Réttur - 01.11.1964, Síða 16
208
R É T T U R
inga sjálfra. Það er það, sem afturgöngurnar gáfust upp við. En
það er einmitt þetta, sem alltaf hefur verið kjarn.inn í sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar: Island fyrir Islendinga. Og það er nú hið
sögulega hlutverk verkamanna, starfsmanna og róttækra mennta-
nianna að hafa forystu um að tryggja framkvæmd þessarar stefnu,
— eins og það var eitt sinn Idutverk bændastéttarinnar, þegar hún
hafði forystu í sjálfstæðisbaráttunni ásamt róttækustu menntamönn-
um landsins.
LEONID BRESHNEV
hinn nýi aðalritori Kommúnistaflokks Sovétríkjanna.
Leonid Breshnev, hinn nýji aðalritari miðstjórnar Kommúnista-
ílokks Sovétríkjanna, er tók við af Nikita Krustoff 14. okt. sl., er
verkfræðingur að mennt. Hann er sonur verkamanns, fæddur 1906
í þorpinu Kamenskoye í Ukrainu. Það þorp er nú orðin iðnaðar-
borgin Dneprodzerzhinsk í krafti iðnvæðingarinnar í Sovétrikjun-
um. Breshnev byrjaði að vinna 15 ára gamall, fór 1923 á tækniskóla
jafnhliða vinnunni. Síðan fór hann 25 ára gamall í æðri málmiðn-
aðarskóla og útskrifaðist úr honum 1935 og tók að vinna sem verk-
fræðingur.
I maí 1937 hóf hann stjórnmálastarf sitt og varð 1938 ritar.i hér-
aðsnefndar flokksins í Dnepropetrovsk. Hann tók þátt í stríðinu
og var sæmdur hershöfðingjatign. A árunum 1946 til 1950 gegndi
hann ábyrgðarmiklum flokksstörfum í Ukrainu og varð í júlí 1950
aðalritari miðstjórnar Kommúnistaflokksins í Moldaviu. A 19. þingi
Kommúnistaflokks Sovétríkjanna 1952 var hann kosinn í miðstjórn
f'okksins og gerður ritari miðstjórnar og síðan endurkosinn 1956.
Frá 1954 var hann leiðtogi Kommúnistaflokksins í Kazakhstan. í
júní 1957 var hann kosinn í framkvæmdanefnd (presidium forsæti)
miðstjórnarinnar. Fró júní 1963 var hann ritari miðstjórnarinnar.
Frá 1960 til sumarsins 1964 var hann forseti forsætis æðsta ráðsins,
sem er raunverulega forsetaembættið í Sovétríkjunum. 14. okt. 1964
var Breshnev síðan kosinn fyrsti eða aðal-ritari miðstjórnarinnar,
sem er æðsta starf í Kommúnistaflokki Sovétríkjanna.