Réttur - 01.11.1964, Page 17
Elisabeth Flynn. Æviminning
Nú fellur í valinn hver á fætur öðrum af þeim foringjum verka-
íýðshreyfingarinnar, sem leitt hafa alþýðuna í hinni hörðu baráttu,
sem hún hefur háð á þessari öld. Ein af fremstu bardagalietjum
bandarískrar verklýðshreyfingar, — Elisabeth Gurley Flynn, for-
maður Kommúnistaflokks Bandaríkjanna, — andaðist 5. september
1964 í Moskvu, þar sem hún dvaldi sér til lækninga.
Hún fæddist 1890 í New England. Foreldrarnir voru Irar, brenn-
heitir fjandmenn brezka auðvaldsins. Hún átti því ekki langt að
sækja hatrið á kúgun. G. B. Shaw var líka náskyldur henni. Og hún
háði alla ævi baráttuna fyrir rétti hinna snauðu, fyrir frelsi þeirra,
er fangelsaðir voru sakir stéttabaráttunnar, og unni sér aldrei hvild-
ar Hún var ræðuskörungur með afbrigðum og skipuleggjandi
góður.
16 ára gömul, árið 1906, hóf hún baráttuna með ræðuflutningi á
verklýðsfundi og hélt þeirri baráttu áfram til dauðadags, í 58 ár.
Hún gekk í gegnurn eldraun stéttabaráttunnar í Bandaríkjunum,
sætti með verkalýðnum öllum þeim ofsóknum, sem yfir hann gengu.
Hún var með lífi og sál í verkfallsbaráttu vefnaðarverkafólksins í
Lawrence og Peterson (1912 og 1913), í verkföllum námumanna í
Minnesota (1916) og þannig áfram. Og þetta voru allt hörð verk-
föll, þar sem einkalögregla auðfélaganna og lögregla ríkisins hvað
eftir annað drápu verkfallsmenn eða fangelsuðu og létu dómsvaldið
myrða þá síðan.
Elisabeth Flynn barðist með Eugene Debs, Bill Heywood og
öðrum helztu foringjum bandarískrar alþýðu og seinna urðu leið-
togar Kommúnistaflokks Bandaríkjanna: W.illiam Foster, Eugene
Dennis og Benjamin Davis, — sem nú eru dán.ir — beztu sam-
verkamenn hennar.
Það var Joe Hill, — hinn heimskunni píslarvottur, einn af mörg-
um, sem amerískt dómsvald myrti, — sem gaf henni nafniÖ „the
rebel girl“ (uppreisnarstúlkan) í einunr söngva sinna. Hann var
myrtur dómsmorði 19, nóvember 1915, aðeins 31 árs að aldr.i. Hann