Réttur - 01.11.1964, Síða 44
236
R É T T U R
ílokksins þegar hún kemur saman um miðjan september. Það er
samt fastókveðið að við munum taka virkan þátt í undirbúnings-
fundinum. En við efumst þó enn um að heppilegt sé að halda al-
þjóðaráðstefnu, einkum þar sem nú er augljóst að ófáir eru þeir
flokkar, auk hins kínverska, sem ekki munu taka þátt í henni. A
undirbúningsfundinum mun okkur vafalaust gefast tækifæri til að
leggja fram og skýra sjónarmið okkar, einnig vegna þess að þau
varða fjölmörg vandamál sem hin alþjóðlega verklýðshreyfing og
kommúnistaflokkarnir hafa við að glíma. Ég ætla að stikla hér á
þessum vandamálum, m. a. til að auðvelda frekari viðræður okkar
um þau, þegar tækifæri gefst til þeirra.
Bezta aðferðin til að hrekja kenningar Kínverja
Það hefur verið hafður annar háttur á baráttunni gegn röngum
stjórnmálaviðhorfum og sundrungarstarfsemi kínverskra kommún-
ista en sá sem v,ið lögðum til að hafður væri. Okkar tillögur voru
þessar í meginatriðum:
— að ekkert iát væri gert ó rökstuddr.i gagnrýni á grundvallar-
viðhorf og stefnu Kínverja;
— að haga þessum rökdeilum öðruvísi en Kínverjar gera, svo
að komizt væri hjá stóryrðum og almennum fordæmingum, en
fjallað um ákveðin atriði á hlutlægan og sannfærandi hátt og ævin-
lega með vissri virðingu fyrir andstæðingnum;
— samtímis yrðu haldnir fundir flokkahópa til gagngerðrar rann-
sóknar og ljósari skilgreiningar á þeim vandamólum sem blasa við
binum ýmsu þóltum okkar hreyfingar (í Vestur-Evrópu, rómönsku
Ameríku, löndum „þriðja heimsins“ og varðandi tengsl þeirra við
kommúnistahreyfinguna í auðvaldsríkjunum, alþýðulýðveldunum
o. s. frv.). I þessu starfi ætti jafnan að liafa í huga að ástandið í
öllum þessum hlutum heims hefur gerbreytzt síðan á árunum 1957
og 1960 og að óhugsandi er að við getum gert okkur rétta grein
fyrir sameiginlegum viðfangsefnum hreyfingar okkar ef við vinnum
ekki saman að gagngerðri rannsókn þeirra;
— það væri aðeins eftir slíkan undirbúning, sem gæti tekið heilt
ár eða enn lengur, að hægt myndi vera að taka til athugunar, hvort
halda ætti alþjóðaráðstefnu, sem gæti þó í raun og sannleika markað
tímamót í sögu hreyfingar okkar, orðið henni til eflingar á grund-
velli nýrra og réttra viðhorfa. Með þessu móti hefðum við einnig
getað einangrað kínversku kommúnistana betur, staðið gegn þeim