Réttur - 01.11.1964, Qupperneq 46
238
R É T T U R
tekið fyrir ákveðin mál sem snerla daglega baráttu okkar (andstöð-
una gegn stjórninn.i, gagnrýni á sósíalistaflokkinn, eininguna i
verklýðshreyfingunni, verkföll o. s. frv.). Gagnvart þessum atriðum
eru rökdeilur Kínverja gersamlega máttlausar og út í hött.
Af þessu leiðir að enda þótt áfram sé unnið að undirbúningi
alþjóðaráðstefnu má ekki vanrækja pólitísk frumkvæði sem eru til
þess fallin að veikja aðstöðu Kínverja og að heppilegasti vettvangur-
inn til þess er fólginn í mati á þeim raunverulegu aðstæðum sem
við okkur blasa og í starfi að lausn þeirra vandamála sem okkar
híða, bæði einstakra þátta hreyfingarinnar, einstakra flokka og
hreyfingarinnar í heild.
Um útlitið eins og nú hortir
Við lítum með vissri svartsýni á horfurnar eins og nú stendur á,
bæði á alþjóðavettvangi og í okkar eig.in landi. Astandið er verra
nú en við okkur blasti fyrir tveimur-þremur árum.
Mesta hættan stafar í dag frá Bandarikjunum. Þar eiga sér nú
slað mikil félagsleg átök. Kynþáttadeilur hvítra manna og svartra
eru aðeins einn þáttur þessara átaka. Morðið á Kennedy sýndi live
langt afturhaldsöflin geta gengið. Það er engan veginn hægt að
fortaka að frambjóðandi Repúblikana (Goldwater) sigri í forseta-
kosningunum en hann hefur stríð á stefnuskrá sinni og tungutak
íasista. Meinið er að ásókn hans þokar öllum bandarískum stjórn-
málum í hægriátt, magnar þá tilhneigingu að leita lausnar á and-
stæðunum heimafyrir í harðvítugari framkomu gagnvart öðrum
þjóðum með samkomulagi við afturhaldsöflin í Vestur-Evrópu.
Þess vegna er hið almenna ástand heldur ískyggilegt.
1 Vestur-Evrópu er ástandið miklu margþættara, en sameiginlegt
einkenni þess er stöðug efling auðhringavaldsins innan Efnahags-
bandalagsins og fyrir tilverknað þess. Síaukin og harðnandi sam-
keppni af hálfu Bandaríkjanna flýtir enn fyrir þessari þróun. A
þennan hátt styrkist hinn hlutlægi grundvöllur fyrir afturhalds-
stefnu, sem miðar að því að afnema eða takmarka lýðræðisréttindi,
halda við lýði fasistísku stjórnarfari, setja á laggirnar alræðis-
stjórnir, koma í veg fyrir hvers konar ávinninga verkalýðsins og
skerða svo um munar lífskjör hans. Á alþjóðavettvangi er hver
h.öndin upp á móti annarri. Atlanzbandalagið, sem kom.ið er til
ára sinna, er í augljósum og erfiðum kröggum, ekki sízl vegna af-
stöðu de Gaulle. En menn skyldu ekki gera sér neinar tálvonir, Það