Réttur - 01.11.1964, Page 1
RÉTTUR
TÍMARIT U M ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
4. HEFTI . 47. ÁRG. . 1964
Ritstjóri: Einar Olgeirsson.
Ritnefnd: Ásgeir Bl. Magnússon, Björn Jónsson, Gísli Ásmundsson,
Magnús Kjartansson, Þór Vigfússon.
Vinstri eining — verklýðseining
Það er nauðsynlegt fyrir alla þá alþýðu, sem er að berj-
ast fyrir rétti sínum og hagsmunum, frelsi sínu og valdi, að
átta sig vel á öllum hugtökum. Það er alveg sérstaklega nauð-
synlegt fyrir alla sósíalista að gera sér rétta grein fyrir hug-
tökunum og hvað bak við þau býr, því hlutverk sósíalista
og flokks þeirra, Sósíalistaflokksins, er að leiða verkalýðinn
fram til sigurs í baráttunni og því verða þeir að skilja til
fullnustu allar forsendur sigursins.
Þegar rætt er um vinstra afl í íslenzkum stjórnmálum, þá
er það verklýðshreyfingin, sem átt er við. Hún, — og með
henni önnur launþegasamtök eins og B.S.R.B., — er aflið,
stéttaraflið, sem eitt saman getur boðið auðmannastéttinni
byrginn og sigrað hana að lokum.
Orsakirnar til þess að verklýðshreyfingin og aðrir laun-
þegar eru þetta afl eru eftirfarandi: í fyrsta lagi Iiafa laun-
þegastéttirnar andstæða hagsmuni við auðmannastéttina, en
sameiginlega hagsmuni innbyrðis. í öðru lagi er verkalýður-
inn 50% þjóðarinnar og aðrir launþegar upp undir 25%,