstofan
verði áfram
eins og hún
hætti – þrátt
fyrir yfirlýsingar
um að þessi
vetur væri þeirra
hinsti dans.
VEISTU SVARIÐ
svör við spurningum á síðu 8
1 Kristin Halvorsen.
2 On the Rocks.
3 Indriði H. Þorláksson.
Dagskrá
14:30 Heilbrigðisráðherra setur málþingið
Sjöfn Þórðardóttir formaður Heimilis og skóla flytur ávarp
14:35 Heiða Kristín Harðardóttir fjallar um tegundir og birtingaform
rafræns eineltis
14:50 Kristrún Birgisdóttir fjallar um nýja rannsókn á rafrænu einelti
15:05 Guðný Kristjánsdóttir (móðir) og Kristín Rán Júlíusdóttir (dóttir)
16 ára segja frá reynslu sinni af rafrænu einelti
15:20 Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi, fjallar um
tæknilegt umhverfi rafræns eineltis og eftirlit foreldra
15:35 Þórir Ingvarsson, rannsóknarlögreglumaður, fjallar um afskipti og
meðferð lögreglunnar á rafrænu einelti
15:50 Björn Harðarson, sálfræðingur, fjallar um sál- og félagsfræðilegar
hliðar eineltis
16:05 Samantekt, Þorlákur Helgason
16:10 Umræður og veitingar
Sjá nánar á heimasíðu SAFT www.saft.is
MÁLÞING UM RAFRÆNT EINELTI
verður haldið á vegum SAFT 10. febrúar í Skriðu,
Háskóla Íslands, við Stakkahlíð kl. 14:30–16:15