Réttur - 01.11.1964, Qupperneq 4
ELEANOR MARX-AVELING:
KARL MARX
INOKKRAR SUNDURLAUSAR MINNINGAR)
[ Eleanor var yngsta dóttir Karls Marx, f. 1855, d. 1898. Hún
tók mikinn þátt í brezkri og alþjóðlegri verkalýðshreyfingu,
var stofnandi að Socialist League í Bretlandi 1884 og Oháða
verkamannaflokknum 1893. Vann að félagsmálum fjöldahreyf-
ingar ófaglærðra verkamanna í Bretlandi um 1880, ásamt Eng-
els, og að skipulagsmálum verkfalls hafnarverkamanna í Lond-
on 1889. Starfaði við brezk og þýzk blöð sósíalista, sá um út-
gáfuna á „Value, Price and Profit“ eftir Karl Marx (1898),
skrifaði endurminningar bæði um Marx og Engels. Hún giftist
Edward Aveling (1852—1898), þekktum brezkum rithöfundi
og sósíalista, prófessor í efnafræði og lífeðlisfræði við New
College, höfundur að mörgum ritum, m. a. um marxisma og
þýddi „Das Kapital" á ensku ásamt S. Moore.
Þessar endurminningar um Karl Marx föður sinn, skrifaði
hún fyrir austurriska sósíalista og hirtust þær á þýzku í „Öster-
reichisclier Arbeiterkaler.der fur das Jahr 1885“, Briinn. ís-
lenzka þýðingin er gerð eftir frumtextanum á ensku, prentaður
í „Reminiscences of Marx and Engels", hls. 249—255, Moskva
19571.
Vinir mínir i Austurriki biðja mig að skrifa fáeinar endurminn-
ingar um föður minn. Þeir hefðu tæplega getað beðið mig um
vandasamara verk. En austurrískir karlar og konur berjast svo hetju-
lega fyrir þeim mólstað sem Karl Marx helgaði krafta sína og líf,
að það er ekki hægt að neita þeim um þetta. Eg mun því reyna að
skrá örfáar sundurlausar og slitróttar minningar um föður minn.
Um Karl Marx hafa verið sagðar ótrúlega margar sögur, allt frá
rnilljónum hans (auðvitað í sterlingspundum, minni mynt mótti ekki
gagn gera) að styrkveitingum Rismarcks, sem hann átti að hafa
heimsótt að staðaldri á dögum Alþjóðasambandsinsl!) Þeim sem
þekktu Karl Marx finnst samt engin þjóðsaga fráleitari en hin marg-
luggða er lýsir honum sem nöldursegg, beiskum, stíflunduðum,