Réttur - 01.11.1964, Blaðsíða 24
216
R É T T U R
frá Hamden, Connecticut; dr. Philip S. Foner og Howard Selsam,
fræðimenn og marxistar.
Eitt hundrað og fimmtíu vísinda- og fræðimenn frá Atlanta til
Seattle — frá fjörutíu háskóium og úr álíka mörgum sérgreinum
— hafa gerzt stofnfélagar og styrkja starfsemi AIMS. Skoðana-
munur meðal þeirra er mikill, en um tvennt eru þeir allir sam-
mála: að hefja vísindalegar rannsóknir á hærra stig og hverfa írá
skætingi til rökræðna.
Stofnunin tók til starfa 23. apríl 1964. Á stofnfundi var um-
ræðuefnið „Marxisminn og lýðræðið“. Framsögumaður var pró-
fessor Robert S. Cohen frá Boston. Aðrir ræðumenn: dr. Herbert
Aptheker; Charles H. George, prófessor við Northern Illinois Uni-
versity; prófessor Gaylord C. LeRoy, Temple University; Eslanda
G. Robeson (kona Paul Robeson), mannfræðingur og lektor. Ræð-
urnar munu birtasl í AIMS Monographic Series Numher One.
Það væri barnalegt að halda að AIMS muni ekki verða fyrir
erfiðleikum eða aðkasti frá afturhaldsöflum Bandaríkjanna. En
það er ekki minnsti vafi á því, að áhrif þessarrar stofnunar munu
aukast og bandarískir marxistar verða hlutgengir í þeim umræð-
um, sem nú fara fram um nýsköpun mannfélagsins.
( Worhl Marxisl Ixevieiv).