Réttur - 01.11.1964, Side 3
RETTUR
195
hélt sig þá hafa fengið slíkt húsbóndavald yfir honum, að
hún meðhöndlaði hann sem slæmur húsbóndi hjú sitt forðum
daga, unz hann strauk úr vistinni.
Ef takast mætti að koma á róttæku samstarfi þessara
tveggja sterkustu aðila verklýðshreyfingarinnar, þá yrði
verklýðshreyfingin — sem hvað „faglegu“ hliðina snertir
er nú næst ríkisvaldinu sterkasta valdið á Islandi, — einnig
á hinum pólitíska vettvangi með skjótustum hætti það vold-
uga afl, er með skynsamlegri stefnu gæti ráðið þróun þjóð-
félags vors og stýrt því fram á leið til félagslegs réttlætis,
heildarstjórnar á þjóðarbúskapnum og menningarlífs fyrir
alla albýðu, en forsenda þess er 40—48 stunda raunveruleg
vinnuvika, er tryggi mannsæmandi líf, og mánaðarorlof á
ári, er verkamenn njóti sem Iivíldar.
Þróun íslenzks þjóðfélags um alllangt skeið franmndan
verður undir því komin, hvort þetta tekst nú, meðan Alþýðu-
flokkurinn enn er annar sterkasti aðili verklýðshrevfingar-
innar og á enn sterk ítök í verklýðssamtökunum, því eftir
skamma stund getur það verið orðið of seint.
TIL LESENDA R ÉTTA R
„Réttur“ verSur nú enn einu sinni að snúa sér til sinna góðu lesenda.
Það liefur ekki verið hægt að framkvæma þær góðu fyrirætlanir að
koma út 6—10 heftum á ári. Hins vegar liafa þau 4 hefti, sem komið
hafa út árlega nú, verið batnandi að allra áliti og dýr er Réttur ekki,
þó aðeins væri um 4 hefti eða 256 síður að ræða. En það verður reynt
að gera betur, en til þess þurfa skil fyrir Rétt að vera betri en hingað til.
Réttur vill hérmeð eindregið mælast til þess við áskrifendur sína að
hafi póstkröfur verið endursendar eða rukkun ekki framkvæmd á
annan hátt, þá sendi menn árgjahlið: 100 kr. í póstávísun til: Afgreiðslu
Réttar, Skólavörðustíg 19, Reykjavík.
Sömuleiðis yrði því tekið með mikliim þökkum að menn reyndu að
útvega nýja áskrifendur og tilkynna þá afgreiðslunni. Nýir áskrifendur
geta fengið tvo síðustu árganga í kaupbæti, ef þeir óska þess.
Ritstj.